[IV. KAFLI
Viðurlög og málsmeðferð.]1)
1)Sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.
Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brýtur gegn ákvæðum laga þessara á þann hátt sem lýst er í 38.-40. gr. skal sæta fésektum, en brot gegn 37. gr. og önnur meiri háttar brot gegn 38. gr. varða [–-–]1) fangelsi allt að sex árum skv. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga eða fésektum ef málsbætur eru miklar.]2)
1)Sbr. 218. gr. laga nr. 82/1998. 2)Sbr. a-lið 1. gr. laga nr. 37/1995.
(1) Svofelld háttsemi bókhaldsskylds manns eða fyrirsvarsmanns lögaðila telst ætíð meiri háttar brot gegn lögum:
-
Ef hann færir ekki tilskilið bókhald fyrir sjálfan sig eða lögaðila þannig að hann uppfylli ekki kröfur laga í meginatriðum.
-
Ef hann varðveitir ekki fylgiskjöl eða önnur bókhaldsgögn eða gerir það á svo ófullnægjandi hátt að ógerningur sé að rekja bókhaldsfærslur til viðskipta og byggja bókhaldsbækur og ársreikning á þeim.
-
Ef hann rangfærir bókhald eða bókhaldsgögn, býr til gögn sem ekki eiga sér stoð í viðskiptum við aðra aðila, vantelur tekjur kerfisbundið eða hagar bókhaldi með öðrum hætti þannig að gefi ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga.
-
Ef hann eyðileggur bókhald sitt eða lögaðila, í heild eða einstakar bókhaldsbækur, skýtur þeim undan eða torveldar aðgang að þeim með öðrum hætti. Sama á við um hvers konar bókhaldsgögn sem færslur í bókhaldi verða raktar til.
-
Ef hann lætur undir höfuð leggjast að semja ársreikning í samræmi við niðurstöður bókhalds, eða ársreikningur hefur ekki að geyma nauðsynlega reikninga og skýringar eða er rangfærður að öllu leyti eða hluta, enda varði brotið ekki við 158. gr. almennra hegningarlaga.
(2) Sama á við ef maður aðstoðar bókhaldskyldan mann eða fyrirsvarsmann lögaðila við þau brot sem lýst er í 1.-5. tölul. eða stuðlar að þeim á annan hátt.]1)
1)Sbr. b-lið 1. gr. laga nr. 37/1995.
(1) Bókhaldsskyldur maður eða fyrirsvarsmaður lögaðila gerist sekur um refsivert brot gegn lögum þessum með athöfnum þeim eða athafnaleysi sem hér segir:
-
Ef hann vanrækir að færa einstakar bókhaldsbækur eða hagar bókhaldi sínu, bókhaldsfærslum, meðferð bókhaldsgagna eða gerð ársreikninga andstætt ákvæðum laga og reglugerða, enda liggi ekki þyngri refsing við broti samkvæmt þeim lögum eða öðrum.
-
Ef hann hagar ekki bókhaldi sínu á nægilega skýran, öruggan og aðgengilegan hátt, á grundvelli fullnægjandi gagna og í samræmi við góða bókhaldsvenju eða tekjuskráning er ekki byggð á skýru og öruggu kerfi þannig að rekja megi tekjur og önnur viðskipti og notkun fjármuna.
-
Ef hann vanrækir að tryggja vörslur bókhalds, bókhaldsgagna eða ársreiknings eða hefur skipulag og uppbyggingu bókhaldsins og fylgiskjala þess ekki með öruggum hætti.
-
Ef hann skráir ekki viðskipti samkvæmt góðri bókhaldsvenju, framkvæmir ekki færslur í númera- og tímaröð og með tilskildum reikningseinkennum.
-
Ef hann hagar ekki gerð ársreiknings eða einstakra þátta hans þannig að hann gefi skýra mynd af rekstrarafkomu á reikningsárinu og efnahag í lok þess í samræmi við [lög þessi og settar reikningsskilareglur.]1)
-
Ef hann vanrækir að framkvæma vörutalningu, ekki koma fram í birgðaskrá tilskildar upplýsingar um magn, einingaverð og útreiknað verðmæti hverrar vörutegundar eða mat vörubirgða er verulega rangt.
(2) Sama á við ef maður aðstoðar bókhaldsskyldan mann eða fyrirsvarsmann lögaðila við brot þau sem lýst er í 1.-6. tölul. eða stuðlar að þeim á annan hátt.]2)
1)Sbr. 18. gr. laga nr. 48/2005. 2)Sbr. c-lið 1. gr. laga nr. 37/1995.
Tilraun til brota og hlutdeild í brotum á lögum þessum, önnur en sú sem lýst er í 37. og 38. gr. laga þessara, er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.]1)
1)Sbr. d-lið 1. gr. laga nr. 37/1995.
Gera má lögaðila fésekt fyrir brot gegn lögum þessum óháð því hvort brotið megi rekja til saknæms verknaðar fyrirsvarsmanns eða starfsmanns lögaðilans. Hafi fyrirsvarsmaður hans eða starfsmaður gerst sekur um brot á lögum þessum má auk þeirrar refsingar, sem hann sætir, gera lögaðilanum sekt og sviptingu starfsréttinda, enda sé brotið drýgt til hagsbóta fyrir lögaðilann eða hann hafi notið hagnaðar af brotinu.]1)
1)Sbr. e-lið 1. gr. laga nr. 37/1995.
(1) [Héraðssaksóknari]2)4)5) fer með frumrannsókn [sakamála]3) vegna brota á lögum þessum. [Skattrannsóknarstjóri]6) getur á hvaða stigi rannsóknar sem er vísað máli til [héraðssaksóknara af sjálfsdáðum eða telji hann að málið falli undir fyrirmæli ríkissaksóknara um rannsókn og saksókn vegna skattalagabrota]6).
(2) [Skattrannsóknarstjóri úrskurðar um]6) sektir vegna brota á lögum þessum, nema máli sé vísað til [---]3) rannsóknar og dómsmeðferðar skv. 1. mgr. [Skattrannsóknarstjóri]6) leggur mál fyrir yfirskattanefnd og kemur fram að hálfu hins opinbera fyrir nefndinni þegar hún úrskurðar sektir. Úrskurðir yfirskattanefndar eru fullnaðarúrskurðir. Vararefsing fylgir ekki sektarúrskurðum hennar.
(3) Sektir fyrir brot gegn lögum þessum renna í ríkissjóð.
(4) Sakir samkvæmt lögum þessum fyrnast á sex árum miðað við upphaf rannsóknar á vegum [skattrannsóknarstjóra]6) eða [héraðssaksóknara]4)5) eða hjá löglærðum fulltrúum þeirra, gegn manni sem sökunaut, enda verði ekki óeðlilegar tafir á rannsókn máls eða ákvörðun refsingar.]1)
1)Sbr. f-lið 1. gr. laga nr. 37/1995. 2)Sbr. 19. gr. laga nr. 48/2005. 3)Sbr. 40. tölul. 234. gr. laga nr. 88/2008. 4)Sbr. 5. gr. laga nr. 82/2011. 5)Sbr. 30. gr. laga nr. 47/2015. 6)Sbr. 34. gr. laga nr. 29/2021.