Skattalagasafn ríkisskattstjóra 28.3.2024 21:42:54

Reglugerð nr. 1300/2021 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=1300.2021.0)
Ξ Valmynd

 

Reglugerð

nr. 1300/2021, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.

 

Almenn skilgreining.

1. gr.

Frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi eða eru tengdar slíkum rekstri má draga:

  1. Rekstrarkostnað skv. 1. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þ.e. þau gjöld, greidd eða áfallin, sem eiga á árinu að ganga til að afla skattskyldra tekna í atvinnurekstri, tryggja þær og halda þeim við og ekki eru sérstaklega undanskilin í lögum. Til rekstrarkostnaðar teljast hvorki útgjöld til eignakaupa eða annarra fjárfestinga, né útgjöld til einkaþarfa, nema að því marki sem þau eru talin til tekna sbr. 3. gr.
  2. Frádrátt sem heimilaður er skv. 2.-10. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
  3. Önnur gjöld en skv. a- og b-lið, eftir því sem kveðið er á um í lögum.

 

Kostnaðarverð vöru.

2. gr.

(1) Til rekstrarkostnaðar telst kostnaðarverð vöru sem seld hefur verið á árinu og skal það ákvarðað þannig: Vörubirgðir í ársbyrjun að viðbættu kostnaðarverði aðkeyptrar vöru á árinu og/eða fram­leiðslu­kostnaði vöru á árinu, að frádregnum vörubirgðum í árslok.

(2) Vörubirgðir í ársbyrjun og árslok skal telja á því verði sem þær eru framtalsskyldar skv. 4. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

 

Laun og annar starfsmannatengdur kostnaður.

3. gr.

(1) Til rekstrarkostnaðar telst launakostnaður til öflunar tekna í atvinnurekstri. Til þessa kostnaðar teljast hvers konar launagreiðslur, hverju nafni sem nefnast, hvort sem greitt er með reiðufé, hlunn­indum eða með öðrum hætti. Sama gildir um annan starfsmannakostnað, með þeim takmörk­unum sem af ákvæðum laga og reglugerðar þessarar leiðir.

(2) Til rekstrarkostnaðar telst endurgjald sem manni er vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálf­stæða starfsemi ber að reikna sér við öflun tekna í rekstri sínum skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðs 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 58. gr. sömu laga. Sama gildir um reiknað endurgjald fyrir störf sem maki hans og barn inna af hendi fyrir atvinnureksturinn eða hina sjálfstæðu starfsemi.

(3) Séu laun greidd í hlunnindum, svo sem fatnaði, húsnæði eða fæði, má ekki draga frá hærri fjár­hæð en sem kostnaðarverði nemur. Vinnu framteljanda, maka hans, barns hans innan 16 ára aldurs á tekjuárinu, venslamanns hans eða nákomins ættingja hans má ekki reikna með í kostnaðarverði fæðis­ins, nema talið sé til tekna á móti.

(4) Ekki má telja gjafir til starfsmanna til rekstrarkostnaðar, nema um sé að ræða kaupauka sem þá telst til endurgjalds fyrir vinnu eða starf. Þetta á þó ekki við um tækifærisgjafir, sbr. 1. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og árlegt skattmat ríkisskattstjóra vegna tekna manna, sbr. 2.1. kafla reglnanna.

(5) Skilyrði fyrir frádrætti þess kostnaðar sem um ræðir í 1., 3. og eftir atvikum 4. mgr. er að hann komi fram á launamiðum, sem skilað er til Skattsins skv. 1. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekju­skatt.

(6) Til rekstrarkostnaðar telst kostnaður við árshátíð, jólagleði og sambærilegar samkomur svo og starfsmannaferðir, enda séu samkomur þessar og ferðir fyrir starfsfólk almennt og kostnaður hæfi­legur miðað við einstök tilefni og heildstætt á rekstrarárinu.

(7) Til rekstrarkostnaðar telst kostnaður við almenna fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og almenna heilsubótaraðstöðu, kostnaður við kaffiveitingar í vinnutíma og kostnaður við námskeið sem tengjast starfinu beint.

(8) Til rekstrarkostnaðar teljast enn fremur framlög til starfsmannafélaga vegna þeirra liða er greinir í 6. og 7. mgr. þessarar greinar.

(9) Iðgjöld launagreiðanda vegna starfsmanna sinna sem og eigið iðgjald þeirra sem standa fyrir rekstri eða sjálfstæðri starfsemi, til lífeyrissjóðs, sem hlotið hefur staðfestingu fjármála- og efnahags­ráðuneytisins, teljast til rekstrarkostnaðar. Sama gildir um almenn launatengd gjöld vegna starfs­manna samkvæmt lögum eða kjarasamningum.

