Skattalagasafn ríkisskattstjóra 25.4.2024 07:46:24

nr. 165/2001 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=165.2001.0)
Ξ Valmynd

Reglur
nr. 165/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Norræna fjárfestingarbankans.


1. gr.
Gildissvið.

Eftir ákvæðum reglna þessara getur Norræni fjárfestingarbankinn, hér á eftir nefndur "bankinn", fengið endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem hann hefur greitt hér á landi vegna kaupa á nauðsynlegri vöru eða þjónustu vegna opinberrar starfsemi bankans eða sjóða sem eru beint tengdir starfsemi bankans og bankinn rekur beint.
 

2. gr.
Endurgreiðslutímabil o.fl.

(1) Endurgreiðslutímabil samkvæmt reglum þessum er sex mánuðir, janúar til og með júní og júlí til og með desember.

(2) Bankinn getur fengið heimild skattstjóra*2) til aukauppgjörs samkvæmt almennum reglum um uppgjörstímabil virðisaukaskatts nái endurgreiðslufjárhæð 150.000 kr. á tímabilinu.

(3) Fjárhæð virðisaukaskatts sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal nema a.m.k. 15.000 kr.*1)

*1)Fjárhæðin breytist 1. janúar ár hvert í samræmi við byggingarvísitölu. Frá 1. janúar 2022 er hún 48.100 kr. *1)Nú ríkisskattstjóra

3. gr.

Umsókn um endurgreiðslu, í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, skal hafa borist skattstjóranum í Reykjavík*1) í síðasta lagi sex mánuðum eftir lok þess endurgreiðslutímabils sem umsóknin tekur til. Með umsókn skal fylgja frumrit sölureikninga eða greiðsluskjala úr tolli þar sem kemur fram sá virðisaukaskattur sem umsækjandi hefur greitt. Þessi skjöl skulu endursend umsækjanda að lokinni afgreiðslu.

 *1)Nú ríkisskattstjóra.

4. gr.
Afgreiðsla á umsóknum.

(1) Skattstjórinn í Reykjavík*1) afgreiðir beiðnir um endurgreiðslu samkvæmt reglum þessum. Skattstjóri skal rannsaka endurgreiðslubeiðni og getur hann í því sambandi krafið umsækjanda og þá sem selt hafa umsækjanda vörur þær og þjónustu sem umsókn varðar nánari skýringa á viðskiptunum. Skattstjóri skal tilkynna ríkisféhirði um samþykki sitt til endurgreiðslu. Ríkisféhirðir annast endurgreiðslu.

(2) Umsóknir sem berast innan skilafrests og með réttum fylgigögnum skulu afgreiddar eigi síðar en einum mánuði og fimm dögum eftir lok endurgreiðslutímabils. Endurgreiðslubeiðnir sem berast eftir lok skilafrests skulu afgreiddar með beiðnum næsta endurgreiðslutímabils.

 *1)Nú ríkisskattstjóri.

5. gr.
Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt skuldbindingum íslenska ríkisins í 9. gr. samnings milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um Norræna fjárfestingarbankann, taka þegar gildi.
 

Bráðabirgðaákvæði.

     Þrátt fyrir ákvæði 1. ml. 3. gr. reglna þessara er endurgreiðsla virðisaukaskatts heimil frá 1. janúar 1998, sbr. 16. gr. samnings milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um Norræna fjárfestingarbankann.
 

Fara efst á síðuna ⇑