Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.4.2024 06:53:53

Reglugerð nr. 192/1993, kafli 2 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=192.1993.2)
Ξ Valmynd

II. KAFLI
Innkaup sem ekki varða eingöngu sölu á skattskyldri vöru eða þjónustu.

Blönduð starfsemi.
3. gr.

(1) Aðili, sem hefur með höndum blandaða starfsemi, þ.e. starfsemi sem er að hluta virðisaukaskattsskyld en að hluta undanþegin skattskyldu, sbr. 2. gr. laga nr. 50/1988, með síðari breytingum, getur talið til innskatts þann virðisaukaskatt sem fellur á kaup hans á vörum og þjónustu, eftir því sem nánar er ákveðið í 4.-5. gr. reglugerðar þessarar, sbr. þó sérreglur um ýmis innkaup í 7.-9. gr.

(2) [Aðili sem rekur skattskylda gistiþjónustu hluta úr ári og fasteignaleigu hluta úr ári telst vera með blandaða starfsemi í skilningi 1. mgr., enda hafi hann með höndum sölu á skattskyldri gistiþjónustu í fimm mánuði á ári eða skemur.]1)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 306/1994.
 

4. gr.

(1) Að teknu tilliti til annarra ákvæða reglugerðar þessarar er aðila með blandaða starfsemi heimilt að telja að fullu til innskatts virðisaukaskatt af vörum og þjónustu sem eingöngu er keypt til nota við hinn skattskylda hluta starfseminnar.

(2) Óheimilt er að telja til innskatts virðisaukaskatt af vörum og þjónustu sem eingöngu varðar hinn skattfrjálsa hluta starfsemi aðila með blandaða starfsemi.
 

5. gr.

(1) Virðisaukaskatt af aðkeyptum rekstrarfjármunum, vörum og þjónustu, sem keypt er til nota bæði vegna skattskylds þáttar í starfsemi aðila og skattfrjáls þáttar (blönduð not), er heimilt að telja til innskatts í sama hlutfalli og sala skattskyldrar vöru og þjónustu (án virðisaukaskatts) hvers reikningsárs er af heildarveltu ársins. Við þennan útreikning skal ekki taka tillit til sölu rekstrarfjármuna o.fl., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 50/1988.

(2) Innan hvers reikningsárs má nota hlutfallstölu næstliðins reikningsárs við útreikning innskatts. Við skil vegna síðasta tímabils hvers árs skal fara fram afstemming á innskattsfrádrætti liðins árs. Á fyrsta ári virðisaukaskattsskyldrar starfsemi skal hlutfallstalan reiknuð til bráðabirgða fyrir hvert einstakt uppgjörstímabil, en endanlegt uppgjör fari fram við skil vegna síðasta tímabils ársins.

(3) [Skatturinn]1) gefur út sérstök eyðublöð sem nota skal við afstemmningu skv. 2. mgr.

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 1253/2020.
 

Eigin not.
6. gr.

(1) Nú eru innkaup skattaðila bæði vegna sölu hans á skattskyldum vörum og þjónustu og til einkanota eða annarra nota sem ekki varða rekstur hans, og má þá telja virðisaukaskatt af slíkum innkaupum til innskatts að því leyti sem þau teljast varða virðisaukaskattsskyldan rekstur.

(2) [Ríkisskattstjóri]1) skal taka mið af þeim reglum og þeirri framkvæmd sem mótast hefur við tekjuskattsálagningu þegar hann leggur mat á hvort innkaupum sé réttilega skipt milli skattskylds reksturs og einkanota.
1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1143/2014.
 

Sérreglur um fasteignir og ökutæki.
7. gr.

(1) Við nýbyggingu húsnæðis, þ.m.t. viðbyggingu, sem að sérgreindum hluta (ákveðin herbergi eða hæð í húsi) er ætlað til nota fyrir skráða starfsemi en að öðru leyti ætlað til nota sem ekki hefur í för með sér rétt til frádráttar innskatts, má skattaðili telja virðisaukaskatt af samtals kostnaði við byggingarframkvæmdir til innskatts í sama hlutfalli og byggingarkostnaður þess hluta sem byggður er til nota fyrir skráða starfsemi er af heildarbyggingarkostnaði. Ef gæði einstakra hluta húsnæðis, sem nýttir eru á mismunandi hátt, eru sambærileg, er heimilt að skipta skattinum í því hlutfalli sem flatarmál þess hluta húsnæðisins sem notað er fyrir skattskyldan rekstur er af heildarflatarmáli húsnæðisins.

