Skattalagasafn ríkisskattstjóra 5.12.2024 03:47:31

Reglugerð nr. 192/1993, kafli 4 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=192.1993.4)
Ξ Valmynd

IV. KAFLI

Leiðrétting innskatts af varanlegum rekstrarfjármunum.
12. gr.

(1) Skattskyldur aðili skal leiðrétta (bakfæra) innskatt vegna skattskyldrar starfsemi sinnar verði breyting á [forsendu fyrir færslu]1) innskatts vegna öflunar eftirtalinna varanlegra rekstrarfjármuna:

  1. [Lausafjármuna, svo sem farartækja, véla, tækja, áhalda og innréttinga sem rýrna að verðmæti við eðlilega notkun eða aldur, enda nemi kaupverð (stofnverð) einstakrar eignar eða eignasamstæðu a.m.k. 250.000 kr. (án virðisaukaskatts).]1)
  2. [Mannvirkja, svo sem verslunar-, skrifstofu-, verksmiðju-, verk­stæðis- og vörugeymslubygginga, gisti- og veitingahúsa, úthúsa og ræktunar á bújörðum, gróðurhúsa, bryggja, dráttarbrauta, tanka, borhola, raflína og lagnamannvirkja. Leiðréttingarskyldan tekur til innskatts af efni, vinnu, tækjanotkun o.fl. vegna nýbyggingar, endurbyggingar, endurbóta, breytinga, viðgerða og viðhalds mannvirkja, enda sé samtals verðmæti þessara framkvæmda a.m.k. 500.000 kr. (án virðisaukaskatts).]1)

(2) [Það telst breyting á forsendu fyrir færslu innskatts samkvæmt þessari grein þegar skattaðili naut fulls frádráttarréttar eða frádráttar að hluta þegar eign var keypt eða þegar verk var unnið, en eignin er síðar seld, leigð eða tekin til annarrar notkunar þar sem skattaðila ber enginn frádráttarréttur eða minni frádráttarréttur. Það telst einnig breyting á forsendu ef eignar var aflað fyrir starfsemi sem var virðisaukaskattsskyld við öflun eignarinnar en er síðar undanþegin virðisaukaskatti með lögum, enda þótt ekki sé um breytta notkun eignarinnar að ræða. Enn fremur telst það breyting á forsendu fyrir innskatti þegar ökutæki skv. 1. tölul. 1. mgr. 9. gr. er breytt þannig að ökutækið uppfylli ekki skilyrði þau sem tilgreind eru í 1. tölul. 1. mgr. þótt ekki sé um breytta notkun ökutækis að ræða.1)

(3) [Leiðrétta skal innskatt vegna öflunar eigna, sem notaðar eru við blandaða starfsemi, ef hlutfallstala skv. 5. gr. lækkar um 10 prósentur eða meira frá því ári þegar eignar var aflað, eða frá fyrri leiðréttingu samkvæmt ákvæði þessu eða ákvæði 3. mgr. 13. gr.]1)

[(4)  Þrátt fyrir breytingu á forsendu skal ekki leiðrétta (bakfæra) innskatt í eftirfarandi tilvikum:

  1. Þegar sala eða afhending rekstrarfjármuna telst til skattskyldrar veltu skattaðila, sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 50/1988, og 11. gr. reglugerðar þessarar.
  2. Þegar sala eða afhending rekstrarfjármunar telst til undanþeginnar veltu samkvæmt 12. gr. laga nr. 50/1988.
  3. Þegar eign er seld nauðungarsölu eða ráðstafað skv. 4. mgr. 129. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., með síðari breytingum.
  4. Þegar fasteign er leigð út og leigusali er skráður frjálsri skráningu, sbr. reglugerð nr. 577/1989, um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign.]1)

1)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 1237/2015

13. gr.

