Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.3.2024 08:56:45

Reglugerð nr. 990/2001, kafli 1 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=990.2001.1)
Ξ Valmynd

I. KAFLI
1. gr.
Vaxtabætur.

Ríkissjóður skal greiða vaxtabætur til manna sem bera vaxtagjöld af lánum sem tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota eftir því sem nánar er kveðið á um í þessari reglugerð.

2. gr.
Réttur til vaxtabóta.

(1) Maður, sem skattskyldur er skv. 1. gr. laga nr. [90/2003]1), um tekjuskatt [---] 2)og eignarskatt og ber vaxtagjöld af lánum sem tekin hafa verið vegna kaupa, byggingar eða endurbóta, sbr. 3. gr., á íbúðarhúsnæði til eigin nota, þar með talin kaup á [búseturétti samkvæmt lögum nr. 66/2003 og kaup á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt eldri lögum]2), á rétt á vaxtabótum, enda geri hann grein fyrir lánum og vaxtagjöldum af þeim í sérstakri greinargerð með skattframtali [skv. 1. mgr. 90. gr. laga nr. 90/2003/, um tekjuskatt,]2) í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

(2) Réttur til vaxtabóta er bundinn við eignarhald á íbúðarhúsnæði til eigin nota og stofnast við kaup eða þegar bygging þess hefst.

(3) Réttur til vaxtabóta fellur niður þegar íbúðarhúsnæði telst ekki lengur til eigin nota, sbr. 4. gr.

(4) Verði íbúðarhúsnæði selt án þess að hafin sé bygging eða fest kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota á sama ári, fellur réttur til vaxtabóta niður frá þeim tíma sem sala átti sér stað.

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 559/2004. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 228/2016
 

3. gr.
Endurbætur.

(1) Lán frá Íbúðalánasjóði vegna verulegra endurbóta á íbúðarhúsnæði til eigin nota mynda rétt til vaxtabóta, enda sé gerð fullnægjandi grein fyrir endurbótunum á húsbyggingarskýrslu með skattframtali.

(2) Til verulegra endurbóta skv. 1. mgr. teljast m.a. eftirfarandi framkvæmdir, [---]1):

  1. Endurbygging eða viðamikil viðgerð á þaki.

  2. Endurnýjun á gluggum, jafnt gluggakörmum, póstum og gleri.

  3. Endurnýjun á rafkerfi.

  4. Endurnýjun á lagnakerfi.

  5. Utanhússklæðning.

  6. Endureinangrun og/eða klæðning á þaki og veggjum.

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 559/2004.
 

4. gr.
Eigin not.

Réttur til vaxtabóta er bundinn við eignarhald á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Með eigin notum er átt við að húsnæðið sé nýtt til íbúðar af eiganda þess sjálfum. Sérstakar tímabundnar aðstæður, svo sem nám, veikindi eða atvinnuþarfir sem valda því að eigandi íbúðarhúsnæðis getur ekki sjálfur nýtt það til íbúðar, leiða þó ekki til þess að hann missi rétt til vaxtabóta. Með tímabundnum aðstæðum er átt við að eigandi íbúðarhúsnæðis geri líklegt að hann muni innan ákveðins tíma taka húsnæðið aftur til eigin nota. [Almennt skal miða við að tímabundnar aðstæður vari ekki lengur en þrjú ár, sem þó er heimilt að framlengja í fimm ár þegar sérstaklega stendur á.]1)

1) Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 639/2011.

5. gr.
Ein íbúð.

[Eigi maður fleiri en eina íbúð, þá á hann einungis rétt á vaxtabótum með einni, þeirri sem ætluð er til eigin nota. Maður getur þó átt rétt á vaxtabótum vegna lána sem tekin eru vegna húsnæðis í byggingu eða kaupa á eldra húsnæði sem unnið er að endurbótum á í beinu fram­haldi af kaupunum og ætlað er til eigin nota, þrátt fyrir að hann eigi á sama tíma húsnæði til eigin nota og njóti vaxtabóta vegna lána sem tengjast öflun þess húsnæðis. Á sama hátt getur réttur til vaxtabóta haldist vegna tímabundins eignarhalds á tveimur íbúðum óháð byggingarstigi þar sem sala reynist ómöguleg vegna óvenjulegra aðstæðna á fasteignamarkaði. Réttur til vaxtabóta af þessum sökum helst allt að þremur árum. Við þessar aðstæður er útleiga íbúðarhúsnæðis heimil án þess að réttur til vaxtabóta skerðist. Réttur til vaxtabóta fellur þó ætíð niður þegar húsnæði telst ekki lengur til eigin nota.]1)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 266/2009. 

