Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 10:51:33

Reglugerð nr. 591/1987 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=591.1987.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.*1)

*1)Sbr. reglugerðir nr. 564/1988, 330/1990, 70/1991, 490/1992, 682/1994, 395/1995, 456/1995, 677/1998, 500/2001, 914/2006 , 44/2007, 244/2013, og 1203/2016.

1. gr.

[Til staðgreiðsluskyldra launa, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, teljast, auk hvers konar endurgjalds fyrir vinnu, ökutækjastyrkir, hlunnindi, flutningspeningar, ferðapeningar, dagpeningar og aðrar starfstengdar greiðslur, aðrar en þær sem samkvæmt reglugerð þessari er heimilt að halda utan staðgreiðslu.]1)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 564/1988.

Greiðslur utan staðgreiðslu.
2. gr.

[Eftirtaldar greiðslur falla ekki undir staðgreiðslu:

  1. Ökutækjastyrkir sem greiddir eru samkvæmt sundurliðuðum gögnum, sbr. 3. gr. reglugerðar þessarar.

  2. Dagpeningar, ferðapeningar og hliðstæður ferða- og dvalarkostnaður sem greiddur er í samræmi við 6. gr. reglugerðar þessarar.

  3. Útfararstyrkir frá verkalýðsfélögum.

  4. Einkennisfatnaður sem launagreiðandi lætur launamanni í té.

  5. Vinningar í happdrætti, veðmáli og keppni.

  6. Risnufé sem greitt er launamanni samkvæmt reikningi frá þriðja aðila sem endurgreiðsla á risnukostnaði launamanns í þágu launagreiðanda. Séu framangreind skilyrði eigi uppfyllt skal reikna staðgreiðslu af greiddu risnufé.

  7. Ýmsar launagreiðslur sem eigi tengjast atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi launagreiðanda. Sem dæmi um slíkar greiðslur í einkaþágu greiðanda má nefna greiðslur fyrir hús- og heimilishjálp og svipuð persónubundin störf sem ekki fara fram úr [300.000 kr.]4) samtals á ári. Sama gildir um svipaðar greiðslur óskattskyldra aðila, t.d. húsfélaga, sem ekki fara fram úr [600.000 kr.]4) samtals á ári.

  8. Endurgjald sem maður skal reikna sér vegna starfs við sjálfstæða starfsemi sína ef starfsemin er svo óveruleg að reiknuð laun manns vegna slíkrar starfsemi verði eigi hærri, miðað við heilt ár, en [450.000 kr.]4)

  9. Reiknuð laun barna, sbr. 2. mgr. 1. tölul. A-liðs 7. gr. laga nr. [90/2003]3), um tekjuskatt [---]3), með síðari breytingum.

  10. Greiðslur höfundarlauna til Íslendinga búsettra hérlendis er fram fara samkvæmt lögum nr. 73/1972, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1987 með síðari breytingum, er ekki fari fram úr [600.000 kr.]4) á ári.

  11. Greiðslur til fatlaðra vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar samkv. lögum um málefni fatlaðra.

  12. Styrkir til fræðimanna, listamanna og vísindamanna sem veittir eru úr ríkissjóði, opinberum sjóðum, eða af opinberum stofnunum.

  13. Verðlaun sem veitt eru í viðurkenningarskyni.

  14. Starfsmenntunar- og vísindasjóðsstyrkir stéttarfélaga og annarra félagasamtaka til rannsókna, þróunarstarfa, endurmenntunar og sambærilegra verkefna.

  15. Launatekjur barna hjá sama launagreiðanda að hámarki fjárhæð skv. 2. mgr. [66.]3) gr. laga nr. [90/2003]3), um tekjuskatt [---]3), með síðari breytingum.]1) *1)

  16. [Styrkir sem veittir eru úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga vegna alvarlegra veikinda.

  17. Styrkir sem veittir eru úr minningarsjóðum sem starfa samkvæmt skipulagsskrá staðfestri af dómstólaráðuneytinu samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.]2)

  18. [Styrkir sem greiddir eru samkvæmt lögum nr. 152/2006, um ættleiðingarstyrki.]3)

  19. [25% launatekna þeirra erlendu sérfræðinga sem hlotið hafa staðfestingu nefndar á því að þeir uppfylli skilyrði 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðar breytingum, allt að þremur árum frá ráðningu í starfi.]5)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 500/2001. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 914/2006. 3)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 44/2007.  4)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 244/2013. 5)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1203/2016. *1)Greininni hefur verið áður breytt með reglugerðum nr. 564/1988, 330/1990, 70/1991, 682/1994, 395/1995, 456/1995 og 677/1998.

