Skattalagasafn ríkisskattstjóra 19.4.2024 12:27:33

Reglugerð nr. 1640/2021 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=1640.2021.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð

nr. 1640/2021, um innheimtu þinggjalda og jöfnunargjalds á árinu 2022. 

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2021 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2022. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er mánuði eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

2. gr.

(1) Þar til álagning ársins 2022 liggur fyrir skal hver gjaldandi greiða fyrirfram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2021 og 8,5% af jöfnunargjaldi vegna alþjónustu sem greiða bar á árinu 2021. Við skiptingu fyrirframgreiðslu­skyldu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 5.000 kr. á hverjum gjalddaga.
 
(2) Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, sérstakur fjár­sýslu­skattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki og jöfnunargjald alþjónustu.
 
(3) Einstaklingar skulu fyrirframgreiða tekjuskatt, útsvar og jöfnunargjald alþjónustu eftir því sem kveðið er á um.

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingar vegna heimilisstarfa, ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu skal vera einn, 1. júní.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf., ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og trygg­inga­gjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu er 1. nóvember.

4. gr.

(1) Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjald­daga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

(2) Vanskil gjaldanda að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar gjaldandans falla í eindaga mánuði eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagn­ingu er lokið.

5. gr.

Heimilt er gjaldanda að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2022 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkis­skattstjóra til ákvörðunar.

6. gr.

(1) Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn gjaldanda, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2021 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2020. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

(2) Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna gjald­anda eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila. 

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2022 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112., 114. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og 22. gr. laga nr. 81/2003, um fjarskipti, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Fara efst á síðuna ⇑