[(1) Heimilt er skattaðila að leiðrétta til hækkunar innskatt vegna öflunar eigna skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 12. gr. verði breyting á forsendu fyrir færslu innskatts.4)

(2) [Það telst breyting á forsendu fyrir færslu innskatts samkvæmt þessari grein þegar skattaðili naut einskis eða hlutfallslegs innskattsréttar þegar eign var keypt eða þegar verk var unnið, en eignin er síðar tekin til annarrar notkunar þar sem skattaðila ber meiri innskattsréttur. Það telst einnig breyting á forsendu ef eignar var aflað fyrir starfsemi sem er undanþegin virðisaukaskatti við öflun eignarinnar en er síðar felld undir skattskyldusvið virðisaukaskatts með lögum, enda þótt ekki sé um breytta notkun eignarinnar að ræða.]4)

(3) Heimilt er skattaðila að leiðrétta til hækkunar innskatt vegna öflunar eigna [---]2), sem notaðar eru við blandaða starfsemi, ef hlutfallstala skv. 5. gr. hækkar um 10 prósentur eða meira frá því ári þegar eignar var aflað [eða frá fyrri leiðréttingu samkvæmt þessu ákvæði eða ákvæði 3. mgr. 12. gr.]4).

1)Sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 306/1994.  2)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 306/1994. 3)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 863/2009. 4)Sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1237/2015.
 

14. gr.

(1) [Leiðrétting innskatts vegna öflunar lausafjármuna verður virk við forsendubreytingu, skv. 2. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 13. gr., á næstu fimm árum talið frá og með lokum yfirstandandi almenns tveggja mánaða uppgjörstímabils virðisaukaskatts, skv. 24. gr. laga nr. 50/1988, þegar eignanna var aflað. Ekki skal koma til leiðréttingar vegna forsendubreytingar sem verður eftir að þau fimm ár eru liðin.]2)

[(2) Skylda skattaðila til leiðréttingar innskatts vegna framkvæmda við mannvirki verður virk við forsendubreytingu, sbr. 2. mgr. 12., gr. á næstu tuttugu árum frá því að innskatturinn var færður, þ.m.t. innskattur sem kaupandi hefur yfirtekið leiðréttingarskyldu á skv. 1. mgr. 15. gr. Heimild skattaðila til leiðréttingar innskatts vegna framkvæmda við mannvirki verður virk við forsendubreytingu, sbr. 2. mgr. 13. gr. á næstu sex árum frá því að réttur til færslu innskatts stofnaðist, sbr. 16. gr. laga nr. 50/1988 og 1. gr. þessarar reglugerðar.]2)

(3) [ Verði forsendubreyting innan yfirstandandi uppgjörstímabils viðkomandi skattaðila þegar eignar er aflað eða framkvæmd við mannvirki á sér stað, skal innskattur færður í uppgjör fyrir það tímabil miðað við hina breyttu forsendu. Verði forsendubreyting síðar skal virðisaukaskattsfjárhæð sú sem leiðrétting er reiknuð af framreiknuð miðað við breytingar á byggingarvísitölu. Í tilviki leiðréttingarskyldu (bakfærslu) skal framreikningur miðast annars vegar við byggingarvísitölu í lok þess uppgjörstímabils virðisaukaskatts viðkomandi skatt­aðila þegar innskattur var færður, þ.m.t. innskattur sem lýtur yfirtekinni leiðrétt­ingar­skyldu skv. 1. mgr. 15. gr., og hins vegar við byggingarvísitölu í lok þess uppgjörs­tímabils viðkomandi skattaðila sem leiðrétting skal færð á. Í tilviki heimildar til færslu aukins innskatts skal framreikningur miðast annars vegar við bygg­ingar­vísitölu í lok yfir­stand­andi almenns tveggja mánaða uppgjörstímabils virðisaukaskatts skv. 24. gr. laga nr. 50/1988, þegar eign var keypt eða þegar framkvæmd við mannvirki fór fram og hins vegar við byggingarvísitölu í lok yfirstandandi uppgjörstímabils viðkomandi skattaðila þegar honum heimilast aukinn innskattur. Framreiknaða fjárhæð innskatts skal leiðrétta til lækkunar eða er heimilt að leiðrétta til hækkunar sem hér segir:

