Skattalagasafn ríkisskattstjóra 25.4.2024 04:34:16

nr. 1132/2020 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=1132.2020.0)
Ξ Valmynd

Reglur ríkisskattstjóra

nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

1. gr.
Gildissvið.

(1) Telji ríkisskattstjóri aðila hafa gerst brotlegan við ákvæði laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, reglugerða, reglna eða ákvarðana ríkisskattstjóra sem á þeim byggja er heimilt, með samþykki málsaðila, að ljúka máli með sátt, enda hafi aðilinn eftir atvikum látið af háttsemi eða gert viðeigandi úrbætur.


​(2) Heimild til sáttar nær ekki til meiriháttar brota sem refsiviðurlög liggja við. Brot telst meiri­háttar ef það lýtur að verulegum fjárhæðum, ef verknaður er framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brotsins.

2. gr.
Inntak sáttar.

​(1) Í sátt felst að málsaðili gengst við að hafa brotið gegn ákvæðum laga eða ákvörðunum embættisins, upplýsir að fullu um brotið og gerir samkomulag við ríkisskattstjóra um tiltekna sektar­greiðslu.

​(2) Sátt er bindandi fyrir málsaðila og ríkisskattstjóra þegar báðir aðilar hafa samþykkt og staðfest efni hennar með undirskrift sinni innan frests skv. 5. mgr. 4. gr. reglnanna.

3. gr.
Ákvörðun sektarfjárhæðar.

​(1) Sé máli lokið með sátt er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða. Við mat á sektarfjárhæð skal litið til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar aðili fellst á að ljúka máli með sátt.

​(2) Sé máli lokið með sátt við upphaf athugunar málsins getur sektarfjárhæð numið allt að 50% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar. Sé máli lokið með sátt á síðari stigum getur sektarfjárhæð numið allt að 70% af ætlaðri fjárhæð stjórnvaldssektar.

4. gr.
Málsmeðferð.

​(1) Ríkisskattstjóri skal í upphafi máls eða á síðari stigum þess vekja athygli málsaðila á því að heimilt sé að ljúka máli með sátt, enda talið að málsatvik liggi ljós fyrir og séu að öðru leyti með þeim hætti að sátt komi til álita.

​(2) Í máli sem beinist að einstaklingi og lokið getur með sátt, skal ríkisskattstjóri upplýsa aðila um rétt hans til að neita að svara spurningum eða afhenda gögn að því marki að ekki skarist á við ákvæði 1. mgr. 2. gr.

​(3) Óski málsaðili eftir að ljúka máli með sátt, og ríkisskattstjóri fellst á beiðnina, skal senda málsaðila sáttargerð til samþykktar.

​(4) Í sáttargerð skal m.a. koma fram dagsetning, nafn málsaðila, kennitala, heimilisfang, númer máls hjá ríkisskattstjóra, lýsing á broti, tilvísun til laga og reglna, sektarfjárhæð og viðurlög við broti á sátt.

​(5) Hafi sátt komist á skal ríkisskattstjóri senda málsaðila tvö eintök af sáttargerð. Málsaðili skal undir­rita og senda bæði eintökin til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá móttöku þeirra. Ríkis­skatt­stjóri undirritar því næst bæði eintök sáttargerðarinnar og sendir málsaðila annað eintakið ásamt kröfu þar sem veittur er 30 daga greiðslufrestur.

​(6) Verði ekki af sátt, eða ef sátt er felld úr gildi sbr. 5. gr. reglnanna, mun ríkisskattstjóri taka málið fyrir að nýju og ákvarða sekt samkvæmt almennum reglum sem gilda um sektarákvarðanir með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum.

5. gr.
Brot gegn sátt.

​(1) Málsaðili telst brjóta gegn sáttargerð ef hann t.d. greiðir ekki tímanlega umsamda sektarfjárhæð, gefur eða reynist hafa gefið rangar upplýsingar um málsatvik, leynir upplýsingum sem máli skipta, hefur aftur brotlega háttsemi eða gerir ekki þær úrbætur sem áður var krafist eða gengist var undir.

​(2) Verði málsaðili uppvís að því að brjóta gegn sáttargerð getur ríkisskattstjóri fellt sáttina úr gildi, tekið málið til meðferðar á ný og eftir atvikum ákvarðað aðila stjórnvaldssekt fyrir það brot sem um ræðir, þ.e. óháð þeim mildandi aðstæðum sem lagðar voru til grundvallar sáttargerðinni eftir því sem mælt er í 46. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðju­verka.

6. gr.
Birting sáttar.

Að jafnaði, þegar sáttargerð er orðin bindandi fyrir málsaðila, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglnanna, skal hún birt á heimasíðu Skattsins, sbr. þær reglur sem settar hafa verið samkvæmt 53. gr. laga nr. 140/2018, nema sérstakar ástæður mæli því í mót.

7. gr.
Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, öðlast gildi við birtingu.
 

Fara efst á síðuna ⇑