Lög
nr. 126/1999, um skattfrelsi norrænna verðlauna.
Eftirtalin norræn verðlaun skulu undanþegin tekjuskatti og útsvari:
-
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.
-
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
-
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
-
Norrænu leikskáldaverðlaunin.
-
Nóbelsverðlaunin.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og útsvars á árinu 2000 vegna tekna á árinu 1999. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 13/1976, um skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, með síðari breytingum.