Skattalagasafn ríkisskattstjóra 16.4.2024 09:12:10

Lög nr. 50/1988, kafli 14 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=50.1988.14)
Ξ Valmynd

[XIV. KAFLI]1)
Ýmis ákvæði.

[44. gr.]1)


(1) Skatt- og tollyfirvöldum, starfsmönnum þeirra og erindrekum er bannað, að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um opinbera starfsmenn, að skýra óviðkomandi mönnum frá því er þeir komast að í starfi sínu um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja. Þagnarskyldan helst þó að starfsmenn þessir láti af starfi sínu.

(2) Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu skatt- og tollyfirvöld veita Hagstofu Íslands [---]2) upplýsingar er varða skýrslugerð [hennar].2)

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. d-liður 2. gr. laga nr. 51/2002.

[45. gr.]1) 2) 3)


[Ríkisskattstjóra er heimilt að senda út tilkynningar og gefa út og taka á móti eyðublöðum eða öðrum gögnum samkvæmt lögum þessum rafrænt.]2) 3) 4) 5) 6)

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. 30. gr. laga nr. 122/1993. 3)Sbr. 14. gr. laga nr. 55/1997. 4)Sbr. 7. gr. laga nr. 38/2008. 5)Sbr. 59. gr. laga nr. 136/2009. 6)Sbr. 13. gr. laga nr. 143/2018.

[46. gr.]1)

[Ríkisskattstjóri skal]2) árlega semja og leggja fram virðisaukaskattsskrá fyrir hvert sveitarfélag [---],2) en í henni skal tilgreina ákvarðaðan virðisaukaskatt eða endurgreiddan virðisaukaskatt hvers skattskylds aðila. Virðisaukaskattsskrá skal liggja frammi til sýnis á hentugum stað í tvær vikur [---]3). [Ríkisskattstjóri]2) auglýsir í tæka tíð hvar skráin liggur frammi.

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. 60. gr. laga nr. 136/2009. 3)Sbr. 14. gr. laga nr. 143/2018.

[47. gr.]1)

[Ráðherra]5) hefur eftirlit með því að [---]3) [ríkisskattstjóri, [skattrannsóknarstjóri]6)],4) [yfirskattanefnd]2) og innheimtumenn ríkissjóðs ræki skyldur sínar samkvæmt lögum þessum. Hann hefur rétt til þess að fá til athugunar virðisaukaskattsskýrslur og gögn er þær varða og krefja framangreinda aðila skýringa á öllu því er framkvæmd laga þessara varðar.

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. 23. gr. laga nr. 30/1992. 3)Sbr. 61. gr. laga nr. 111/1992. 4)Sbr. 61. gr. laga nr. 136/2009. 5)Sbr. 127. gr. laga nr. 126/20116)Sbr. 30. gr. laga nr. 29/2021.

[48. gr.]1)


[Sala í tollfrjálsum verslunum, sbr. XIII. kafla tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, telst sala úr landi í skilningi laga þessara.]2) 3)

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. 14. gr. laga nr. 119/1989. 3)Sbr. 7. gr. laga nr. 69/2012.

[49. gr.]1)


(1) [[Ráðherra]5)) getur með reglugerða) sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
(2)  [---]2) 3) 6)

(3) [[Ráðherra]5) er heimilt að kveða á um í reglugerða) að skattskyldur aðili geti, á grundvelli skriflegs samnings, tekið að sér að sjá um framtal, skil og uppgjör virðisaukaskatts af skattskyldri sölu á vöru eða þjónustu annars aðila.]3)

(4) Jafnframt er [ráðherra]5) heimilt að setja sérstakar reglurb) um uppgjör, uppgjörstímabil og skil virðisaukaskatts af hráefni til fiskvinnslu í því skyni að jafna aðstöðu fyrirtækja á þessu sviði.*1)

(5) Um þau atriði, sem ekki eru sérstök ákvæði um í lögum þessum, fer samkvæmt [lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt]4 [og lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda]7) , eftir því sem við á.*2)

1)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989. 2)Sbr. 15. gr. laga nr. 119/1989. 3)Sbr. 31. gr. laga nr. 122/1993.  4)Sbr. 78. gr. laga nr. 129/2004. 5)Sbr. 127. gr. laga nr. 126/20116)Sbr. 8. gr. laga nr. 69/2012. 7)Sbr. 22. gr. laga nr. 150/2019. a)Reglugerðir nr. 470/1991, 192/1993, 336/1993, 667/1995, 515/1996 og 630/2008. b)Reglugerð nr. 563/1989*1)Var áður 3. mgr., sbr. b-liður 31. gr. laga nr. 122/1993*2)Var áður 4. mgr., sbr. b-liður 31. gr. laga nr. 122/1993
 

[50. gr.]2)

[Lög þessi öðlast þegar gildi, en skattheimta samkvæmt þeim kemur eigi til fram¬kvæmda fyrr en 1. janúar 1990. Frá þeim tíma falla úr gildi lög nr. 10/1960, um söluskatt, með síðari breytingum. Ákvæði þeirra laga skulu þó gilda um söluskatt af sölu til og með 31. desember 1989.]1)

1)Sbr. 1. gr. laga nr. 110/1988. 2)Sbr. 13. gr. laga nr. 119/1989.
 

 

Fara efst á síðuna ⇑