Skattalagasafn ríkisskattstjóra 21.11.2024 12:20:56

Reglugerð nr. 515/1996 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=515.1996)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 515/1996, um skráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.*1)

*1)Sbr. reglugerðir nr. 378/1997215/2006 og 1010/2022.
 

I. KAFLI
Almenn skráning.

1. gr.

(1) Hver sá, sem skattskyldur er skv. 3. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 50/1988, skal ótilkvaddur eigi síðar en átta dögum áður en starfsemin hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá [Skattinum]1) þar sem hann á lögheimili.

(2) Tilkynningar skv. 1. mgr. skal senda [Skattinum]1) á eyðublaði [RSK 5.02]1).

(3) Breytingar, sem verða á starfsemi eftir að skráning hefur farið fram, skal tilkynna [Skattinum]1) skriflega eigi síðar en átta dögum eftir að breyting á sér stað.

1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

2. gr.

(1) Hver sá sem í atvinnuskyni eða með sjálfstæðri starfsemi sinni selur eða afhendir vöru eða verðmæti, ellegar innir af hendi skattskylda vinnu eða þjónustu eða er skattskyldur að öðru leyti skv. 3. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 50/1988, skal skráður á virðisaukaskattsskrá, enda uppfylli hann skilyrði 2. mgr.

(2) Forsenda skráningar er að samanlagðar tekjur aðila af sölu skattskyldrar vöru og þjónustu séu að jafnaði hærri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með virðisaukaskatti til starfseminnar, þar með talið vegna kaupa varanlegra rekstrarfjármuna. Eigi skal skrá aðila samkvæmt þessari grein nema sýnt þyki að starfsemin muni skila tekjum af sölu skattskyldrar vöru eða þjónustu þegar á fyrsta uppgjörstímabili.

(3) Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. er aðili ekki skráningarskyldur ef samanlagðar tekjur hans af sölu skattskyldrar vöru og þjónustu á tólf mánaða tímabili hafa ekki náð þeirri lágmarksfjárhæð sem greinir í 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1988

3. gr.

(1) [Ríkisskattstjóri]1) úrskurðar um hvort aðili sé skráningarskyldur skv. 2. gr. þegar tilkynning skv. 1. gr. hefur borist.

(2) [Ríkisskattstjóra]1) ber þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. að skrá aðila uppfylli hann skilyrði 4. eða 6. gr.

(3) [Ríkisskattstjóri]1)gefur út staðfestingu til skráningarskylds aðila um að skráning skv. 1. eða 2. mgr. hafi átt sér stað.

(4) Hafi aðili, sem að mati [ríkisskattstjóra]1) er skráningarskyldur skv. 2. gr., eigi tilkynnt starfsemi sína til skráningar, skal [ríkisskattstjóri]1) úrskurða hann á virðisaukaskattsskrá og tilkynna honum það. 

1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

II. KAFLI
Fyrirfram skráning o.fl.

4. gr.

(1) Aðilar er stunda starfsemi á þróunar- eða undirbúningsstigi eiga rétt á skráningu, þrátt fyrir ákvæði 2. gr., standi kaup þeirra á fjárfestingarvörum í beinu sambandi við sölu á skattskyldri vöru eða þjónustu í atvinnuskyni á síðari rekstrartímabilum.

(2) Skilyrði skráningar samkvæmt þessu ákvæði eru eftirfarandi:

  1. Um sé að ræða atvinnustarfsemi, þ.e. starfsemi sem miði að rekstrarhagnaði eftir eðlilegan uppbyggingartíma.
  2. Fjárfesting aðila í varanlegum rekstrarfjármunum, þar með talið fasteignum og ræktun, eða vörubirgðum sé veruleg á sama tíma og eðlilegt sé vegna eðlis starfseminnar að hún skili ekki rekstrartekjum; ekki er nægilegt að aðili hafi verulegan kostnað af virðisaukaskatti vegna almenns rekstrarkostnaðar.
  3. Fyrirsjáanlegt sé að starfsemin muni skila tekjum. 