 

Viðhald eigna.

4. gr.

(1) Til rekstrarkostnaðar telst viðhald á eignum, sem notaðar eru við atvinnurekstur. Viðhald telst það sem gera þarf til þess að halda eignunum eða einstökum hlutum þeirra í svipuðu ástandi og þær voru í, þegar rekstraraðili eignaðist þær, hvort heldur þær voru þá gamlar eða nýjar. Þó að eign gangi úr sér fyrir aldurs sakir, þ.e. fyrnist, þá skal hún samt talin í svipuðu ástandi að því er viðhald varðar. Fyrning hennar kemur hins vegar til frádráttar skv. 7. gr.

(2) Endurbætur á eign, sem hefur verið keypt, eða er orðin úr sér gengin fyrir aldurs sakir, stækkun eða breyting hennar, skal ekki talin til viðhalds. Til viðhalds skal aftur á móti telja að halda eigninni í svipuðu ástandi og hún varð að stækkun, breytingu eða endurbót lokinni.

(3) Sé annars vegar viðhald og hins vegar breytingar, endurbætur og/eða stækkun framkvæmd í einu lagi, skal meta hvað telst til hvors um sig.

(4) Ef eigendaskipti verða að húsi eða öðrum eignum, heimilast ekki til frádráttar hærri fjárhæðir til viðhalds en teljast mega eðlilegar og venjulegar, hvorki hjá seljanda né kaupanda. Það sem í slíkum tilfellum er umfram venjulegt viðhald, skal talið endurgoldið með söluverði eignarinnar eða hluti af kaupverði, þ.e. kostnaðarverði hennar.

(5) Ef endurnýjuð er eign, sem eyðst hefur vegna slysa eða af öðrum ástæðum, t.d. skip farist, bryggja ónýst, hús brunnið eða fokið o.s.frv., þá telst það ekki til viðhalds.

(6) Þegar um er að ræða flokkunarviðgerðir skipa og hliðstæðar viðgerðir flugvéla, er útgerðar- og flugrekstrarfyrirtækjum heimilt að dreifa greiddum kostnaði af slíkum viðgerðum til frádráttar tekjum það ár sem viðgerðin var framkvæmd og næstu ár þar á eftir, þó ekki á lengri tíma en viður­kennt flokkunartímabil.

 

Vaxtagjöld.

5. gr.

(1) Frá tekjum af atvinnurekstri má draga vaxtagjöld og annan fjármagnskostnað af skuldum sem tengjast atvinnurekstri, sbr. 49. gr. sbr. og 57. gr. b. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

(2) Eigi er heimilt að draga frá skv. 1. mgr. vexti af því fé sem maður hefur sjálfur lagt í atvinnu­rekstur sinn. Félög, sjóðir og stofnanir mega ekki draga frá vexti af hlutafé, stofnfé eða tryggingafé. Vextir af stofnsjóðum samvinnufélaga teljast þó ekki hér með, sbr. 3. tölul. 49. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

 

Ýmis kostnaður.

6. gr.

(1) Til rekstrarkostnaðar teljast þeir kostnaðarliðir sem hér fara á eftir með þeim takmörkunum og skilyrðum sem þar greinir:

