Skattalagasafn ríkisskattstjóra 25.4.2024 23:06:29

Reglugerð nr. 644/2018 (slóð: www.skattalagasafn.is?reg=644.2018.0)
Ξ Valmynd

Reglugerð
nr. 644/2018, um birtingu tilkynningar um álagningu bifreiðagjalds.

1. gr.

Tilkynning um álagningu bifreiðagjalds telst birt skráðum eiganda ökutækis þegar hann getur nálgast hana í pósthólfi á vefsvæðinu Ísland.is sem rekið er af Þjóðskrá Íslands. Álagningin er bindandi frá og með þeim degi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 9. gr. laga nr. 39/1988, um bifreiðagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fara efst á síðuna ⇑