6. gr.
Lán til öflunar íbúðarhúsnæðis.

(1) Vaxtagjöld af lánum sem sannanlega hafa verið tekin vegna öflunar íbúðarhúsnæðis eða endurbóta á því, sbr. 3. gr., veita rétt til vaxtabóta. Með vaxtagjöldum er átt við vaxtagjöld vegna fasteignaveðlána til a.m.k. tveggja ára eða lána við lánastofnanir með sjálfskuldar­ábyrgð til a.m.k. tveggja ára.

(2) Vaxtagjöld vegna lána, sem tekin eru til skemmri tíma en tveggja ára, er einungis heimilt að telja með á næstu fjórum árum talið frá og með kaupári. Sé um nýbyggingu að ræða er heimilt að telja þau með á næstu sjö árum talið frá og með því ári þegar bygging hefst, eða til og með því ári sem húsnæði er tekið til íbúðar ef það er síðar.

(3) Lán sem tekin eru vegna greiðsluerfiðleika og eru sannanlega til greiðslu á lánum til öflunar íbúðarhúsnæðis mynda einnig rétt til vaxtabóta að uppfylltum framangreindum tíma­skilyrðum.
 

7. gr.
Vaxtagjöld sem veita rétt til vaxtabóta.

(1) Vaxtagjöld af lánum skv. 6. gr. teljast eftirfarandi:

  1. [Greiddir]1) vextir og [greiddar]1) verðbætur á afborganir og vexti. Til vaxta [telst greiddur gengismunur]1) á afborganir og vexti vegna lána í erlendum gjaldmiðli. Með vöxtum teljast einnig dráttarvextir ársins, en greiddir dráttarvextir vegna fyrri ára teljast ekki með vaxtagjöldum ársins. Annar kostnaður vegna vanskila en dráttarvextir teljast ekki til vaxtagjalda.

  2. Afföll af verðbréfum, víxlum og sérhverjum öðrum skuldaviðurkenningum sem fram­teljandi hefur gefið út sjálfur og selt þriðja aðila og notað andvirðið til fjármögnunar íbúðar til eigin nota, enda sé kaupandi bréfanna nafngreindur. Afföll vegna sölu hús­bréfa teljast til vaxtagjalda hjá þeim sem byggir íbúðarhúsnæði til eigin nota og hefur fengið bréfin gegn afhendingu fasteignaveðbréfa. Sama á við um afföll af húsbréfum sem húsbréfadeild kaupir af lántakanda greiðsluerfiðleikaláns. Afföllin reiknast hlut­fallslega miðað við afborganir á lánstímanum. Afföll vegna sölu húsbréfa og annarra verðbréfa sem seljandi hefur fengið í hendur sem greiðslu á fasteign teljast ekki til vaxtagjalda.

  3. Lántökukostnaður, árlegur eða tímabundinn fastakostnaður, þóknanir, stimpilgjöld og þinglýsingarkostnaður af lánum. Þinglýsingarkostnaður og stimpilgjöld af kaup­samningi eða afsali teljast ekki til vaxtagjalda.

(2) Uppsafnaðar áfallnar verðbætur á lánum sem yfirtekin eru við kaup á íbúð teljast hvorki til vaxtagjalda hjá seljanda né kaupanda, né heldur uppsafnaðar áfallnar verðbætur sem greiddar eru umfram ákvæði viðkomandi skuldabréfs.