  1. Gjöld af fasteignum, enda séu þær ætlaðar til tekjuöflunar. Rekstrarkostnað vegna frístunda­húsnæðis og orlofshúsa fyrir starfsmenn, má draga frá enda sé sýnt að tekjur af útleigu þeirra nægi til að greiða reksturinn að mestu leyti eða leigan sé í samræmi við það sem almennt tíðkast.
  2. Félagsgjöld sem atvinnurekendur greiða og ganga til greiðslu kostnaðar vegna öflunar, viðhalds og tryggingar atvinnurekstrartekna þeirra. Eigi mega gjöld þessi vera til eigna­mynd­unar hjá móttakanda, en rekstrarafgangur viðkomandi félags telst þó eigi til eigna­myndunar sé honum varið til rekstrarkostnaðar á næstu árum. Ekki telst til eignamyndunar í þessu sambandi þótt félag kaupi húsnæði undir starfsemi sína. Sé verulegum hluta félags­gjalda ekki ráðstafað í samræmi við 1. málsl. þessa stafliðar takmarkast frádráttarbærni þeirra að sama marki. Félagsgjöld til stéttarfélags samkvæmt lögum nr. 80/1938, um stéttar­félög og vinnu­deilur, er óheimilt að draga frá tekjum.
  3. Ferðakostnaður í þágu atvinnurekstrar. Sé starfsmanni greiddur ferðakostnaður með dagpen­ingum skulu þeir taldir til rekstrarkostnaðar og gefnir upp með greiddum launum. Frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er heimilt, í stað kostnaðar sam­kvæmt reikningi, að draga frá fasta fjárhæð vegna ferðakostnaðar erlendis, annars en gisti- og fæðis­kostnaðar, samkvæmt matsreglum sem ríkisskattstjóri setur. Til staðfestingar á ferða­kostnaði þurfa upplýsingar m.a. um tilgang ferðar, þátttakendur og fjölda ferðadaga að liggja fyrir með aðgengilegum hætti.
  4. Risna vegna atvinnurekstrar, þ.e. sá kostnaður sem lagt er í til að ljúka viðskiptum, afla nýrra viðskiptasambanda eða halda þeim við, enda sé kostnaður eðlilegur miðað við tilefni. Frádráttarbær risna þarf að beinast að aðilum sem ekki starfa við fyrirtækið eða tengjast því með öðrum hætti, svo sem stjórnarmenn eða hluthafar. Til staðfestingar risnukostnaði þurfa upplýsingar m.a. um tilefni risnu, hverjir hennar nutu og tengsl þeirra við fyrirtækið að liggja fyrir með aðgengilegum hætti.
  5. Kostnaður vegna funda sem beinlínis tengjast atvinnurekstrinum, svo sem kostnaður vegna aðalfunda, hluthafafunda og stjórnarfunda, enda sé kostnaðurinn eðlilegur miðað við tilefni.
  6. Bústofnsskerðing.
  7. Kostnaður vegna sérfræðiaðstoðar við kaup og sölu eigna telst eigi til rekstrarkostnaðar. Við kaup teljast þessi útgjöld hluti af kostnaðarverði eignar og við sölu til lækkunar á söluverði.
  8. Kostnaður vegna sérfræðiaðstoðar við stofnun fyrirtækis telst eigi til rekstrarkostnaðar. Hann telst til stofnkostnaðar og færist til gjalda samkvæmt reglum um niðurfærslu eigna í 32. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
  9. Fjársektir eða önnur viðurlög, hverju nafni sem nefnast, vegna refsiverðs verknaðar skatt­aðila sjálfs, þar með talið verðmæti upptækra eigna eða greiðslur í þess stað teljast eigi til rekstrar­kostnaðar. Sama gildir um kostnað, hverju nafni sem nefnist, við öflun ólöglegs upp­tæks ávinnings eða sem tengdur er saknæmum brotum.

 

7. gr.

(1) Til rekstrarkostnaðar telst fyrning þeirra eigna sem notaðar eru við öflun teknanna og heimilt er að fyrna samkvæmt ákvæðum laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

(2) Fyrningarhlutfall skal vera í samræmi við ákvæði laga þar um. Því má breyta á milli ára en þó þannig að það sé innan þeirra marka sem 37. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, setur um lágmarks- og hámarksfyrningu í hverjum fyrningarflokki. Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi má víkja frá fyrningarhlutföllum samkvæmt ákvæðum laga og veitir ríkisskattstjóri slíka heimild.

(3) Almenn fyrning eigna skal reiknuð árlega og talin til frádráttar án tillits til hagnaðar eða taps gjald­anda.

(4) Halda skal sérstaka skrá um fyrnanlegar eignir, fyrningarverð þeirra, almennar og sérstakar fyrningar hverrar eignar og bókfært verð þeirra til skatts.

 

8. gr.

Stofnverð, fyrningargrunnur og skipting hans og niðurlagsverð, skal vera með eftirgreindum hætti:

  1. Stofnverð eigna telst kostnaðarverð þeirra, þ.e. kaup- eða framleiðsluverð, ásamt kostnaði við endurbætur, breytingar eða endurbyggingu og sérhverjum öðrum kostnaði sem á eignirnar fellur, en að frádregnum óendurkræfum styrkjum, afsláttum, eftirgjöfum skulda og skaða­bótum sem til falla í sambandi við kaup þeirra, framleiðslu, breytingar eða endur­bætur.
  2. Fyrningargrunnur eigna telst stofnverð þeirra. Ef stofnverð hækkar eða lækkar eftir að hafin er nýting eignarinnar ber að færa breytinguna til hækkunar eða lækkunar fyrningargrunni þess árs þegar breytingin verður. Ef gerðar eru endurbætur á eign eftir að nýting er hafin skulu þær mynda nýjan fyrningargrunn.
  3. Ef keypt er fasteign eða mannvirki, ásamt lóð, landi eða réttindum tengdum þessum eignum, skal skipta stofnverðinu í sama hlutfalli og eignir eru metnar til fasteignamats á kaupdegi. Sama gildir um kaup mannvirkja eingöngu.
  4. Lausafé, þar með talin skip, loftför, bifreiðar, vélar og tæki og mannvirki, þar með talin ræktun á bújörðum og byggingar, svo og tæki og borpallar til kolvetnisvinnslu, má aldrei fyrna meira en svo að ávallt standi eftir sem niðurlagsverð eignar 10% af fyrningargrunni hennar.