Ökutækjastyrkir.
3. gr.

(1) Heimilt er að halda utan staðgreiðslu greiðslu launagreiðanda fyrir afnot af eigin bifreið launamanns þegar sannanlega er um að ræða endurgreiðslu á kostnaði við rekstur hennar sem til er kominn vegna aksturs tiltekinnar vegalengdar í þágu launagreiðanda, að svo miklu leyti sem slík greiðsla er undir þeim mörkum sem ríkisskattstjóri setur hverju sinni.

(2) Heimild þessi er að öðru leyti bundin þeim skilyrðum að færð sé akstursdagbók eða akstursskýrsla þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vegalengd, aksturserindi, kílómetragjald greitt launamanni, nafn og kennitala launamanns og einkennisnúmer viðkomandi ökutækis. Gögn þessi skulu færð reglulega og vera aðgengileg skattyfirvöldum þegar þau óska þess, hvort sem er í bókhaldi launagreiðanda eða hjá launamanni.

(3) Akstur launamanns á milli heimilis hans og venjulegs vinnustaðar fellur ekki undir skilgreiningu hér að framan. Aki launamaður hins vegar beint frá heimili sínu til annars vinnustaðar en hins venjulega að beiðni launagreiðanda getur greiðsla fyrir slík afnot ökutækis fallið undir endurgreiddan bifreiðakostnað, enda séu slík afnot af ökutæki launamanns beinlínis tengd starfi hans en ekki fólgin í því einu að komast á vinnustað.

4. gr.

Fái launamaður greiddan reksturskostnað bifreiðar fyrir akstur í þágu launagreiðanda samkvæmt framlögðum reikningum, frá launamanni sjálfum eða frá þriðja aðila, skal fara með slíkar greiðslur eins og ökutækjastyrki og telja þær til tekna við ákvörðun staðgreiðslu.

5. gr.

Af ökutækjastyrkjum, öðrum en þeim er greinir í 3. gr., ber að reikna staðgreiðslu. Hins vegar getur launamaður lagt fram með skattframtali sínu gögn um sannanlegan akstur í þágu launagreiðanda, [þ.m.t. akstursbók samkvæmt 2. mgr. 3. gr., til sönnunar því hver hafi verið akstur í þágu launagreiðanda,]1) sbr. 1. tölul. A liðs 30. gr. laga nr. [90/2003]2), um tekjuskatt [---]2), með síðari breytingum, og kemur þá sá kostnaður sem sannað er að sé í þágu launagreiðanda til frádráttar við álagningu.

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 490/1992. 2)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 44/2007.

Dagpeningar, ferðapeningar og ferðakostnaður.
6. gr.

(1) Heimilt er að halda utan staðgreiðslu greiðslum launagreiðanda á ferðakostnaði launamanns á vegum hans, þ.m.t. fargjöldum, sem greiddur er samkvæmt reikningi frá þriðja aðila.

(2) Ennfremur er heimilt að halda utan staðgreiðslu dagpeningum og hliðstæðum endurgreiðslum á ferða og dvalarkostnaði vegna launagreiðanda, enda sé fjárhæðin innan þeirra marka sem leyfist til frádráttar samkvæmt reglum ríkisskattstjóra, sbr. 1. tölul. 30. gr. laga nr. [90/2003]1), með síðari breytingum.

(3) Framangreindar heimildir eru bundnar þeim skilyrðum að fyrir liggi í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launamanni, gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga eða eftir atvikum reikningar frá þriðja aðila, svo og nafn og kennitala launamanns.

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 44/2007.

7. gr.

Af öðrum greiðslum launagreiðanda vegna ferðalaga launamanns en þeim er að framan greinir ber að reikna staðgreiðslu. Hins vegar getur launamaður lagt fram með skattframtali sínu gögn um kostnað sem hann hefur sannanlega borið vegna ferða á vegum launagreiðanda, sbr. 1. tölulið A liðs 30. gr. laga nr. [90/2003]1), um tekjuskatt [---]1), með síðari breytingum, og kemur þá slíkur kostnaður til frádráttar við álagningu.

1)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 44/2007.

Almenn ákvæði.
8. gr.

Ákvæði reglugerðar þessarar breyta í engu framtals og skattskyldu þeirra greiðslna sem reglugerðin fjallar um.

9. gr.

Ríkisskattstjóri úrskurðar um ágreining vegna framkvæmdar reglugerðar þessarar.

10. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, öðlast gildi 1. janúar 1988. 

Fara efst á síðuna ⇑