(3) Skráning samkvæmt þessu ákvæði gildir í tólf mánuði. Aðili sem hefur verið skráður fyrirfram skráningu getur fengið skráningu í tólf mánuði til viðbótar hjá [ríkisskattstjóra]2), þyki staðfest að forsendur skráningar séu óbreyttar frá því að aðili var skráður í upphafi. [Þyki eðlilegt að starfsemin hafi ekki skilað tekjum innan þess tíma getur [ríkisskattstjór1]2) veitt aðila áframhaldandi skráningu til allt að tíu ára, mest tvö ár í senn.]1) Að öðrum kosti ber [ríkisskattstjóra]2) að úrskurða aðila af skrá nema lögð sé fram trygging skv. 6. gr.

1)Sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 215/20062)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

5. gr.

(1) Þeir sem óska eftir skráningu skv. 4. gr. skulu senda [Skattinum]1), auk tilkynningar skv. 2. mgr. 1. gr., rekstraráætlun, greinargerð og önnur gögn um starfsemina til staðfestingar því að um eðlilega rekstraruppbyggingu verði að ræða.

(2) [Ríkisskattstjóri]1) metur hvort skilyrðum a.-c. liða 2. mgr. 4. gr., sé fullnægt. Við mat samkvæmt þessari málsgrein getur [ríkisskattstjóri]1) m.a. haft mið af því hvernig fjármögnun á uppbyggingu starfseminnar er háttað, t.d. hvort lagt hefur verið fram hlutafé eða lán hafi fengist til starfseminnar frá banka eða atvinnuvegasjóði. 

1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

6. gr.

(1) Uppfylli aðili ekki skilyrði 2. eða 4. gr. skal [ríkisskattstjóri]2) synja um skráningu nema aðili leggi fram tryggingu fyrir virðisaukaskatti, í formi skilyrðislausrar sjálfskuldarábyrgðar banka. Þó getur [ríkisskattstjóri]2) fallist á tryggingu í öðru formi ef aðili hefur með höndum nytjaskógrækt, enda sé tilgangur skógræktarinnar að framleiða og selja afurðir á síðari rekstrarárum. Ef aðili getur ekki lagt fram fullnægjandi tryggingu ber [ríkisskattstjóra]2) að synja um skráningu.

(2) Skráning skv. 1. málsl. 1. mgr. getur ekki tekið til lengri tíma en [tólf]1) ára að meðtöldum þeim tíma sem aðili hefur verið skráður skv. 4. gr.

(3) [Trygging skal á hverjum tíma nægja til greiðslu útskatts, sbr. 1. mgr. 9. gr. og til greiðslu á leiðréttum innskatti, sbr. 2. mgr. 9. gr.]1)

1)Sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 215/2006.

7. gr.

(1) Hafi aðila verið synjað um skráningu, en síðar kemur í ljós að hann uppfyllir skilyrði 2. eða 4. gr. eða hann leggur fram tryggingu skv. 6. gr., er [ríkisskattstjóra]1) heimilt að skrá hann afturvirkt til þess dags sem telja verður upphafsdag rekstrar. Skilyrði fyrir afturvirkri skráningu er að um sömu starfsemi sé að ræða og að beiðni um afturvirka skráningu ásamt viðeigandi gögnum sé send [Skattinum]1) í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Afturvirk skráning getur tekið til þess tíma sem liðinn er af yfirstandandi ári og að auki til alls síðasta árs sé sótt um hana fyrir 15. mars.

(2) Fái aðili afturvirka skráningu skv. 1. mgr. á hann rétt á að telja til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum til starfseminnar en ber jafnframt að draga frá reiknaðan virðisaukaskatt (útskatt) af veltu á sama tíma.

(3) Aðili sem uppfyllir skilyrði afturvirkrar skráningar skal skráður á virðisaukaskattsskrá frá upphafsdegi rekstrar skv. 1. mgr. Skattuppgjör vegna afturvirkrar skráningar skal fara fram á gjalddaga þess uppgjörstímabils þegar [ríkisskattstjóri]1) úrskurðaði um hina afturvirku skráningu. Sé um endurgreiðslu að ræða og [ríkisskattstjóri]1) getur ekki vegna aðstæðna skattaðila gert nauðsynlegar athuganir á gögnum þeim er skattuppgjör eða afturvirk skráning byggist á frestast hún til næsta gjalddaga. 

III. KAFLI
Afskráning.

8. gr.

(1) Hætti aðili skráningarskyldri starfsemi eða uppfylli hann ekki lengur skilyrði 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. skal hann tilkynna [ríkisskattstjóra]1) um það eigi síðar en átta dögum eftir að breyting átti sér stað. [Ríkisskattstjóri]1) úrskurðar aðila af skrá.

