IX. KAFLI
Endurskoðun á einingum tengdum almannahagsmunum.
42. gr.
Lögfesting.
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum sem tengjast almannahagsmunum og niðurfellingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2005/909/EB, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 9. maí 2018, bls. 29–64, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102, frá 27. apríl 2018, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993.
43. gr.
Eftirlit.
Endurskoðendaráð fer með eftirlit samkvæmt þessum kafla og er lögbært yfirvald í samræmi við 20. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014.
44. gr.
Heimild til að veita þjónustu sem ekki felur í sér endurskoðun.
Endurskoðandi eða endurskoðunarfyrirtæki getur þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014 veitt skattaþjónustu skv. i. og iv.–vii. lið a-liðar annarrar undirgreinar 1. mgr. og verðmatsþjónustu skv. f-lið annarrar undirgreinar 1. mgr. að uppfylltum skilyrðum 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.
45. gr.
Skráahald.
Endurskoðandi og endurskoðunarfyrirtæki skulu geyma endurskoðunargögn í sjö ár hið minnsta, sbr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014.
46. gr.
Hámarkstími endurskoðunarverkefnis.
Hámarkstímabil verksamnings endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis skal vera tíu ár, sbr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014. Þó má lengja verksamning í:
- Tuttugu ár ef opinbert útboðsferli vegna endurskoðunarinnar fer fram skv. a-lið 4. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014.
- Tuttugu og fjögur ár ef fleiri en eitt endurskoðunarfyrirtæki eru ráðin á sama tíma skv. b-lið 4. mgr. 17. gr. reglugerðar (ESB ) nr. 537/2014.
47. gr.
Útvistun verkefna.
(1) Endurskoðendaráði er heimilt að útvista hluta þeirra verkefna sem því eru falin skv. 24. gr. reglugerðar (ESB) nr. 537/2014. Skilgreining verkefna og skilmálar skulu vera skýrir.
(2) Eftirfarandi verkefnum er þó ekki heimilt að útvista:
- gæðaeftirliti endurskoðenda og endurskoðunarfyrirtækja á einingum tengdum almannahagsmunum,
- rannsóknum sem koma til vegna gæðaeftirlits eða tilvísunar af hálfu annars yfirvalds og
- ákvörðunum og beitingu viðurlaga sem tengjast gæðaeftirliti eða rannsóknum á endurskoðun á einingum tengdum almannahagsmunum.