Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 07:04:37

Reglugerð nr. 555/2004 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=555.2004.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 555/2004, um greiðslu barnabóta.*1)

*1)Sbr. reglugerð nr. 7/2005, 346/2006, 249/2008, 1152/2008, 55/2016 og 565/2018.

 1. gr.
Almennt.

Ríkissjóður skal greiða barnabætur vegna hvers barns innan [18]1) ára aldurs til framfæranda barnsins eins og nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 249/2008.
 

2. gr.
Réttur til barnabóta.

(1) Greiða skal barnabætur með hverju barni innan [18]1) ára aldurs á tekjuárinu, sem heimilis­fast er hér á landi og er á framfæri þeirra manna sem skattskyldir eru skv. 1. gr. laga nr. 90/2003.

(2) Framfærandi barns samkvæmt 1. mgr. telst sá sem hefur barnið hjá sér og annast fram­færslu þess í lok tekjuárs. Sá er greiðir meðlag með barni telst ekki framfærandi í þessu sam­bandi. Skilyrði 1. málsl. eru uppfyllt þótt barnið dvelji tímabundið fjarri raunverulegu heimili, t.d. vegna náms.

(3) Hjón, sem skattlögð eru skv. 62. gr. laga nr. 90/2003, teljast bæði framfærendur og skipt­ast barnabætur milli þeirra til helminga. Hið sama gildir um sambúðarfólk sem uppfyllir í lok tekjuárs skilyrði 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, enda þótt það óski ekki eftir að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein. [Að sama skapi teljast þeir sem halda heimili saman ásamt barni sínu framfærendur í skilningi ákvæðisins þótt skilyrði til skráningar á sambúð séu ekki uppfyllt. Við slíkar aðstæður skal ákvarða barnabætur eins og um hjón sé að ræða.]2)

(4) Sé svo ástatt að einungis annað hjóna er skattskylt hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, skal reikna því fullar barnabætur vegna þeirra barna hjónanna sem dveljast hér á landi eftir þeim reglum sem gilda um hjón enda liggi fyrir upplýsingar um tekjur beggja ásamt upplýs­ingum um fengnar barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis vegna sömu barna.

(5) [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar má ákvarða barnabætur með börnum sem ekki eru heimilisföst hér á landi en eru á framfæri ríkisborgara hins Evrópska efnahagssvæðis, aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópur eða Færeyjum, enda sé framfærandi skattskyldur hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, eða tryggður á grundvelli 12., 13. eða 14. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar. Sá sem rétt kann að eiga til barnabóta með börnum sem ekki hafa heimilisfesti á Íslandi skal sækja um bætur til [ríkisskattstjóra]2) og leggja fram upplýsingar frá bærum stjórnvöldum um tekjur framfærenda ásamt upplýsingum um barnabætur eða hliðstæðar greiðslur vegna sömu barna sem greiddar hafa verið erlendis.]1)

(6) Fyrir barn sem öðlast heimilisfesti hér á landi á tekjuárinu skal einungis greiða barna­bætur í hlutfalli við dvalartíma þess hér á landi á því ári. Þannig skal fjárhæð barnabóta skv. 3. gr. og skerðingarmörk vegna tekna sbr. 4. gr. ákvarðast í hlutfalli við dvalartímann.

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 249/2008. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 55/2016.
 

3. gr.
Fjárhæð barnabóta.

[(1) Greiða skal tekjutengdar barnabætur með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu sem árlega skulu nema 199.839 kr. með fyrsta barni en 237.949 kr. með hverju barni umfram eitt. Tekjutengdar barnabætur með börnum einstæðra foreldra skulu vera 332.950 kr. með fyrsta barni en 341.541 kr. með hverju barni umfram eitt.

(2) Til viðbótar barnabótum skv. 1. mgr. skal greiða tekjutengdar barnabætur með öllum börnum yngri en sjö ára á tekjuárinu. Skulu þær árlega nema 119.300 kr.]1)

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 55/2016.

4. gr.
Skerðing barnabóta vegna tekna.

(1) Barnabætur samkvæmt [3.]2) gr. skal skerða í jöfnu hlutfalli við tekjuskattsstofn umfram [4.800.000]1)2) kr. hjá hjónum og umfram [2.400.000]1)2) kr. hjá einstæðu foreldri.