(2) Hafi aðili eigi tilkynnt lok skráningarskyldrar starfsemi sinnar skv. 1. mgr. og [ríkisskattstjóri]1) telur að ekki sé um skráningarskylda starfsemi að ræða skal [hann]1) úrskurða aðila af skrá.

(3) Aðila sem skráður er skv. 4. eða 6. gr. ber að tilkynna [ríkisskattstjóra]1) um það þegar ljóst þykir að forsendur skráningarinnar eru ekki lengur til staðar. [Ríkisskattstjóri]1) úrskurðar aðila af skrá.

(4) Hafi starfsemi aðila verið skráð skv. 4. gr. og skilyrði 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. hafa ekki verið uppfyllt á tólf mánaða tímabili, skal [ríkisskattstjóri]1) úrskurða aðila af skrá nema áframhaldandi skráning hafi verið veitt eða sett trygging fyrir innskatti skv. 6. gr. Uppfylli aðili, sem skráður hefur verið skv. 6. gr., ekki lengur skilyrði um fullnægjandi tryggingu eða sé tímamörkum 2. mgr. 6. gr. náð skal [ríkisskattstjóri]1) úrskurða hann af skrá. 

1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

9. gr.

(1) Tilkynni aðili sig út af skrá eða er tekinn af skrá á grundvelli úrskurðar [ríkisskattstjóra]1), skal telja vörubirgðir, vélar, tæki og aðra rekstrarfjármuni til skattskyldrar veltu á því uppgjörstímabili er starfsemi lýkur, sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 50/1988.

(2) Verði við lok starfsemi breyting á forsendum fyrir frádrætti innskatts vegna varanlegra rekstrarfjármuna skal aðili leiðrétta innskatt í samræmi við IV. kafla reglugerðar nr. 192/1993, um innskatt.

(3) Hafi aðili gefið rangar eða villandi upplýsingar, t.d. varðandi skráningu eða skattskil, og með þeim hætti haft fé af ríkissjóði ber honum að endurgreiða þann innskatt sem hann hefur fengið afgreiddan á grundvelli þeirra upplýsinga. 

1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.

10. gr.

(1) Um uppgjörstímabil og gjalddaga þeirra aðila sem eru nýir á skrá fer eftir ákvæðum 3. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti. [---]1)

(2) Aðili sem fengið hefur skráningu skv. 4. eða 6. gr., skal skila sérstakri virðisaukaskattsskýrslu vegna þeirrar starfsemi, þótt hann hafi með höndum aðra skattskylda starfsemi.

(3) [Ríkisskattstjóri]2) skal hafa eftirlit með því að aðeins skráningarskyldir aðilar séu á virðisaukaskattsskrá.

1)Sbr. reglugerð nr. 378/19972)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

11. gr.

     Synjun [ríkisskattstjóra]1) um skráningu er kæranleg skv. 29. gr. laga nr. 50/1988.

 1)Sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 1010/2022.

12. gr.

(1) Tryggingum skv. 6. gr. er ætlað að tryggja greiðslu á virðisaukaskatti skv. 9. gr.

(2) Trygging skv. 6. gr. fellur úr gildi í eftirfarandi tilvikum:

  1. Þegar aðili uppfyllir skilyrði 2. eða 4. gr.
  2. Þegar aðili hefur hætt skráningarskyldri starfsemi og staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á þeim virðisaukaskatti sem honum bar að standa skil á skv. 9. gr.
  3. Þegar eigendaskipti verða á fyrirtæki skv. 4. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988 og hinn nýi eigandi hefur sett fullnægjandi tryggingu fyrir innskatti skv. 6. gr. 

13. gr.

     Röng skýrslugjöf eða framlagning rangra eða villandi gagna, svo og röng upplýsingagjöf látin í té í því skyni að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti varðar við 40. gr. laga nr. 50/1988.

14. gr.

     Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 5. og 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 1997. Frá 1. október 1996 fellur úr gildi reglugerð nr. 150/1996, sbr. reglugerð nr. 273/1996. 

Bráðabirgðaákvæði.
Bráðabirgðaákvæði með reglugerð nr. 515/1996 er ekki birt hér. 

Fara efst á síðuna ⇑