 

9. gr.

Fyrningarhlutföll fyrnanlegra eigna fara eftir 37. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

 

10. gr.

Stofnkostnað, svo sem kostnað við skráningu fyrirtækis og öflun atvinnurekstrarleyfa, og kostnað við tilraunavinnslu, markaðsleit, rannsóknir og öflun einkaleyfis og vörumerkja er heimilt að færa niður með jöfnum fjárhæðum á fimm árum eða að fullu á því ári sem hann myndast.

 

11. gr.

Fyrning af eftirtöldu er ekki frádráttarbær:

  1. Eignum sem tilheyra ekki atvinnurekstri. Sé eign notuð bæði í þágu atvinnurekstrar og í einkaþágu atvinnurekanda sjálfs, verður að meta hve mikið af notkuninni tilheyrir rekstr­inum og miða frádráttarbæra fyrningu við það.
  2. Löndum og lóðum eða öðrum slíkum eignum, sem eigi rýrna eða ganga úr sér við notkun og önnur lóðargjöld. Rýrnun á bústofni kemur fram í bústofnsskerðingu og rýrnun vörubirgða kemur fram í mati þeirra, og verður þá fyrning eigi reiknuð á annan hátt.
  3. Aflahlutdeild í sjávarútvegi.

 

12. gr.

(1) Ekki er heimilt að fyrna eign á því rekstrarári sem nýtingu hennar lýkur vegna sölu eða af öðrum ástæðum. Verði eign ónothæf áður en fyrningu hennar er lokið er heimilt að færa eftirstöðvar fyrningarverðs til gjalda. Niðurlagsverð eignar skal færa til gjalda á því ári, sem hún hverfur úr eigu skattþegns, þó að frádregnu söluandvirði eða öðru andvirði.

(2) Þegar notkun einstakra eigna er þannig háttað að þær falla ekki undir sama fyrningarhlutfall skal fyrningargrunni þeirra skipt eftir notkun. Sé eign notuð að 3/4 hlutum eða meira til sömu starfsemi skal hún þó í heild háð sama fyrningarhlutfalli. Sé hluti eignar ekki fyrnanlegur, t.d. ef um er að ræða íbúð í fyrnanlegri eign, skal ætíð lækka stofnverð eignarinnar um hinn ófyrnanlega hluta eftir stærðar­hlutföllum. Við skiptingu á fyrningargrunni bygginga skal í þessu sambandi miða við fast­eigna­mat einstakra byggingarhluta eða við rúmmál liggi fasteignamat ekki fyrir.

 

Tap á kröfum.

13. gr.

Tap á útistandandi viðskiptakröfum, lánveitingum og vegna skuldaábyrgða má draga frá tekjum á því tekjuári sem eignir þessar eru sannanlega tapaðar eða ábyrgð á fallin, enda sé eftirgreindum skilyrðum fullnægt:

  1. Að krafa, lánveiting eða ábyrgð stafi beinlínis af atvinnurekstri aðila, þ.e. að hún sé til komin í beinu samhengi við viðskipti eða eðlilega starfsemi hans. Hér koma því eigi til greina lán eða ábyrgðir, sem veitt eru í greiðaskyni eða sem aðstoð við stofnun fyrirtækis eða rekstur. Eigi heldur töp á hlutabréfum eða öðrum slíkum framlögum til félaga, nema atvik falli undir 5. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. (1)
    Til frádráttar koma eigi afskriftir sem telja má gjöf þótt upphaflega sé veitt sem lán að forminu til, en síðan afskrifað. (2)
    Þjófnaður og sjóðþurrð sem ekki fæst bætt er frádráttarbær, enda sé sýnt fram á þessi atvik með óyggjandi hætti. (3)
  2. Að sönnur séu færðar fyrir því að fjárhæð viðskiptakröfu hafi áður verið talin til tekna, lánveiting eignfærð eða ábyrgð hafi verið veitt.
  3. Skuldaábyrgð kemur til frádráttar þegar hún er áfallin samkvæmt reglum kröfuréttar og ábyrgðarveitandinn samþykkir að svo sé. Töpuð viðskiptakrafa eða veitt lán kemur til frá­dráttar á því ári þegar slíkt tap er orðið sannanlegt.