  1. Vegna lausafjármuna, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 12. gr., um 80% á næsta ári eftir því ári þegar eignar var aflað, um 60% á þarnæsta ári og lækkar síðan um 20 prósentur árlega. Verði forsendubreyting á fyrsta almanaksári, um 96,67% á næsta tveggja mánaða almenna uppgjörstímabili eftir að eignar var aflað, um 93,34% á þarnæsta almenna tveggja mánaða uppgjörstímabili og lækkar síðan um 3,33% fyrir hvert almennt tveggja mánaða uppgjörstímabil til loka almanaksársins.
  2. Vegna mannvirkja, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 12. gr., um 95% á næsta ári eftir því ári þegar framkvæmd við mannvirki fór fram, um 90% á þarnæsta ári og lækkar síðan um 5 prósentur árlega. Verði forsendubreyting á fyrsta almanaksári, um 99,17% á næsta tveggja mánaða almenna uppgjörstímabili eftir að framkvæmd við mannvirki fór fram, um 98,34% á þarnæsta almenna tveggja mánaða uppgjörstímabili og lækkar síðan um 0,83% fyrir hvert almennt tveggja mánaða uppgjörstímabil til loka almanaksársins.]2)

(4) [Við breytingu á hlutfallstölu skv. 5. gr. skal leiðrétting vegna hvers einstaks almanaksárs nema 1/5 að því er varðar lausafjármuni, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. en 1/20 að því er varðar mannvirki, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 12. gr., af framreiknaðri fjárhæð virðisaukaskatts til leiðréttingar, sbr. 3. mgr.]2)

(5) [Leiðréttingarfjárhæð skal færa á innskattsreikning á því uppgjörstímabili virðisaukaskatts þegar leiðrétting á sér stað.]2)

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1044/2006. 2)Sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 1237/2015.
 

15. gr.

(1) Við kaup [mannvirkis]2) getur kaupandi yfirtekið leiðréttingarskyldu vegna eftirstöðva tímabils skv. 14. gr. að því leyti sem hann hefur [innskattsrétt]2) vegna eignarinnar. Seljandi skal leiðrétta innskatt að því leyti sem [innskattsréttur]2) kaupanda kann að vera minni en seljanda. Að öðru leyti fellur leiðréttingarskylda seljanda samkvæmt reglugerð þessari niður.

(2) Þegar eignaryfirfærsla á fasteign, vélum eða öðrum rekstrarfjármunum á sér stað í sambandi við eigendaskipti á fyrirtæki eða hluta þess skv. 4. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, á leiðréttingartímabilinu, getur kaupandi, sem hefur minnst sama frádráttarrétt vegna rekstrarfjármuna og seljandi hafði við öflun, yfirtekið alla leiðréttingarskylduna vegna eftirstöðva tímabilsins. Sé frádráttarréttur kaupanda minni en seljanda, getur kaupandi yfirtekið þann hluta leiðréttingarskyldunnar sem hann á rétt á og skal seljandi þá standa skil á þeirri leiðréttingarskyldu sem eftir er.

(3) [Yfirtaki kaupandi leiðréttingarskyldu skulu seljandi og kaupandi sameiginlega tilkynna [Skattinum]3) um yfirtökuna innan átta daga frá því að viðskiptin áttu sér stað. Í tilkynningu skal tilgreina fjárhæð þess innskatts sem leiðréttingarskyldan tekur til, greinda niður á þau ár og uppgjörstímabil virðisaukaskatts þegar innskatturinn var færður. Jafnframt skal tilgreina í hvaða hlutfalli kaupandi yfirtekur leiðréttingarskylduna og í hvaða hlutfalli hún kemur til leiðréttingar hjá seljanda. Tilkynningu skal fylgja yfirlýsing kaupanda um yfirtöku leiðréttingarskyldu.]2)

1)Sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1143/20142)Sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 1237/20153)Sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 1253/2020.
 

16. gr.

     Um bókhald og varðveislu gagna vegna breytingar á forsendum fyrir frádrætti innskatts fer samkvæmt reglugerð nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.
 

Fara efst á síðuna ⇑