Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 02:56:46

Reglugerð nr. 297/2003 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=297.2003.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 297/2003, um arðsfrádrátt.*1)

*1)Sbr. reglugerð nr. 53/2008.

1. gr.

Frá tekjum hlutafélaga, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. [90/2003, um tekjuskatt]1), og félaga og samlaga sem falla undir [2. tölul. 1. mgr. 2. gr.]1) sömu laga má draga þá fjárhæð sem þessir lögaðilar hafa fengið greidda í arð, skv. 4. tölul. C-liðar 7. gr. laganna, af hlutum og hlutabréfum í félögum, er greinir í 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna [, sbr. XII kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög, og laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Sama gildir um fjárhæð sem félög í sömu félagaformum, sem skattskyld eru skv. 7. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eru heimilisföst í öðru aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa fengið greidda í arð.]1)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 53/2008.

2. gr.

(1) Ákvæði 1. gr. skal einnig taka til arðs frá hlutafélögum sem skráð eru erlendis ef það félag sem arðinn fær sýnir fram á að hagnaður hins erlenda félags hafi verið skattlagður með sambærilegum hætti og gert er hér á landi.

(2) Til þess að hagnaður erlends félags teljist skattlagður með sambærilegum hætti þurfa eftir­farandi skilyrði að vera uppfyllt:

  1. Það skatthlutfall sem lagt er á hagnað erlends félags skal eigi vera lægra en almennt skatt­hlutfall í einhverju aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París (OECD) [eða aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins]1), hvort sem skatturinn rennur til ríkis, fylkis eða sveitarfélags.
     
  2. Hagnaður félagsins skal hafa verið skattlagður í heimilisfestisríki þess með tekju­skatti en ekki einvörðungu lögð á félagið tiltekin gjöld sem taka ekki mið af tekjum þess.
     
  3. Skattareglur heimilisfestisríkis félagsins heimili eigi frádrátt frá tekjum vegna út­greidds arðs.
     
  4. Hagnaður, sem skattstofn, hjá erlenda félaginu hafi verið ákvarðaður á grundvelli sömu meginsjónarmiða og liggja að baki ákvörðun hagnaðar samkvæmt lögum nr. [90/2003, um tekjuskatt]1).

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 53/2008.
 

3. gr.

Arður frá félögum sem hafa starfsleyfi alþjóðlegs viðskiptafélags sbr. lög nr. 31/1999, um alþjóðleg viðskiptafélög*1), er ekki frádráttarbær.

*1)Lögin féllu úr gildi 1. janúar 2008.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 9. tölul. 31. gr. laga nr. 75/1981, um tekju­skatt og eignarskatt*1), með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

*1)Nú lög nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Fara efst á síðuna ⇑