 

14. gr.

(1) Tap á kröfu sbr. 13. gr. telst sannanlegt:

  1. Ef krafan er fyrnd eða það sannast á fullnægjandi hátt að eignir séu eigi til fyrir henni eða hún verði eigi greidd, svo sem við gjaldþrot, nauðasamninga, árangurslaust fjárnám o.þ.h.
  2. Ef telja má fullvíst að krafan fáist eigi greidd, enda þótt atvik þau sem um ræðir í a-lið séu eigi fyrir hendi. Líkur einar eru þó eigi nægar, heldur verða öll rök að liggja til þess að hún sé að fullu töpuð. Að það hafi sýnt sig við ítrekaðar innheimtutilraunir, þ.m.t. annarra kröfuhafa, að skuldari sé ófær til greiðslu, að hvorki fáist af kröfunni afborganir og vextir né veð fyrir henni og efnahagur skuldara og afkoma sé þannig að greiðslu verði ekki að vænta, enda sé eigi um gagnkröfu að ræða af hans hendi.

(2) Ef hluti af kröfu tapast, t.d. við gjaldþrot eða samninga um eftirgjöf, eða veð fæst aðeins fyrir hluta hennar, eða á annan hátt er fengin vissa fyrir því að hluti hennar fáist eigi greiddur, er leyfilegt að afskrifa hann, enda hafi krafan verið reikningsfærð með fullnægjandi hætti.

(3) Sé krafa, sem afskrifuð hefur verið, greidd að fullu eða hluta telst það til tekna á því ári er greiðsla átti sér stað.

 

Frádráttur vegna gjafa til almannaheilla, almannaheillaskrá o.fl.

15. gr.

Frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi má draga:

  1. Einstakar gjafir og/eða framlög til lögaðila skv. 9. tölul. 4. gr. laga nr. 90/2003 þó ekki yfir 1,5% af tekjum skv. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt á því ári sem gjöf er afhent eða framlag er veitt.
  2. Einstakar gjafir og/eða framlög til lögaðila vegna aðgerða sem stuðla eiga að kolefnisjöfnun, sbr. 2. mgr. 16. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál, þó ekki yfir 1,5% af tekjum skv. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt á því ári sem gjöf er afhent eða fram­lag er veitt.

 

16. gr.

(1) Skilyrði fyrir frádrætti skv. a-lið 15. gr. er að sá lögaðili sem veitir viðtöku gjöfum og/eða fram­lögum til starfsemi sinnar hafi með höndum óhagnaðardrifna starfsemi og falli undir einhvern af málaflokkum a–g-liða 17. gr. og sé sem slíkur skráður í sérstaka almannaheillaskrá hjá Skattinum, sbr. 18. gr., á því tímamarki þegar gjöf er afhent eða framlag er veitt. Sé um að ræða lands­samtök þar sem einstaka aðilar innan þeirra starfa til almannaheilla nægir að landssamtökin séu skráð í almanna­heillaskrá og skal þá slík skráning landssamtakanna einnig ná til og gilda um einstaka aðila innan þeirra. Aðilum innan landssamtakanna er þó einnig heimilt að óska eftir sérstakri skráningu í almannaheillaskrá.

(2) Skilyrði fyrir frádrætti skv. b-lið 15. gr. er að þær aðgerðir lögaðila sem veitir viðtöku gjöfum og/eða framlögum stuðli að kolefnisjöfnun, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál. Hér undir fellur skógrækt, uppgræðsla auðna og illa farins gróðurlendis, sandgræðsla, endurheimt vot­lendis og landgæða og aðrar hliðstæðar aðgerðir, t.a.m. bætt landnotkun. Jafnframt fellur hér undir niður­dæling koldíoxíðs í berggrunn til myndunar steinda, sbr. 24. mgr. 3. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og verkefni sem fela í sér föngun og förgun gróðurhúsa­loftteg­unda, sbr. 4. tölul. 3. gr. laga nr. 70/2012, um loftslagsmál.