(2) Húsnæði, sem leigt er út, telst ekki notað fyrir skattskyldan rekstur nema leigusali hafi skráð sig frjálsri skráningu skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 50/1988. Um íbúðarhúsnæði fer skv. 2. tölul. 2. gr. reglugerðar þessarar.

(3) Virðisaukaskatt vegna endurbóta, viðgerða og viðhalds þess húsnæðis sem um ræðir í 1. mgr. má telja til innskatts að því leyti sem framkvæmdir varða beinlínis þann hluta húsnæðis sem notaður er fyrir skattskyldan rekstur aðila. Skilyrði er að seljandi vinnu eða þjónustu taki fram á sölureikningi sínum við hvaða hluta húsnæðis hafi verið unnið.

(4) Varði framkvæmdir við endurbætur, viðgerðir og viðhald ekki beinlínis ákveðinn hluta húsnæðis, t.d. viðhald utanhúss eða við sameiginlegt lagnakerfi, má skattaðili miða útreikning innskatts við það hlutfall sem flatarmál þess hluta húsnæðis sem notað er vegna skattskyldrar starfsemi hans er af heildarflatarmáli húsnæðisins.
 

8. gr.

     Nú notar skattaðili sama hluta húsnæðis jöfnum höndum fyrir skattskylda starfsemi og skattfrjálsa og er þá heimilt að miða útreikning innskatts við meginreglur 3.-6. gr. að því leyti sem ekki er unnt að skipta virðisaukaskatti eftir reglum 7. gr. Við útreikning innskatts vegna lagna, viðgerða og viðhalds annarra fasteigna en húsbygginga, þ.m.t. vegna lóðaframkvæmda, skal fara eftir ákvæðum 3.-6. gr.
 

9. gr.

(1) [[Ákvæði 5. og 6. gr. taka ekki til virðisaukaskatts vegna öflunar, þ.m.t. leigu, eftirtalinna ökutækja:

1. Sendi- og vörubifreiða með leyfða heildarþyngd 5 000 kg eða minna, sem uppfylla eftirtalin skilyrði:

  1. Skráð flutningsgeta í fólksrými skal vera minni en helmingur af skráðri burðargetu bifreiðar. Miða skal við að hver maður vegi 75 kg.
  2. Farmrými, opið eða lokað, aftan við öftustu brún sætis eða milliþils skal vera a.m.k. 1 700 mm að hleðsludyrum eða hlera. Sé það styttra skal það þó vera lengra en fólksrýmið, mælt frá miðri framrúðu.
  3. Í farmrými mega hvorki vera sæti né annar búnaður til farþegaflutninga. Sé fólks- eða hópbifreið breytt í sendi- eða vörubifreið skulu með varanlegum hætti fjarlægð úr farmrými sæti ásamt sætisfestingum og öðrum búnaði til fólksflutninga.

[2. [Fólksbifreiða sem notaðar eru til farþegaflutninga í ferðaþjónustu samkvæmt sérstöku leyfi Samgöngustofu.]5)]4)
3. Bifhjóla.
4. Torfærutækja, þ.e. vélsleða, tví-, þrí-, fjór-, fimm- og sexhjóla.
5. Loftpúðatækja.

(2) Óheimilt er að telja til innskatts virðisaukaskatt vegna öflunar, þ.m.t. leigu, framangreindra ökutækja nema þau séu eingöngu notuð í virðisaukaskattsskyldri starfsemi, þ.e. vegna sölu á vörum og skattskyldri þjónustu. Öll önnur notkun þeirra, svo sem einkanot eiganda rekstrar og starfsmanna hans og notkun í þágu starfsemi er fellur utan skattskyldusviðs virðisaukaskatts, veldur því að óheimilt er að telja til innskatts virðisaukaskatt af öflun ökutækjanna. Akstur eiganda eða starfsmanns til og frá heimili telst í öllum tilvikum til einkanota í þessu sambandi og það eins þótt aksturinn sé jafnframt í þágu starfseminnar eða á annan hátt að kröfu rekstraraðila.

(3) Frá ákvæði 2. mgr. er sú eina undantekning að eiganda rekstrar eða starfsmanni hans eru heimil takmörkuð einkanot, án þess að það komi í veg fyrir að til innskatts sé talinn virðisaukaskattur af öflun bifreiðar skv. 1. tölul. 1. mgr. Í hugtakinu takmörkuð einkanot felst eingöngu akstur milli heimilis þess sem afnotaréttinn hefur og starfstöðvar fyrirtækis. Eftirtöldum skilyrðum undantekningarinnar þarf að vera fullnægt:

  1. Afnotaréttur eiganda eða starfsmanns hans sé að fullu talinn til virðisaukaskattsskyldrar veltu á skattverði sem er það sama og hlunnindamat ríkisskattstjóra, vegna takmarkaðra afnota launþega af bifreið launagreiðanda síns, í skattmati vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á hverjum tíma.
  2. Áður en einkanot hefjast, eða breytingar verða á slíkum notum, tilkynni rekstraraðili til [Skattsins]3) 5) um hinn fyrirhugaða afnotarétt, þ.m.t. hver njóta muni, í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
  3. Við afdrátt og skil staðgreiðslu opinberra gjalda telji rekstraraðili (launagreiðandi) starfsmanni til launa þau hlunnindi er í afnotaréttinum felast.

