Skattalagasafn ríkisskattstjóra 25.4.2024 15:23:10

nr. 1491/2021 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=1491.2021.0)
Ξ Valmynd

Auglýsing
frá ríkisskattstjóra, nr. 1491/2021, um skil og skilamáta á FATCA-upplýsingum vegna tekjuársins 2021, sbr. FATCA-samning Íslands og Bandaríkjanna.

 

Fjármálastofnanir, sem tilkynningaskyldar eru skv. o-lið 1. tölul. 1. gr. FATCA-samnings Íslands og Bandaríkjanna, sbr. auglýsingu nr. 4/2015 í C-deild Stjórnartíðinda, skulu skila upplýsingum vegna ársins 2021 til Skattsins eigi síðar en 31. maí 2022.

  1. Tilkynninga- og upplýsingaskylda tekur til reikninga bandarískra aðila (innlánsreikninga, vörslu­reikninga, vátryggingasamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).

Skila skal m.a. eftirfarandi upplýsingum um ofangreinda reikninga í eigu einstaklinga og lög­aðila ef áreiðanleikakönnun skv. FATCA-samningi Íslands og Bandaríkjanna leiðir í ljós að reikningshafi sé bandarískur aðili eins og hann er skilgreindur í ofangreindum samningi:

  1. Nafni, heimilisfangi og bandarískri skattkennitölu sérhvers tilgreinds bandarísks reiknings­hafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningaskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera bandarískur en áreiðanleikakönnun skv. FATCA-samningnum leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri stjórnandi aðila, sem teljast vera bandarískir aðilar skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og banda­ríska skatt­kennitölu sérhvers stjórnandi aðila.
  2. Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
  3. Reikningsstöðu í árslok 2021. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2021 skal staða reiknings vera núll.
  1. Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
  1. Sé um að ræða innlánsreikning skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2021.
  2. Sé um að ræða vörslureikning skal skila upplýsingum um verga heildarfjárhæð greiddra vaxta, verga heildarfjárhæð arðs og verga heildarfjárhæð annarra tekna sem myndast vegna þeirra eigna sem viðkomandi reikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2021. Þá skal jafnframt skila upplýsingum um vergan heildarafrakstur af sölu eða innlausn eignar sem hefur verið greiddur eða færður sem tekjur inn á reikninginn á árinu 2021.
  3. Sé um að ræða vátryggingasamning að tilteknu peningavirði eða lífeyrissamning skal skila upplýsingum um peningavirði eða endurkaupsvirði.
  1. Sé reikningshafi óvirkur erlendur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun (e. Passive NFFE), sbr. 3. tölul. B-liðar VI. liðar í I. viðauka við FATCA-samninginn skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og bandarískar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast bandarískir aðilar.
  2. Ef reikningur er skilgreindur sem eldri reikningur samkvæmt FATCA-samningnum og reikningshafi veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar um mögulega skattskyldu sína í Bandaríkjunum, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin fara með reikninginn sem andstöðureikning og senda allar nauðsynlegar upplýsingar til Skattsins, sbr. tölul. 1-3 hér að framan.
  3. Þrátt fyrir að fjármálastofnanir, sem falla undir tilkynningaskyldu, hafi enga reikninga í eigu eða umráðum bandarískra aðila skulu þær engu að síður skila núllskýrslum til Skattsins í samræmi við skilalýsingu, og staðfesta með þeim hætti að upplýsingaskyldu hafi verið sinnt.

Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningaskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni:
https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/fatca/.
Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil skal senda á netfangið: crs.fatca@skatturinn.is.
Staðfesta skal sendingu gagna með tilkynningu á netfangið crs.fatca@skatturinn.is. Jafnframt skal í þeim sama tölvupósti tilgreina nafn og netfang þess tengiliðs hins tilkynningaskylda aðila sem hefur með höndum samskipti við Skattinn samkvæmt auglýsingu þessari.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Fara efst á síðuna ⇑