(3) Skilyrði fyrir frádrætti skv. 1. og 2. mgr. er að móttakandi gjafar eða framlags láti gefanda í té skriflega staðfestingu á móttöku þar sem fram koma dagsetning og nafn gefanda, auk upplýsinga um form og verðmæti gjafar eða framlags. Slík staðfesting má vera á rafrænu formi. Staðfestinguna skulu bæði gefandi og móttakandi varðveita. Þeim skal skylt að láta skattyfirvöldum í té ókeypis og í því formi, sem óskað er, allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn er þau beiðast og varða gjöf eða framlag.

(4) Rekstur og efnahagur vegna starfsemi sem fram kemur í 1. og 2. mgr. skal að fullu aðgreindur bókhaldslega frá annarri starfsemi lögaðila.

(5) Jafnframt er það skilyrði fyrir frádrætti skv. 1. og 2. mgr. að viðkomandi aðilar lúti ekki beinum eða óbeinum stjórnunarlegum yfirráðum hvors annars og einstaklingar, sbr. c-lið 4. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, hafi ekki sjálfir verulegan hag af gjöfum og framlögum skv. 15. gr.

 

17. gr.

Málaflokkar skv. a-lið 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. varða óhagnaðardrifna starfsemi, þ.m.t. bygging og rekstur mannvirkja, sbr. 13. tölul. 3. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010. Starfsemi skal falla undir þriðja geirann, þ.e. vera aðskilin frá starfsemi hins opinbera og aðila í atvinnustarfsemi, og eru málaflokkarnir eftirfarandi:

  1. Mannúðar- og líknarstarfsemi. Undir mannúðar- og líknarstarfsemi fellur meðal annars starf­semi sjúkra-, umönnunar- og meðferðarstofnana, dvalar- og vistheimila og sambýla fyrir fatlaða, greiningarstöðva, öldrunarstofnana og stofnana í hliðstæðri starfsemi. Hér undir fellur einnig mannréttindastarfsemi.
  2. Æskulýðs- og menningarmálastarfsemi. Undir æskulýðsstarfsemi fellur skipulögð félags- og tómstundastarfsemi félaga eða félagasamtaka samkvæmt æskulýðslögum, nr. 70/2007. Íþrótta­starfsemi, þ.e. starfsemi íþróttafélaga, heildarsamtaka á sviði íþrótta og héraðs- og sérsambanda. Menningarmálastarfsemi felur í sér hvers konar starfsemi tengda menningar­málefnum í þágu almennings s.s. bókmennta- og listastarfsemi, starfsemi safna, skógrækt, sandgræðsla og verndun fornra mannvirkja, fiskimiða og sérstæðra náttúrufyrirbrigða.
  3. Starfsemi björgunarsveita, landssamtaka björgunarsveita og slysavarnadeilda og einstakra félagseininga sem starfa undir merkjum samtakanna. Hér undir falla félög, deildir eða félags­einingar sem hafa með höndum starfsemi sem fellur undir lög um björgunarsveitir og björg­unar­sveitarmenn, nr. 43/2003.
  4. Vísindaleg rannsóknarstarfsemi. Hér undir fellur hvers konar viðurkennd vísindaleg rann­sóknar­starfsemi, hvort heldur er á sviði hugvísinda eða raunvísinda.
  5. Starfsemi sjálfstæðra háskólasjóða og annarra menntasjóða. Hér undir falla meðal annars doktorsstyrktarsjóðir háskólanna og aðrir menntasjóðir sem eru sjálfstæðir gagnvart hinu opinbera, þ.e. eru ekki háðir fjárveitingum úr ríkissjóði eða frá öðrum opinberum aðilum.
  6. Neytenda- og forvarnastarfsemi. Hér undir fellur starfsemi þeirra sem hafa með höndum neytenda- og forvarnarstafsemi, til að mynda félög og félagasamtök sem vinna að neyt­enda­­málum, umferðaröryggismálum, forvörnum gegn áfengi, fíkniefnanotkun og sjálfs­vígum.
  7. Starfsemi þjóðkirkjunnar, þjóðkirkjusafnaða og annarra skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga. Hér undir fellur starfsemi þjóðkirkjunnar og starfsemi þjóðkirkjusafnaða hér á landi, sbr. lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997. Jafnframt falla hér undir skráð trú- og lífsskoðunarfélög, sbr. lög um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög, nr. 108/1999.

 

18. gr.

(1) Lögaðila sem fellur undir 9. tölul. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er heimilt að óska eftir skráningu á sérstaka almannaheillaskrá Skattsins skv. 1. mgr. 16. gr. Aðili sem óskar eftir skráningu skal senda inn umsókn til Skattsins, á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, eigi síðar en 1. nóvember vegna þess almanaksárs sem skráningu er ætlað að ná til. Beri daginn upp á helgidag eða almennan frídag færist fresturinn til næsta virka dags þar á eftir. Almannaheillaskrá skal vera opin og aðgengileg almenningi á vef Skattsins.