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 228/2016
 

8. gr.
Kaupleiguíbúðir.*1)

Þeir sem keypt hafa [búseturétt samkvæmt lögum nr. 66/2003 og eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt eldri lögum]3) eiga rétt á vaxtabótum vegna vaxtagjalda skv. 7. gr. sem innheimt eru með leigugjöldum. Gera þarf grein fyrir vaxtagjöldunum og þeim skuldum sem þau reiknast af á sérstöku eyðublaði sem staðfest er af leigusala og skal það fylgja skattframtali.

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 228/2016 *1)Sjá nú lög nr. 44/1998. Með lögunum var kaupleigukerfið lagt af en skv. bráðabirgðarákvæði V halda samningar sem einstaklingar hafa gert um kaupleiguíbúð gildi sínu. Um réttarstöðu slíkra aðila og um samskipti við framkvæmdaraðila fer eftir því sem segir í 72. gr., 2., 3., 5. og 6. mgr. 73. gr. og 76. gr. laga nr. 97/1993 með þeim takmörkunum þó sem í lögum nr. 44/1998 greinir.
 

9. gr.
Fjárhæð vaxtagjalda til útreiknings vaxtabóta.

(1) [Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta skv. 10 og 11. gr. miðast við fjárhæð vaxtagjalda, sbr. 6. gr., hjá hverjum framteljanda en geta þó ekki orðið hærri en sem nemur 7% af skuldum sem stofnað hefur verið til vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota eins og þær eru í árslok.]2) 3) Þetta á þó ekki við hjá þeim sem:

  1. Selja íbúðarhúsnæði á árinu án þess að afla sér annars íbúðarhúsnæðis fyrir árslok. Skal þá miða við eftirstöðvar skulda eins og þær voru á söludegi.

  2. Flytjast af landi brott á árinu. Skal þá miða við eftirstöðvar skulda eins og þær voru á brottflutningsdegi.

  3. Látast á árinu og láta ekki eftir sig maka. Skal þá miða við eftirstöðvar skulda á andláts­degi.

  4. Keypt hafa [búseturétt samkvæmt lögum nr. 66/2003 og eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð samkvæmt eldri lögum]3). Skal þá miða við eftirstöðvar skulda hjá leigusala vegna lána sem stofnað hefur verið til vegna öflunar íbúðarhúsnæðisins, enda hafi vaxtagjöld af lánunum verið innheimt með leigugjöldum.

(2) Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta samkvæmt þessari grein geta þó ekki verið hærri en [800.000]2) 3) *1) kr. hjá einstaklingi, [1.000.000]2) 3) *1) kr. hjá einstæðu foreldri og [1.200.000]2) 3) kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki. Hámark vaxtagjalda hjá mönnum, sem skattskyldir eru skv. 1. gr. laga nr. [90/2003]1), hluta úr ári, ákvarðast í hlutfalli við dvalartíma á árinu, sbr. [69. gr.]1) laga nr. [90/2003]1).

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 559/2004. 2)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 33/2005. 3)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 228/2016*1)Sjá fjárhæðir skv. 3. mgr. B-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003. 

10. gr.
Ákvörðun vaxtabóta.

(1) Vaxtabætur skal ákvarða þannig að frá vaxtagjöldum, sbr. 9. gr., skal draga fjárhæð er svarar til [8,5%]3) af tekjuskattsstofni. Með tekjuskattsstofni í þessu sambandi er átt við tekjur skv. II. kafla laga nr. [90/2003]1), að teknu tilliti til frádráttar skv. [1., 3., 4. og 5.]3) tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laganna og frádráttur skv. 31. gr. Hjá hjónum eða sambýlisfólki, sem uppfyllir skilyrði 3. mgr. [62. gr.]1) laga nr. [90/2003]1) í lok tekjuárs, enda þótt það óski ekki samsköttunar, skal við útreikning miðað við samanlagðar tekjur beggja að teknu tilliti til frá­dráttar samkvæmt framansögðu. [Hið sama á við um fólk sem sannanlega er í sambúð og heldur heimili saman þótt skilyrði til skráningar á sambúð séu ekki uppfyllt.]3) Þannig ákvarðaðar vaxtabætur skerðast hlutfallslega fari eignir skv. [72. gr.]1) laga nr. [90/2003]1) að frádregnum skuldum skv. 1. mgr. [75. gr.]1) laga nr. [90/2003]1), fram úr [4.000.000]2) 3) *1) kr. hjá einstaklingi uns þær falla niður við [6.400.000]2) 3) *1) kr. eign og [6.500.000]2) 3) *1) kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki uns þær falla niður við [10.400.000]2) 3) kr. eign.

