Skattalagasafn ríkisskattstjóra 25.4.2024 15:11:26

Lög nr. 162/2002, kafli 3 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=162.2002.3)
Ξ Valmynd

III. KAFLI
Gjaldskyldir aðilar, álagning gjalds, uppgjörstímabil, gjalddagar,
skýrslur, álag, dráttarvextir, kæruheimild og kærufrestur.

9. gr.
Gjaldskyldir aðilar.

(1) Skylda til að greiða úrvinnslugjald samkvæmt lögum þessum, sbr. þó 5. gr., hvílir á eftirtöldum aðilum:

  1. Öllum sem flytja til landsins gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum þessum til endursölu.

  2. Öllum sem flytja til landsins gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum þessum til eigin nota.

  3. Öllum sem framleiða gjaldskyldar vörur samkvæmt lögum þessum innan lands.

(2) Gjaldskyldan tekur til allra framleiðenda og innflytjenda, svo sem einstaklinga, félaga, sjóða og stofnana, sveitarfélaga og stofnana þeirra, ríkissjóðs, ríkisstofnana, erlendra verktaka og annarra aðila sem flytja inn eða framleiða umræddar vörur.

(3) [Aðilar sem eru gjaldskyldir skv. 3. tölul. 1. mgr. skulu ótilkvaddir og eigi síðar en 15 dögum áður en úrvinnslugjaldsskyld starfsemi hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá [ríkisskattstjóra.]2)]1) Skráning hjá [ríkisskattstjóra]2) er forsenda fyrir greiðslufresti, sbr. 1. og 3. mgr. 11. gr. Breytingar sem verða á starfsemi eftir að skráning hefur farið fram skal tilkynna [ríkisskattstjóra]2) eigi síðar en 15 dögum eftir að breyting varð.

(4) Að svo miklu leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í lögum þessum skulu ákvæði [tollalaga, nr. 88/2005, um innfluttar vörur, og ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, um innlendar framleiðsluvörur]3), eiga við um álagningu, innheimtu, [gjaldskyldu, tilhögun bókhalds,]1) tilkynningarskyldu, kærur, eftirlit og aðra framkvæmd gjaldtöku samkvæmt lögum þessum.

1)Sbr. 5. gr. laga nr. 106/2006. 2)Sbr. 96. gr. laga nr. 136/2009. 3)Sbr. 5. gr. laga nr. 124/2014.

10. gr.
Álagning gjalds.

[Tollyfirvöld skulu]2) annast álagningu og innheimtu gjalds af gjaldskyldum innfluttum vörum og skal það innheimt með aðflutningsgjöldum. [Ríkisskattstjóri]1) annast álagningu gjalds vegna innlendrar framleiðslu sem tollstjórar innheimta. [---]1) Ríkisskattstjóri annast álagningu úrvinnslugjalds af ökutækjum.

1)Sbr. 97. gr. laga nr. 136/2009. 2)Sbr. 67. gr. laga nr. 141/2019.

[10. gr. a
Endurgreiðsla úrvinnslugjalds vegna útflutnings.

(1) Sé gjaldskyld vara sannanlega flutt úr landi og komi ekki til úrvinnslu hér á landi skal endurgreiða gjaldskyldum aðila, eða þeim sem keypt hefur vöruna af gjaldskyldum aðila, úrvinnslugjald sem greitt hefur verið af viðkomandi vöru. Aðili sem óskar endurgreiðslu skv. 1. málsl. skal tilgreina í sérstakri skýrslu til [ríkisskattstjóra]2) um magn vöru og fjárhæð þess úrvinnslugjalds sem sannanlega hefur verið greitt af viðkomandi vöru. Skýrslu skal skilað eigi síðar en 15 dögum fyrir gjalddaga úrvinnslugjalds. Endurgreiðsla skal fara fram á gjalddaga, enda hafi úrvinnslugjald vegna viðkomandi tímabils verið greitt. Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr.

(2) [Ráðherra]3) setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslu.]1) a)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 114/2005. 2)Sbr. 98. gr. laga nr. 136/2009. 3)Sbr. 356. gr. laga nr. 126/2011a)Sjá reglugerð nr. 1124/2005

 [10. gr. b.
Endurgreiðsla úrvinnslugjalds til framleiðenda og innflytjenda raf- og rafeindatækja.

