Skattalagasafn ríkisskattstjóra 26.4.2024 00:15:58

nr. 2/2022 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=2.2022.0)
Ξ Valmynd

 

Auglýsing
frá ríkisskattstjóra, nr. 2/2022, um skil á upplýsingum vegna tekjuársins 2021, sbr. reglugerð nr. 1240/2015, með síðari breytingum.

 

Fjármálastofnanir, sem tilkynningarskyldar eru skv. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upplýsingum vegna ársins 2021 um erlenda reikningshafa, þó ekki bandaríska, til Skattsins eigi síðar en 31. maí 2022.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskyldan tekur til reikninga erlendra aðila, (innlánsreikninga, vörslu­­reikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
    Þegar áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að reikningshafi sé erlendur aðili, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
  1. Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri ráðandi aðila (e. controlling person),1) sem teljast erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu þeirra, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015..
  2. Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
  3. Reikningsstöðu í árslok 2021. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2021 skal staða reiknings vera núll.
  1. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
  1. Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2021.
  2. Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2021.
  1. Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun sbr. 42. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og erlendar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast erlendir aðilar.
  1. Þrátt fyrir að fjármálastofnanir, sem falla undir tilkynningarskyldu, hafi enga reikninga í eigu eða umráðum erlendra aðila skulu þær engu að síður skila núllskýrslum til Skattsins í samræmi við skilalýsingu, og staðfesta með þeim hætti að upplýsingaskyldu hafi verið sinnt.

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
 
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.
 
Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil skal senda á netfangið: crs.fatca@skatturinn.is.
 
Staðfesta skal sendingu gagna með tilkynningu á netfangið crs.fatca@skatturinn.is. Jafnframt skal í þeim sama tölvupósti tilgreina nafn og netfang þess tengiliðar tilkynningaskylda aðilans sem hefur með höndum samskipti við Skattinn samkvæmt auglýsingu þessari.
______________
1)Ráðandi aðili er skilgreindur með sama hætti og raunverulegur eigandi í 13. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Auglýsing þessi er birt skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
 

 

Fara efst á síðuna ⇑