Skattalagasafn ríkisskattstjóra 27.4.2024 09:09:50

Lög nr. 22/2006 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=22.2006.0)
Ξ Valmynd

Úr lögum
nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna.*1)

*1)Sbr. lög nr. 158/2007, 162/2010, 126/2011 og 150/2019.

[30. gr.]1)
Skuldajöfnuður.

(1) Hafi foreldri fengið hærri greiðslur en því bar samkvæmt lögum þessum er heimilt að skuldajafna ofgreiddum greiðslum á móti inneign foreldris vegna ofgreiddra skatta, barnabóta og vaxtabóta samkvæmt  lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt. [Ráðherra er fer með tekjuöflun ríkisins]3) skal setja í reglugerð nánari reglur um skuldajöfnun og forgangsröð.

(2) Um innheimtu ofgreidds fjár samkvæmt lögum þessum fer skv. [3. gr. laga nr. um innheimtu opinberra skatta og gjalda]4). [Ráðherra]2) getur þó falið sérstökum innheimtuaðila að annast innheimtu.

1)Sbr. 18. gr. laga nr. 158/2007.  2)Sbr. 31. gr. laga nr. 162/2010. 3)Sbr. 415. gr. laga nr. 126/20114)Sbr. 22. gr. laga nr. 150/2019.

 

Fara efst á síðuna ⇑