Framleiðandi og innflytjandi raf- og rafeindatækja, sem hefur, einn sér eða í samvinnu með öðrum framleiðendum og innflytjendum, ákveðið að setja upp kerfi til að safna raf- og rafeindatækjaúrgangi um allt land og ráðstafa honum með viðeigandi hætti, getur fengið álagt úrvinnslugjald endurgreitt, að frátöldu gjaldi fyrir skráningarkerfi og eftirlit Umhverfisstofnunar, í hlutfalli við ráðstafað magn af raf- og rafeindatækjaúrgangi af sömu tegund vöru sem úrvinnslugjald hefur verið greitt af. Aðili sem óskar endurgreiðslu skv. 1. málsl. skal tilgreina í sérstakri skýrslu til ríkisskattstjóra um magn vöru og fjárhæð þess úrvinnslugjalds sem sannanlega hefur verið greitt af viðkomandi vöru og magn raf- og rafeindatækjaúrgangs sem hefur verið safnað og hvar honum var safnað, sem og magn ráðstafaðs raf- og rafeindatækjaúrgangs og staðfestingu á ráðstöfuninni. Skýrslu skal skilað eigi síðar en 15 dögum fyrir gjalddaga úrvinnslugjalds. Endurgreiðsla skal fara fram á gjalddaga, enda hafi úrvinnslugjald vegna viðkomandi tímabils verið greitt. Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr. Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslu.]1)

1)Sbr. 38. gr. laga nr. 63/2014.
 

11. gr.
Uppgjörstímabil, gjalddagar og greiðslufrestur.

(1) Hvert uppgjörstímabil vegna innlendrar framleiðslu á gjaldskyldum vörum, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 9. gr., er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess.

(2) Innlendir framleiðendur skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs úrvinnslugjald af gjaldskyldum vörum sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu. Innlendum framleiðendum sem keypt hafa aðföng til gjaldskyldrar framleiðslu sinnar og greitt af þeim úrvinnslugjald er heimilt að draga það frá við endanleg skil gjaldsins.

(3) Hvert uppgjörstímabil vegna innfluttrar vöru, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 9. gr., er tveir mánuðir eins og tilgreint er í 1. mgr. Gjalddagi hvers tímabils er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess.

(4) Innflytjendur sem flytja vörur til landsins til endursölu skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs úrvinnslugjald af gjaldskyldum vörum sem voru tollafgreiddar á uppgjörstímabilinu.

(5) Innflytjendur sem flytja gjaldskylda vöru til landsins til eigin nota, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 9. gr., skulu greiða úrvinnslugjald við tollafgreiðslu.

(6) Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist gjalddagi á næsta virkan dag á eftir.

(7) Um greiðslufrest úrvinnslugjalds vegna innfluttrar vöru fer að öðru leyti samkvæmt reglugerð nr. 390/1999, um greiðslufrest á aðflutningsgjöldum, með síðari breytingum.*1)

*1)Reglugerð nr. 390/1999 var felld úr gildi með reglugerð nr. 1100/2006, um vörslu og tollmeðferð vöru.

12. gr.
Skýrslur, álag og dráttarvextir.

(1) Gjaldskyldir aðilar skv. 3. tölul. 1. mgr. 9. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila skýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður vegna vara sem greiða ber gjald af á uppgjörstímabilinu. [Ríkisskattstjóri]1) skal áætla gjald af viðskiptum þeirra aðila sem skila ekki skýrslu innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu eða ef skýrslu eða fylgigögnum er ábótavant. [Ríkisskattstjóri]1) skal tilkynna innheimtumanni og gjaldskyldum aðila um áætlanir og leiðréttingar sem gerðar hafa verið. Um málsmeðferð fer eftir ákvæðum laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

(2) Sé gjald ekki greitt á tilskildum tíma skal gjaldskyldur aðili, sbr. 1. mgr. 9. gr., sæta álagi til viðbótar því gjaldi sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef skýrslu hefur ekki verið skilað eða henni er ábótavant og gjald því áætlað nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga gjaldsins upphæð er til áætlunar svarar eða gefið fyrir lok kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum. Álag skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.

(3) Sé gjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal gjaldandi greiða dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.

1)Sbr. 98. gr. laga nr. 136/2009.

13. gr.
Kæruheimild og kærufrestur.

(1) [Heimilt er að kæra álagningu gjalds innan 60 daga frá gjalddaga gjaldsins vegna innlendrar framleiðslu en tollafgreiðsludegi ef um innflutning er að ræða.]1) [Kæru skal beint til [---]3) ríkisskattstjóra.]2) Kæru skal fylgja skriflegur rökstuðningur. Innsend fullnægjandi skýrsla [vegna innlendrar framleiðslu]1) skal tekin sem kæra þegar um er að ræða áætlanir skv. 12. gr. [Ríkisskattstjóri]3) skal kveða upp skriflegan rökstuddan úrskurð um kæruna og tilkynna hana í ábyrgðarbréfi innan 30 daga frá lokum [gagnaöflunar]1).

[---]3)

(3) Gjaldskyldur aðili [getur skotið úrskurði ríkisskattstjóra]2) skv. 1. mgr. til yfirskattanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð. Um kærufresti og málsmeðferð fer eftir ákvæðum [118. gr. tollgalaga, nr. 88/2005, og]3) laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd.

1)Sbr. 6. gr. laga nr. 106/2006. 2)Sbr. 99. gr. laga nr. 136/2009. 3)Sbr. 68. gr. laga nr. 141/2019

Fara efst á síðuna ⇑