Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 06:36:31

Reglugerð nr. 37/1989 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=37.1989.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 37/1989, um greiðslur samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.*1)

*1)Sbr. reglugerðir nr. 37/1993, 109/1996, 626/1996, 757/1997 og 588/2008.
 

1. gr.

Þeir menn, sem njóta annarra tekna en launatekna og vilja komast hjá greiðslu [álags]1) á tekjuskatt og útsvar af þessum tekjum, sbr. 121. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt*1), með síðari breytingum, skulu greiða fjárhæð sem ætla má að nægi til lúkningar væntanlegri álagningu tekjuskatts og útsvars á þessar tekjur. Greiðsla þessi skal innt af hendi eigi síðar en 31. janúar næstan á eftir staðgreiðsluári. Greiðslan skal bætast við staðgreiðslu þá sem maðurinn innti af hendi eða innt hefur verið af hendi fyrir hann, á staðgreiðsluári og færast á staðgreiðsluskrá áður en greiðslustaða hans er ákvörðuð skv. 34. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum.

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 109/1996. *1)Nú 122. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

2. gr.

Með greiðslu samkvæmt 1. gr. skal fylgja sérstök skilagrein þar sem fram kemur m.a. nafn og kennitala þess aðila sem greitt er fyrir ásamt upplýsingum um hvers vegna greiðslan er innt af hendi. Skilagreinar er unnt að fá hjá skattstjórum og innheimtumönnum staðgreiðslu.
 

3. gr.

(1) [Maður skal skila greiðslu samkvæmt reglugerð þessari ásamt skilagrein í því umdæmi þar sem hann á lögheimili.

(2) Eftirtaldir aðilar eru innheimtumenn staðgreiðslu og taka við staðgreiðslufé og skilagreinum ef þær eru ekki inntar af hendi í bönkum, sparisjóðum eða pósthúsum með greiðslu inn á gíróreikning:

Sýslumaðurinn á Akranesi. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn í Borgarnesi. Sýslumaðurinn á Neskaupsstað.*1)
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi. Sýslumaðurinn á Eskifirði.
Sýslumaðurinní Búðardal. Sýslumaðurinn á Höfn í Hornafirði.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði. Sýslumaðurinn í Vík í Mýrdal.
Sýslumaðurinn á Ísafirði. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli.
Sýslumaðurinn á Hólmavík. Sýslumaðurinn á Selfossi.
Sýslumaðurinn á Blönduósi. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki. Sýslumaðurinn í Kópavogi.
Sýslumaðurinn á Siglufirði. Sýslumaðurinn í Keflavík.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði.*2) [---]2)
Sýslumaðurinn á Akureyri. Tollstjórinn í Reykjavík.]1) *3)
Sýslumaðurinn á Húsavík.  

1) Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 757/1997. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 588/2008*1)Embættið á Neskaupstað var sameinað embættinu á Eskifirði þann 1. janúar árið 2000. *2)Embættið á Ólafsfirði var sameinað embættinu á Siglufirði þann 1. janúar árið 2007. *3)Ákvæðinu hefur áður verið breytt með 1. gr. reglugerðar nr. 626/1996 og 2. gr. reglugerðar nr. 109/1996.

4. gr.

(1) Greiðsla ásamt skilagrein þarf að hafa borist innheimtumanni sem um getur í 2. mgr. 3. gr. eigi síðar en 31. janúar næstan á eftir staðgreiðsluári. Dagsetning á greiðslukvittun innheimtumanns staðgreiðslu er sönnun fyrir því að skil hafi verið gerð á réttum tíma.

(2) Greiðslur sem berast eftir 31. janúar munu ekki verða teknar sem greiðsla samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, og verða því ekki færðar á staðgreiðsluskrá áður en greiðslustaða er ákvörðuð samkvæmt 34. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum.
 

5. gr.

[Við mismun, sem í ljós kemur á álögðum tekjuskatti manna og staðgreiðslu samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 34. gr. þeirra laga, og stafar af of lágri staðgreiðslu, skal bæta 2,5% álagi. Við mismun, sem rætur á að rekja til of hárrar staðgreiðslu skal með sama hætti bæta 2,5% álagi.]1)

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 109/1996.
 

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 41. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum og heimild í 119. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt*1), með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

*1)Nú 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. 
 

Fara efst á síðuna ⇑