IV. KAFLI
Stjórnun staðgreiðslu.
Ríkisskattstjóri hefur á hendi yfirstjórn staðgreiðslu.
(1) Ríkisskattstjóri skal auk þeirra starfa sem honum eru falin með öðrum ákvæðum laga þessara:
- halda skrá sem sýnir greiðslustöðu launamanna [---]1) á staðgreiðsluári,
- gefa út reglur og leiðbeiningar fyrir launamenn og launagreiðendur um notkun gagna og eyðublaða vegna staðgreiðslu opinberra gjalda,
- láta gera eyðublöð, sem nauðsyn er á, fyrir launagreiðendur. Eyðublöð þessi skulu fást hjá skattyfirvöldum og hjá þeim aðilum sem heimild hafa til móttöku greiðslna skv. 20. gr.
(2) [---]2)
(3) Ríkisskattstjóri getur af sjálfsdáðum kannað öll atriði er varða gjald- eða skilaskyldu [---]2), svo og kannað sérhver önnur atriði er varða framkvæmd laga þessara. Getur hann í því skyni krafist allra upplýsinga og gagna sem hann telur þörf á að fá, m.a. frá [---]2) innheimtumönnum ríkissjóðs, gjaldheimtum, bönkum, sparisjóðum og póststöðvum.
1)Sbr. 1. gr. laga nr. 135/2002. 2)Sbr. 40. gr. laga nr. 136/2009.
[Fjársýsla ríkisins.
24. gr. a.
Fjársýsla ríkisins skal halda skrá sem sýnir greiðslustöðu launagreiðenda á staðgreiðsluári. Til að sinna því hlutverki skal Fjársýsla ríkisins hafa sömu heimildir og um getur í 3. mgr. 24. gr.]1)