Skattalagasafn ríkisskattstjóra 21.11.2024 19:07:33

Lög nr. 134/1993 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=134.1993)
Ξ Valmynd

Lög
nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald.*1)

*1)Sbr. lög nr. 81/1996, 129/2004, 21/2009 og 124/2010

Lögin féllu úr gildi 1. janúar 2011, sbr. 3. gr. laga nr. 124/2010. Lögin halda þó gildi sínu vegna álagningar 2010 á einstaklinga og lögaðila vegna rekstrarársins 2009 og endurákvarðana vegna eldri gjaldára.

1. gr.

(1) Leggja skal 0,08% gjald, iðnaðarmálagjald, á allan iðnað í landinu eins og hann er skilgreindur í 2. gr. Skal gjaldstofn þess vera velta skv. 11. gr. laga um virðisaukaskatt að meðtalinni veltu sem undanþegin er virðisaukaskatti skv. 12. gr. þeirra laga.
[---]1)

(2) Um álagningu og innheimtu iðnaðarmálagjalds fer samkvæmt ákvæðum VIII.-XIV. kafla laga um tekjuskatt [---]2) eftir því sem við á.

(3) [---]3)

(4) Iðnaðarmálagjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn til þess myndast.

1)Sbr. 1. gr. laga nr. 81/1996. 2)Sbr. 102. gr. laga nr. 129/2004.  3)Sbr. 1. gr. laga nr. 124/2010.

2. gr.

(1) [Til iðnaðar telst öll starfsemi sem fellur undir atvinnugreinanúmer sem upp eru talin í viðauka við lög þessi.

(2) Undanþegin gjaldinu eru fyrirtæki sem að öllu leyti eru í eign opinberra aðila, svo og fyrirtæki sem stofnuð eru samkvæmt sérstökum lögum til að vera eign opinberra aðila að verulegu leyti nema annars sé getið í þeim lögum.]1)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 81/1996.

3. gr.

(1) [Iðnaðarmálagjald vegna rekstrarársins 2009 rennur í ríkissjóð. Tekjunum skal varið til verkefna á sviði menntunar og nýsköpunar í iðnaði eftir því sem nánar er ákveðið í fjárlögum.

(2) Iðnaðarmálagjald sem innheimtist eftir gildistöku laga þessara en var lagt á vegna rekstrarársins 2008 og fyrr rennur einnit í ríkissjóð og skal ráðstafað með saman hætti.]1)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 124/2010.

4. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi...

[Viðauki.

     Til iðnaðar samkvæmt 1. mgr. 2. gr. skulu teljast eftirtaldar atvinnugreinar samkvæmt Íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT2008:

     

05 Kolanám.
06 Vinnsla á hráolíu og jarðgasi. 
07 Málmnám og málmvinnsla. 
08 Nám og vinnsla annarra hráefna úr jörðu. 
09 Þjónusutstarfsemi við námuvinnslu.
Úr 10 Matvælaframleiðsla.
10.20.4  Framleiðsla lagmetis úr fiskafurðum, krabbadýrum og lindýrum. 
10.3 Vinnsla ávaxta og grænmetis. 
10.42 Framleiðsla á smjörlíki og svipaðri feiti til manneldis. 
10.6 Framleiðsla á kornvöru, mjölva og mjölvavöru. 
10.7 Framleiðsla á bakarís- og mjölkenndum vörum.
10.8 Framleiðsla á öðrum matvælum.
10.9 Fóðurframleiðsla. 
11 Framleiðsla á drykkjarvörum.
12 Framleiðsla á tóbaksvörum. 
13 Framleiðsla á textílvörum. 
14 Fatagerð. 
15 Framleiðsla á leðri og leðurvörum.
16 Framleiðsla á viði, viðarvörum og korki, önnur en húsgagnagerð; framleiðsla á vörum úr hálmi og fléttuefnum. 
17 Framleiðsla á pappír og pappírsvöru.
18 Prentun og fjölföldun upptekins efnis. Þó ekki 18.20.0, fjölföldun upptekins efnis.
19 Framleiðsla á koksi og hreinsuðum olíuvörum.  
20 Framleiðsla á efnum og efnavörum. 
21 Framleiðsla á lyfjum og efnum til lyfjagerðar. 
22 Framleiðsla á gúmmí- og plastvörum. 
23 Framleiðsla á vörum úr málmlausum steinefnum. 
24 Framleiðsla málma.
25 Framleiðsla á málmvörum, að undanskildum vélum og búnaði. 
26 Framleiðsla á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum. 
27 Framleiðsla á rafbúnaði og heimilistækjum. 
28 Framleiðslá á öðrum ótöldum vélum og tækjum. 
29 Framleiðsla á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum. 
30 Framleiðsla annarra farartækja. 
31 Framleiðsla á húsgögnum og innréttingum.
32 Framleiðsla, ót.a.  
33 Viðgerðir og uppsetning vélbúnaðar og tækja.  
Úr 38 Sorphirða, meðhöndlun og förgun sorps; endurnýting efnis.
38.3 Endurnýting efnis.
41 Bygging húsnæðis; þróun byggingarverkefna. Þó ekki 41.10.0, þróun byggingarverkefna.
42 Mannvirkjagerð.
43 Sérhæfð byggingarstarfsemi.
Úr 45 Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum.  
45.2 Bílaviðgerðir og viðhald.
Úr 58 Útgáfustarfsemi. 
58.2 Hugbúnaðarútgáfa. 
62 Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni. 
Úr 63 Starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu.
63.1 Gagnavinnsla, hýsing og tengd starfsemi, vefgáttir.
Úr 74 Önnur sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.
74.2 Ljósmyndaþjónusta
95 Viðgerðir á tölvum og hlutum til einka- og heimilisnota.
Úr 96 Önnur þjónustustarfsemi.
96.02 Hárgreiðslu- og snyrtistofur.]1)

1)Sbr. 1. gr. laga nr. 21/2009.

Fara efst á síðuna ⇑