Skattalagasafn ríkisskattstjóra 24.4.2024 01:23:03

Lög nr. 94/2019, kafli 11 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=94.2019.11)
Ξ Valmynd

XI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

54. gr.

Innleiðing.

Lög þessi fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2014/56/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2006/43/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2018, frá 27. apríl 2018 og reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) nr. 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endur­skoðun á einingum sem tengjast almannahagsmunum og niðurfellingu á ákvörðun fram­kvæmda­stjórnarinnar 2005/909/EB eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahags­svæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2018, frá 27. apríl 2018.

55. gr.

Gildistaka.

(1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma falla úr gildi lög um endurskoðendur, nr. 79/2008.

(2) Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast ákvæði 46. gr. gildi 27. apríl 2024 gagnvart þeim endur­skoð­endum og endurskoðunarfyrirtækjum sem hafa veitt endurskoðunarþjónustu til eininga tengdra almanna­hagsmunum samfellt í 20 ár eða lengur við gildistöku laga þessara og 27. apríl 2027 gagn­vart þeim endurskoðendum og endurskoðunarfyrirtækjum sem hafa veitt endur­skoð­unar­þjónustu til eininga tengdra almannahagsmunum samfellt í 11 ár eða lengur en skemur en 20 ár við gildistöku laga þessara.

56. gr.

Breyting á öðrum lögum.

Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:

  1. Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, með síðari breytingum: 2. mgr. 90. gr. laganna fellur brott.
  2. Lög um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016, með síðari breyt­ingum: Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
    1. Í stað orðanna „Lög um endurskoðendur, nr. 79/2008“ í 1. málsl. kemur: Lög um endurskoðendur og endurskoðun.
    2. Við 2. málsl. bætist: og endurskoðun.
    3. Orðin „skv. 6. gr. laga nr. 79/2008“ í 3. málsl. falla brott.
  3. Lög um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, með síðari breytingum: 4. mgr. 70. gr. laganna fellur brott.
Fara efst á síðuna ⇑