III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
Útskattur af skattskyldri veltu samkvæmt reglugerð þessari skal reiknaður og stemmdur af við bókhald eftir hvert uppgjörstímabil. Við slíka afstemmingu skulu m.a. liggja fyrir upplýsingar um heildarkostnað við þá starfsemi sem skattskyld er skv. 2. tölul. 3. gr. Hliðstæð afstemming skal fara fram á innskatti að því leyti sem hann er frádráttarbær frá útskatti samkvæmt reglugerð þessari.
Fjárhæð sú sem um ræðir í 3. tölul. 1. mgr. 2. gr. tekur árlega sömu hlutfallslegu breytingu og byggingarvísitala sú er öðlast gildi 1. janúar ár hvert, sbr. lög nr. 42/1987. Grunnfjárhæð þessi miðast við vísitölu 1. október 1987, þ.e. 102,4 stig.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu skv. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 3. gr. og 23. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt og öðlast gildi 1. janúar 1990.