Skattalagasafn ríkisskattstjóra 21.1.2021 01:18:40

nr. 1280/2020 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=1280.2020.0)
Ξ Valmynd

Auglýsing
nr. 1280/2020, frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2020 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2020 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 4,1% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2020. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2020, hvort sem leigu­tímabilið hefst eða því lýkur á því ári.
Fara efst á síðuna ⇑