Skattalagasafn ríkisskattstjóra 11.10.2024 21:21:04

nr. 759/2011 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=759.2011.0)
Ξ Valmynd

Reglur

nr. 759/2011, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til undirbúningsnefndar

Stofnunar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn

 1. gr.
Gildissvið.

Eftir ákvæðum reglna þessara getur undirbúningsnefnd Stofnunar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn, hér á eftir nefnd „undirbúningsnefndin“, fengið endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hún hefur greitt hér á landi vegna kaupa á vörum og þjónustu í þágu starfsemi sinnar.
 

2. gr.
Endurgreiðslutímabil o.fl.

(1) Endurgreiðslutímabil samkvæmt reglum þessum er sex mánuðir, frá janúar til og með júní og frá júlí til og með desember.

(2) Fjárhæð virðisaukaskatts sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal nema a.m.k. 30.300 kr.*1)

(3) Undirbúningsnefndin getur fengið heimild hjá ríkisskattstjóra til að nota almennar reglur um uppgjörstímabil virðisaukaskatts nái endurgreiðslufjárhæð 200.000 kr. á tímabilinu.

*1)Fjárhæðin breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við byggingarvísitölu. Frá 1. janúar 2022 er hún 48.100 kr.

3. gr.

Umsókn um endurgreiðslu, í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, skal hafa borist ríkisskattstjóra í síðasta lagi sex mánuðum eftir lok þess endurgreiðslutímabils sem umsóknin tekur til. Með umsókn skal fylgja frumrit sölureikninga eða greiðsluskjala úr tolli þar sem kemur fram sá virðisaukaskattur sem stofnunin hefur greitt. Þessi skjöl skulu endursend undirbúningsnefndinni að lokinni afgreiðslu. 

4. gr.
Afgreiðsla á umsóknum.

(1) Ríkisskattstjóri afgreiðir beiðnir um endurgreiðslu samkvæmt reglum þessum. Hann skal rannsaka endurgreiðslubeiðni og getur hann í því sambandi krafið undirbúningsnefndina og þá sem selt hafa henni vörur þær og þjónustu sem umsókn varðar nánari skýringa á viðskiptunum. Ríkisskattstjóri skal tilkynna Fjársýslu ríkisins um samþykki sitt til endurgreiðslu og sér Fjársýslan um endurgreiðsluna.

(2) Umsóknir sem berast innan skilafrests og með réttum fylgigögnum skulu afgreiddar eigi síðar en einum mánuði og fimm dögum eftir lok endurgreiðslutímabils. Endurgreiðslubeiðnir sem berast eftir lok skilafrests skulu afgreiddar með beiðnum næsta endurgreiðslutímabils.
 

5. gr.
Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru vegna skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt 11. gr. samkomulags milli ríkisstjórnar lýðveldisins Íslands og undirbúningsnefndar Stofnunar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn um stjórn starfsemi, meðal annars starfsemi eftir vottfestingu, sem tengist alþjóðlegum vöktunarvirkjum viðvíkjandi samningnum um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn, taka þegar gildi. 
 

Bráðabirgðaákvæði.

     Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 3. gr. reglna þessara er endurgreiðsla virðisaukaskatts heimil frá gildistöku samkomulagsins þann 26. janúar 2006.
 

Fara efst á síðuna ⇑