(4) Skilyrði þess að telja megi til innskatts virðisaukaskatt af öflun, þ.m.t. leigu, bifreiðar skv. [1. [---]5)  tölul.]4) 1. mgr. er að hún sé búin sérstökum skráningarmerkjum með rauðum stöfum á hvítum grunni, sbr. [19. gr. reglugerðar nr. 751/2003]3), um skráningu ökutækja með síðari breytingum*1). Skilyrðið tekur þó ekki til eignarleigufyrirtækja og bílaleigufyrirtækja að því er varðar [bifreiðar]5) sem þau selja á leigu í virðisaukaskattsskyldri starfsemi sinni.

(5) Hafi skattaðili talið til innskatts virðisaukaskatt af öflun ökutækis slíks sem um ræðir í 1. mgr., en tekur það síðar til notkunar sem heimilar honum minni eða engan frádráttarrétt, skal hann tilkynna [Skattinum]3) 5) þar um áður en notkun er breytt og láta fjarlægja hin sérstöku skráningarmerki sem um ræðir í 4. mgr.

(6) Komi í ljós að skilyrði þessarar greinar til færslu innskatts af öflun ökutækis hafa ekki verið haldin, þ.m.t. skilyrði um tilkynningar, er [ríkisskattstjóra]3) rétt að fella niður innskatt af öflun viðkomandi bifreiðar.

(7) Ákvæði 3.-6. gr. gilda um útreikning innskatts vegna reksturs þeirra ökutækja sem um ræðir í 1. mgr.]1)]2)

1)Sbr. 1. - 3. gr. reglugerðar nr. 532/1993. 2)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 18/2001. 3)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 1143/20144)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1237/20155)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1253/2020*1)Nú 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003.

 

[9. gr. A

(1) Aðilar sem kaupa notuð ökutæki til niðurrifs í atvinnuskyni af óskattskyldum aðilum geta reiknað sér innskatt sem nemur [19,35%]2)3) af kaupverði ökutækisins þegar seljanda ber ekki að innheimta virðisaukaskatt af sölunni. Innkaupin skulu færð á sérstakan gjaldareikning í bókhaldi.

(2) Í bókhaldi eða fylgigögnum þess skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Fast númer ökutækis, sbr. reglugerð um skráningu ökutækja, nr. [751/2003]3), með síðari breytingum.
  2. Dagsetning viðskiptanna.
  3. Lýsing á hinu keypta.
  4. Kaupverð.
  5. Nafn, heimilisfang og kennitala seljanda.

(3) Sölureikning, kaupsamning og afsal skal varðveita sem og önnur bókhaldsgögn sem varða viðskiptin.]1)

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 306/1994. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1069/20093)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1143/2014.
 

Um innskatt ríkisstofnana, sveitarfélaga o.fl.
10. gr.

(1) [Þrátt fyrir ákvæði þessa kafla mega þeir virðisaukaskattsskyldu aðilar, sem undanþegnir eru tekjuskatti og eignarskatti skv. 4. gr. laga nr. [90/2003]2), einungis telja til innskatts virðisaukaskatt af þeim aðföngum og rekstrarfjármunum sem eingöngu varða sölu á skattskyldri vöru eða þjónustu. Hið sama á við um innskatt af skattskyldum eigin notum þeirra er greinir í 2. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

(2) Þó er opinberum þjónustufyrirtækjum, sem selja skattskyldar vörur eða þjónustu til annarra og skattskyld eru skv. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, heimilt að færa til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum og rekstrarfjármunum, öðrum en fasteignum, að því leyti sem þau teljast varða virðisaukaskattsskyldan rekstur þeirra, með sama hætti og greinir í 6. gr. reglugerðar þessarar. Skilyrði slíks hlutfallslegs innskattsfrádráttar er að hinn virðisaukaskattsskyldi þáttur í starfsemi fyrirtækisins sé fjárhagslega og bókhaldslega skýrt aðgreindur frá öðrum þáttum í starfsemi þess.]1)

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 18/2001. 2)Sbr. 4. gr. relugerðar nr. 1143/2014.
 

Fara efst á síðuna ⇑