Skattalagasafn ríkisskattstjóra 23.4.2024 09:15:46

nr. 129/2017 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=129.2017.0)
Ξ Valmynd

Reglur
nr. 129/2017, um upplýsingaöflun vegna ákvörðunar veiðigjalds.

1. gr.

Eigendur, útgerðaraðilar og rekstraraðilar íslenskra fiskiskipa skulu skila sérgreindum upplýsingum um þá afkomuþætti sem greinir í a–c-lið 1. mgr. 7. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjald, með skatt­framtölum. Um er að ræða eftirfarandi upplýsingar, varðandi úthaldskostnað, sundurliðað niður á einstök skip: aflaverðmæti, laun af aflahlutum, önnur laun, launatengd gjöld, orkukostnað, viðhalds­kostnað, veiðarfærakostnað, frystikostnað, umbúðakostnað, löndunarkostnað og flutnings­kostnað.

2. gr.

(1) Ákvæði 90. og 92.–94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, gilda um öflun og skil þeirra upplýsinga sem greinir í 1. mgr. eftir því sem við á. Sé upplýsingum ekki skilað eða ef upplýsingar sem látnar eru í té reynast ófullnægjandi eða óglöggar, eða frekari þörf er talin á upplýsingum um einstök atriði skal ríkisskattstjóri skora á viðkomandi að bætt sé úr.

(2) Verði áskorun um úrbætur, skv. 1. mgr., ekki sinnt skal embætti ríkisskattstjóra gera Fiskistofu grein fyrir því, með tímanlegum hætti. Við þær aðstæður skal Fiskistofa áætla tekjur og kostnað skv. 1. gr. og skal áætlun miðast við að kostnaðurinn sé ekki hærri en ætla má að hann sé í raun. Við þessa áætlun er heimilt að taka mið af gögnum og upplýsingum sem aflað er frá opinberum stofnunum og einkaaðilum.

(3) Veiðigjaldsnefnd er heimilt að beina því til Fiskistofu að ráðast í áætlun skv. 1. mgr.

3. gr.

Ríkisskattstjóri sendir Fiskistofu upplýsingar um eftirgefnar skuldir í framtölum lögaðila, samkvæmt kennitölulista frá Fiskistofu, sbr. 6. og 7. mgr. ákvæðis II til bráðabirgða við lög um veiðigjald.

4. gr.

(1) Reglur þessar taka mið af þjónustusamningi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og embættis ríkisskattstjóra um öflun og miðlun upplýsinga vegna ákvörðunar veiðigjalds, þar sem mælt er m.a. fyrir um myndun gagnagrunna, gagnaskil, vefskil og regluprófun fyrir þessa upplýsingaöflun.

(2) Reglur þessar eru settar að höfðu samráði við embætti ríkisskattstjóra, með heimild í 10. gr. laga um veiðigjald.

Fara efst á síðuna ⇑