Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 06:35:23

Reglugerð nr. 686/2015 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=686.2015.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 686/2015, um próf til viðurkenningar bókara

 1. gr. 

(1) Prófnefnd viðurkenndra bókara hefur umsjón með prófi til viðurkenningar bókara sam­kvæmt 43. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald.

(2) Ráðherra skipar þriggja manna prófnefnd til fjögurra ára í senn. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, sbr. 26. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af Félagi viðurkenndra bókara. Einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skal skipa með sama hætti.

(3) Ákvarðanir prófnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.

(4) Prófnefnd skal rita fundargerðir. Í þær skal færa ákvarðanir nefndarinnar og niðurstöður prófa.

2. gr.

(1) Próf skulu að jafnaði haldin einu sinni ár hvert og skal auglýsa þau í fjölmiðlum og á heima­síðu ráðuneytisins með a.m.k. átta vikna fyrirvara. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k. 30 þátttakendur hafi skráð sig í próf.

(2) Ráðherra ákveður prófgjöld að fenginni tillögu prófnefndar. Skulu þátttakendur greiða próf­gjald fyrir þau tímamörk sem prófnefnd ákveður. Upplýsingar um fjárhæðir próf­gjalda skulu liggja fyrir í síðasta lagi fjórum vikum fyrir próf. Miða skal við að tekjur af gjald­inu standi undir kostnaði við prófið.

(3) Gjald skv. 2. mgr. er endurkræft ef af prófi verður ekki.

(4) Prófnefnd ákveður hvort haldið skal sjúkra- og upptökupróf gegn aukaprófgjaldi. Sjúkra- og upptökupróf skulu auglýst sérstaklega á heimasíðu ráðuneytisins. Slík próf skulu aðeins haldin ef þátttakendur eru a.m.k. 10.
 

3. gr.

(1) Prófnefnd tekur ákvörðun um prófsefni það sem prófað er úr. Prófið skiptist í þrjá jafn­væga hluta; tvo skriflega hluta og eitt raunhæft verkefni. Prófnefnd semur prófefnis­lýsingu fyrir hvern hluta og skal hún liggja fyrir á heimasíðu ráðuneytisins þegar próf eru auglýst samkvæmt 1. mgr. 2. gr.

(2) Við ákvörðun skv. 1. mgr. skal prófnefnd leggja til grundvallar að efni hvers hluta krefjist þekkingar á eftirtöldum sviðum: 

I. Reikningshald:
  a) Grundvallarreglur reikningshalds
  b) Lög og reikningsskilareglur
  c) Ársreikningsgerð
     
II. Skattskil og upplýsingatækni:
  a) Skattskil einstaklinga og lítilla fyrirtækja
  b) Lög um tekjuskatt og virðisaukaskatt
  c) Upplýsingakerfi og öryggisþættir
     
III. Raunhæft verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta leyst með tölvu:
  a) Prófjöfnuður
  b) Uppgjör, þ.m.t. virðisaukaskatts
  c) Uppstilling ársreiknings
  d) Útreikningur á tekjuskatti

 

4. gr.

(1) Prófnefnd tekur hverju sinni ákvörðun um fjölda sjálfstæðra úrlausnarefna, vægi og tímalengd prófhluta.

(2) Prófnefnd er heimilt að fela óháðum aðilum að semja prófverkefni, fara yfir og gefa einkunn fyrir prófúrlausn. Prófverkefni skulu samin af einstökum prófnefndarmönnum eða þeim, sem prófnefnd felur það starf. Verkefnin og vægi úrlausnarefna innan þeirra, skulu lögð fyrir prófnefnd til samþykktar.

(3) Þá er prófnefnd heimilt að semja við óháðan aðila um framkvæmd prófa.

5. gr.

(1) Prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum.

(2) Við mat á úrlausnum skal gefin einkunn fyrir hvern prófhluta.

(3) Einkunnir skulu gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0-10. Til þess að standast fulln­aðar­próf þarf prófmaður að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr öllum prófhlutum. Lágmarks­einkunn til að standast próf er 5,0 í hverjum hluta. Ef prófmaður nær ekki tilskil­inni lágmarkseinkunn er honum heimilt að þreyta próf að nýju þegar próf eru haldin skv. 2. gr.

(4) Einkunnir skulu birtar prófmönnum innan 30 daga frá því að prófi lýkur.

(5) Prófmaður á rétt á því að sjá prófúrlausn sína ef hann æskir þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Próftaka er heimilt að skjóta mati á úrlausn sinni til prófnefndar til endur­mats innan tveggja mánaða frá birtingu einkunnar. Prófnefnd getur skipað próf­dómara til að endurskoða úrlausn próftaka.

(6) Ákvörðun prófnefndar um úrlausn er endanleg.

(7) Til að standast próf til viðurkenningar bókara skal próftaki hafa lokið öllum prófhlutum með fullnægjandi árangri innan þriggja ára frá því hann lauk fyrsta prófinu.

(8) Prófnefnd skal afhenda þeim prófmönnum sem standast próf skírteini því til staðfestingar.

6. gr.

 Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 535/2012, um próf fyrir viðurkennda bókara.

Fara efst á síðuna ⇑