(2) Lögaðilar sem stofnaðir eru eftir 1. nóvember á almanaksári geta óskað eftir skráningu á almanna­heilla­skrá á næsta almanaksári til og með 1. nóvember á því ári að uppfylltum skilyrðum þessa ákvæðis.

(3) Skilyrði fyrir afgreiðslu ríkisskattstjóra á skráningu á almannaheillaskrá Skattsins eru eftir­farandi:

  1. Fram komi umsókn og fylgigögn um skráningu frá fyrirsvarsmanni aðila sem fellur undir 9. tölul. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
  2. Umsókn skal sett fram á formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Henni skulu fylgja gögn er sýna að lögboðin skilyrði séu uppfyllt.
  3. Lögaðili sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga fyrir móttöku Skattsins á umsókn um skráningu.
  4. Álagðir skattar, skattsektir og gjöld byggist ekki á áætlunum vegna vanskila á skatt­framtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum við móttöku Skattsins á umsókn um skráningu.
  5. Staðið sé skil á ársreikning fyrra árs eða sýnt fram á að ársreikningi hafi verið skilað til bærra stjórnvalda sé slík lagaskylda fyrir hendi, sbr. m.a. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Með skilum á ársreikningi er ekki átt við þá lögaðila sem stofnaðir hafa verið á árinu og tímamörk skila á ársreikningi eru ekki runnin upp.

(4) Hafi umsókn um skráningu ásamt réttum fylgigögnum verið skilað á tilskildum tíma og öllum skilyrðum fullnægt skal skráning fara fram eins fljótt og auðið er og eigi síðar en tveimur mánuðum frá móttöku Skattsins á umsókn um skráningu.

(5) Ríkisskattstjóri skal yfirfara og meta hvort umsókn uppfylli skilyrði 3. mgr. og getur hann í því sambandi krafið aðila um nánari upplýsingar til þess að sannreyna skýringar og gögn sem liggja að baki umsókn.

(6) Afgreiðslufrestur skv. 4. mgr. framlengist ef ríkisskattstjóri getur vegna aðstæðna aðila ekki gert nauðsynlegar athuganir á þeim gögnum sem umsóknin byggist á, þ.m.t. ef aðili hefur lagt fram röng eða villandi gögn eða ef skattrannsóknarstjóri eða héraðssaksóknari eru með til rannsóknar eða sak­sóknar mál er varðar grun um skattsvik eða refsiverð brot á lögum um bókhald eða ársreikninga.

(7) Ríkisskattstjóri skal tilkynna aðila um ákvörðun sína um skráningu. Tilkynning um ákvörðun skal send með almennri póstsendingu eða rafrænt í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

(8) Samþykki ríkisskattstjóra fyrir frumskráningu í almannaheillaskrá gildir frá og með umsóknar­degi þess almanaksárs þegar umsókn berst Skattinum og heimilast frádráttur vegna gjafa og framlaga sem berast móttakanda frá og með umsóknardegi.

(9) Endurnýja skal skráningu á almannaheillaskrá árlega fyrir hvert byrjað almanaksár eigi síðar en 15. febrúar ár hvert. Endurskráning skv. 1. málsl. gildir frá byrjun viðkomandi almanaksárs og til loka þess almanaksárs að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins að öðru leyti. Endurskráning skal fara fram á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

(10) Berist umsókn um frumskráningu á almannaheillaskrá eftir þau tímamörk sem fram koma í 1. mgr. skal ríkisskattstjóri hafna skráningu vegna þess almanaksárs. Þrátt fyrir 1. málsl. getur ríkis­skattstjóri ákveðið að heimila skráningu ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta. Slíkar ástæður geta t.a.m. verið utanaðkomandi og óviðráðanleg atvik sem aðili ber ekki ábyrgð á og hafa hamlað því að umsókn barst innan tímamarka. Ríkisskattstjóri metur í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi. Umsókn sem hafnað hefur verið skv. 1. málsl. eða ekki heimiluð, sbr. 2. málsl., skal þó gilda frá og með 1. janúar næsta almanaksárs að uppfylltum þeim skilyrðum sem gilda um frum­skráningu.