(2) Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla laga nr. 90/2003, [---]2), að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003 og frádráttar skv. 31. gr. laga nr. 90/2003. [Þá skulu tekjur sem maki framfæranda barns skv. 1. málsl. 7. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, aflar erlendis reiknast með tekjuskattsstofni samkvæmt þessari grein.]1) [Skerðingarhlutfall skv. 1. mgr. 3. gr. skal vera 4% með einu barni, 6% með tveimur börnum og 8% með þremur börnum eða fleiri. Skerðingarhlutfall skv. 2. mgr. 3. gr. skal vera 4% með hverju barni.]2)

(3) Fjárhæð barnabóta skal skerða um þær barnabætur eða hliðstæðar bætur sem [greiddar hafa verið]1) erlendis frá á sama tekjuári vegna barnsins.

1)Sbr.4. gr. reglugerðar nr. 249/2008. 2)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 55/2016.
 

5. gr.
Ákvörðun barnabóta.

(1) [Barnabætur skulu ákveðnar á grundvelli skattframtals við álagningu, sbr. X. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Barnabætur sem eru ákvarðaðar lægri en 5.000 kr. á hvern framfæranda á grundvelli skattframtals falla niður. Úrskurður ríkisskattstjóra um fyrirframgreiðslu barnabóta skal vera endanleg úrlausn málsins á stjórnsýslustigi.]1)

(2) Barnabætur skulu greiddar með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en [1. júní]1)2) en síðari greiðslan eigi síðar en [1. október]1).

1)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 55/2016. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 565/2018.

 

6. gr.
Fyrirframgreiðsla barnabóta.

(1) Þar til álagning liggur fyrir, skv. 5. gr., skal ríkissjóður greiða fyrirfram upp í barnabætur ársins vegna barna sem voru yngri en [18]1) ára í árslok. Miða skal við fjölskyldustöðu fram­teljanda eins og hún er í árslok.

(2) Við útreikning á skerðingu skv. 4. gr. skal taka tillit til fyrirliggjandi upplýsinga um stað­greiðsluskyldar tekjur vegna síðustu tólf mánaða ásamt upplýsingum úr framtali fyrra árs, m.a. um tekjur utan staðgreiðslu og eignastöðu í árslok.

(3) Fyrirframgreiðsla skal nema 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum. Fyrri greiðslan skal fara fram eigi síðar en 1. febrúar en síðari greiðslan eigi síðar en 1. maí.

(4) Heimilt er framteljanda að sækja um breytingu á fyrirframgreiðslu til [ríkisskattstjóra]2) á grund­velli fyrirliggjandi framtals ef tekjur og eignir samkvæmt því framtali víkja að verulegu leyti frá þeim upplýsingum sem lagðar voru til grundvallar við ákvörðun fyrirframgreiðslunnar. [Ríkisskattstjóri]2) *1) skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn framteljanda nema að breytingin leiði til a.m.k. 25% hækkunar eða lækkunar á fyrirframgreiðslunni.

(5) Liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar að mati [skattstjóra]2) til að byggja ákvörðun barna­bóta á, t.d. þegar framtali hefur ekki verið skilað, er engin fyrirframgreiðsla ákvörðuð nema að fenginni sérstakri umsókn frá framteljanda.

(6) Fjársýsla ríkisins ávísar barnabótum til útborgunar.

1)Sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 249/20082)Sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 55/2016. *1)Í Stjórnartíðindum er tiltekið að gerðar séu breytingar á 1. málsl. 4. mgr. og 5. mgr. 6. gr. Væntanlega hefur láðst að tiltaka einnig 2. málsl. 4. mgr.
 

7. gr.
[Skuldajöfnun barnabóta.

[Barnabætur greiðast til framfæranda barns að því marki sem eftirstöðvum nemur þegar frá hafa verið dregnar fyrirframgreiddar barnabætur og ofgreiddar barnabætur]1) [Barnabótum verður ekki skuldajafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.]2)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1152/2008. 2)Sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 55/2016.

8. gr.
Leiðrétting barnabóta.

Komi í ljós að maður hefur ranglega notið barnabóta samkvæmt reglugerð þessari eða barnabætur hafi verið ákvarðaðar of háar skal [honum gert að endurgreiða þær að viðbættu 15% álagi]2). Um slíka leiðréttingu [ríkisskattstjóra]2) gilda ákvæði 95. gr. og 96. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt [---]1), eftir því sem við getur átt.

1)Sbr.7. gr. reglugerðar nr. 249/2008. 2)Sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 55/2016.
 

9. gr.
Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt , með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Með gildis­töku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 63/1999, um greiðslu barnabóta, með síðari breytingum.

Fara efst á síðuna ⇑