(2) Vaxtabætur manns á því ári sem hann aflar sér íbúðarhúsnæðis og hefur ekki fengið vaxta­bætur árið áður reiknast frá og með þeim ársfjórðungi sem fyrsta fasteignaveðlán vegna íbúðarkaupanna er tekið. Skal hámark vaxtagjalda, sbr. 9. gr., tekjuskattsstofn samkvæmt þessari grein og hámark vaxtabóta, sbr. 11. gr., ákveðið hlutfallslega miðað við upphafstíma láns. Tekjur fyrir þann tíma ársins sem liðinn er og fram að lántöku skerða ekki rétt til vaxta­bóta.

1)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 559/2004. 2)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 33/2005. 3)Sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 228/2016. *1)Sjá fjárhæðir skv. 4. mgr. B-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003.

11. gr.
Fjárhæð vaxtabóta.

Hámark vaxtabóta fyrir hvern mann eru [400.000]2) 3) *1) kr., fyrir einstætt foreldri [500.000]2) 3) *1) kr. og [600.000]2) 3) *1) kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun, sbr. 3. mgr. [62. gr.]1) laga nr. [90/2003]1), í lok tekjuárs. Hámark vaxtabóta hjá þeim sem skattskyldir eru skv. 1. gr. laga nr. [90/2003]1), hluta úr ári, ákvarðast í hlutfalli við dvalartíma á tekjuárinu. Vaxtabætur sem eru lægri en [618]2) kr. á mann falla niður.

1)Sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 559/2004. 2)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 33/2005. 3)Sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 228/2016. *1)Sjá fjárhæðir skv. 4. mgr. B-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003.

12. gr.
Skipting vaxtabóta milli hjóna og sambúðarfólks.

(1) Skipta skal vaxtabótum til helminga milli hjóna. Sama gildir um sambýlisfólk sem upp­fyllir skilyrði fyrir samsköttun skv. 3. mgr. [62. gr.]1) laga nr. [90/2003]1) í lok tekjuárs, enda þótt það óski ekki samsköttunar. Séu skilyrði samsköttunar uppfyllt í árslok, skulu vaxtabætur ákvarðaðar allt árið eins og gildir um hjón.

(2) Við slit á samvistum eða hjúskap þá ákvarðast vaxtabætur fyrir allt árið eins og hjá einstaklingi eða einstæðu foreldri eftir því sem við á, nema óskað sé samsköttunar fram að skilnaði eða sambúðarslitum. Ákvarðast þá vaxtabætur fram að þeim tíma eins og hjá hjónum, en frá þeim tíma og til ársloka eins og hjá einstaklingi eða einstæðu foreldri, eftir því sem við á.

(3) [Sé svo ástatt að einungis annað hjóna er skattskylt hér á landi skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal ákvarða því vaxtabætur hér á landi eftir þeim reglum sem gilda um hjón, enda liggi fyrir upplýsingar um tekjur beggja. [---]3)]2) Við útreikning skal þá miða við vaxtagjöld, tekjur, eignir og skuldir þess maka sem skattskyldur er hér á landi. Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en helmingur hámarksvaxtagjalda hjá hjónum og vaxtabætur geta ekki orðið hærri en helmingur hámarksvaxtabóta fyrir hjón.

(4) Ef annað hjóna sem á rétt á vaxtabótum, fellur frá skal ákvarða eftirlifandi maka, sem situr í óskiptu búi, vaxtabætur eins og um hjón sé að ræða næstu fimm ár eftir lát maka.

1)Sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 559/2004. 2)Sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 228/2016. 3)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 252/2016.
 

Fara efst á síðuna ⇑