(11) Berist umsókn um endurskráningu eftir þau tímamörk sem fram koma í 9. mgr. skal slík umsókn tekin sem frumskráning á almannaheillaskrá. Uppfylla þarf þau skilyrði sem gilda um frum­skrán­ingu. Umsókn gildir frá og með umsóknardegi þess almanaksárs þegar umsókn berst Skattinum og heimilast frádráttur vegna gjafa og framlaga sem berast móttakanda frá og með umsóknar­degi.

(12) Skráðir aðilar skulu hafa staðið skil á ársreikningi eigi síðar en 31. maí ár hvert. Í ársreikningi og/eða skýringum með honum skal koma fram móttaka og ráðstöfun gjafa og framlaga, sem móttekin voru á undanfarandi tekjuári.

(13) Lögaðili fellur af almannaheillaskrá eftir frumskráningu ef til staðar eru atvik sem talin eru upp í liðum a-f:

  1. Endurskráning fer ekki fram innan tilskilins frests.
  2. Um sé að ræða vanskil opinberra gjalda, skatta og skattsekta einum mánuði eftir að þau féllu í eindaga.
  3. Álagðir skattar, skattsektir og gjöld byggjast á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum.
  4. Ekki sé staðið skil á ársreikning fyrra árs til ríkisskattstjóra eða sýnt fram á að ársreikningi hafi verið skilað til bærra stjórnvalda.
  5. Ekki hefur verið staðið skil á upplýsingum um mótteknar gjafir og framlög á launamiðum, sem skila á til Skattsins skv. 1. mgr. 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.
  6. Uppfylli aðili af öðrum ástæðum ekki lengur skilyrði skráningar að mati ríkisskattstjóra, s.s. ef í ljós kemur að starfsemi er ekki lengur óhagnaðardrifin og/eða til almannaheilla sam­kvæmt reglugerð þessari.

(14) Ríkisskattstjóri skal tilkynna lögaðila um fyrirhugaða skráningu af almannaheillaskrá skv. 13. mgr. og gefa honum kost á úrbótum og möguleika á að koma að andmælum innan 15 daga. Ef ekki berast fullnægjandi skýringar eða úrbætur skal ríkisskattstjóri úrskurða aðila af almannaheillaskrá.

(15) Ákvarðanir ríkisskattstjóra um höfnun skráningar á almannaheillaskrá og úrskurðir hans um niðurfellingu á skráningu á almannaheillaskrá eru kæranlegir til yfirskattanefndar. Kærufrestur er 30 dagar og reiknast frá dagsetningu ákvörðunar eða úrskurðar ríkisskattstjóra.

 

19. gr.

Lögaðila sem fellur undir a-lið 15. gr. og hefur með höndum starfsemi sem fellur undir 17. gr. skal vera heimilt að stunda atvinnustarfsemi til fjáröflunar innan þeirra marka sem tilgreind eru í samþykktum hans og leiða má beint af tilgangi lögaðilans eða starfsemi sem hefur aðeins óverulega fjárhagslega þýðingu með tilliti til heildartekna hans.

 

20. gr.

Ríkisskattstjóri getur ákveðið almenna skyldu til að honum sé afhent skýrsla ókeypis og í því formi sem hann ákveður um veittar og mótteknar gjafir eða framlög, sbr. 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

 

Rekstrartap frá fyrri árum.

21. gr.

Frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, má draga eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu tíu árum á undan tekjuári. Þetta er þó bundið því skilyrði að fullnægjandi grein hafi verið gerð fyrir tapinu á því tekjuári þegar tapið myndaðist.

 

Gildistaka.

22. gr.

(1) Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 2. tölul. 31. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlaðist gildi 1. nóvember 2021 og skal koma til framkvæmda við álagningu gjalda á árinu 2022 vegna tekna frá 1. nóvember 2021. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi.

(2) Þrátt fyrir 1. mgr. skulu c–e-liðir 3. mgr. og 12. mgr., b–e-liðir 13. mgr. og 15. mgr. 18. gr. öðlast gildi 1. janúar 2022 og koma til framkvæmda við álagningu gjalda á árinu 2023 vegna tekna á árinu 2022.

 

Bráðabirgðaákvæði.

(1) Þrátt fyrir tímafrest í ákvæði 18. gr. er lögaðila sem fellur undir 9. tölul. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, heimilt á árinu 2021 að óska eftir skráningu á sérstaka almannaheillaskrá Skattsins á tímabilinu 1. nóvember til 31. desember 2021 vegna gjafa og framlaga sem móttekin eru á því tímabili, sbr. 12. gr. laga nr. 32/2021, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

(2) Endurnýjun skráningar á almannaheillaskrá skal fara fram í fyrsta sinn fyrir 15. febrúar 2023.

Fara efst á síðuna ⇑