Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 06:26:05

Reglugerð nr. 1123/2017 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=1123.2017.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð

nr. 1123/2017, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2017 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr.

Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2017 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr.

Úthlutun fjárframlags árið 2017.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2017 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2016 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2016 samtals kr. 1.255.856.982.859 og er áætlað fjárframlag ársins 2016 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.081.535.194 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

40.243.937

0,986%

Birta lífeyrissjóður

153.853.469

3,770%

Eftirlaunasjóður FÍA

9.999.761

0,245%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

2.081.583

0,051%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH

5.469.257

0,134%

Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands

653.046

0,016%

Festa lífeyrissjóður

414.459.491

10,155%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

158.445.196

3,882%

Gildi lífeyrissjóður

1.517.780.085

37,187%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

25.019.811

0,613%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA

2.673.406

0,066%

Lífeyrissjóður bankamanna-aldur

18.489.354

0,453%

Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall

16.836.333

0,413%

Lífeyrissjóður bænda

15.020.050

0,368%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

26.652.425

0,653%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN

346.930

0,009%

Lífeyrissjóður Rangæinga

27.489.140

0,674%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarkaupstaðar

3.387.674

0,083%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

4.816.212

0,118%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH

1.693.837

0,042%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

2.979.521

0,073%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

22.815.782

0,559%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

215.300.981

5,275%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

125.241.907

3,069%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

82.140.896

2,013%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

16.489.402

0,404%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV

2.265.252

0,056%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

1.510.168

0,037%

Lífsverk lífeyrissjóður

6.673.310

0,164%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

553.456.172

13,560%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

88.752.983

2,175%

Stapi lífeyrissjóður

439.234.410

10,762%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

79.263.413

1,942%

Samtals

4.081.535.194

100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2018, í október 2018, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2017 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2016.

4. gr.

Leiðrétting fjárframlags ársins 2016.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2015 er kr. 1.121.300.877.550. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2015 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1120/2016, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2016 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2015 er kr. 8.365.023.552 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2016 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2016, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1120/2016, nemur því samtals kr. 27.186.327 til hækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2017 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. hækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður

Fjárhæð kr.

Hlutfall

Almenni lífeyrissjóðurinn

279.747

1,029%

Birta lífeyrissjóður

1.315.954

4,841%

Eftirlaunasjóður FÍA

82.510

0,304%

Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar

4.214

0,016%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH

33.439

0,123%

Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands

6.389

0,024%

Festa lífeyrissjóður

2.656.920

9,773%

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

1.247.445

4,590%

Gildi lífeyrissjóður

9.786.942

36,000%

Íslenski lífeyrissjóðurinn

123.154

0,453%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA

17.399

0,064%

Lífeyrissjóður bankamanna-aldur

135.116

0,497%

Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall

121.387

0,447%

Lífeyrissjóður bænda

108.337

0,399%

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga

184.323

0,678%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN

3.670

0,014%

Lífeyrissjóður Rangæinga

184.051

0,667%

Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarkaupstaðar

24.196

0,089%

Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf.

23.516

0,087%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH

10.331

0,038%

Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar

18.215

0,067%

Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar

179.022

0,660%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A

1.508.026

5,547%

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B

823.746

3,030%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A

497.646

1,831%

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V

157.681

0,580%

Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV

18.894

0,070%

Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands

12.506

0,046%

Lífsverk lífeyrissjóður

64.296

0,237%

Lífeyrissjóður verslunarmanna

3.592.401

13,214%

Lífeyrissjóður Vestmannaeyja

596.876

2,196%

Stapi lífeyrissjóður

2.845.865

10,468%

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

522.113

1,921%

Samtals

27.186.327

100,000%

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1120/2016 sama efnis.

Fara efst á síðuna ⇑