Skattalagasafn ríkisskattstjóra 18.4.2024 19:20:19

Lög nr. 113/1990 - álagningarár 2019 (slóð: www.skattalagasafn.is?log=113.1990&alagningarar=2019)
Ξ Valmynd

 Álagningarár:

VEGNA TÆKNILEGRA ÖRÐUGLEIKA ERU LÖGIN EKKI RÉTTILEGA UPPFÆRÐ

Lög
nr. 113/1990, um tryggingagjald.*1)

*1)Sbr. lög nr. 111/1992, 122/1993, 74/1994, 32/1995, 141/1995, 156/1996, 66/1997, 130/1997, 148/1998, 84/2000, 95/2000, 102/2000, 156/2000, 133/2001, 34/2002, 51/2002, 65/2002, 134/2002, 121/2003, 90/2004, 129/2004, 177/2006, 169/2007, 38/2008, 88/2008, 112/2008158/200870/2009, 128/2009, 136/2009, 126/2011, 164/2011, 60/2012145/2012, 146/2012, 139/2013, 140/2013, 125/2014, 33/2015, 88/2015, 124/2015, 125/201554/2016, 59/2017, 96/2017 og 47/2018.

I. KAFLI
Almenn ákvæði.

Upphafsákvæði.
1. gr.

(1) Launagreiðendur [samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda],3) skulu inna af hendi sérstakt gjald, tryggingagjald, af greiddum vinnulaunum, þóknunum, reiknuðu endurgjaldi og öðrum tegundum greiðslna og launa eftir því sem nánar segir í lögum þessum.

(2) [Tryggingagjald samkvæmt lögum þessum er samsett af tveimur gjöldum, almennu tryggingagjaldi og atvinnutryggingagjaldi.]1)

(3) Tryggingagjald skal innheimt samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, og lagt á með opinberum gjöldum samkvæmt [lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt],2) nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.

1)Sbr. 1. gr. laga nr. 141/1995. 2)Sbr. 83. gr. laga nr. 129/2004. 3)Sbr. 2. gr. laga nr. 169/2007.

Hundraðshluti tryggingagjalds.
2. gr.

(1) [Atvinnutryggingagjald skal vera [1,35%]5)7)8)10)11)12) *1) af gjaldstofni skv. III. kafla.

(2) Fyrir lok október ár hvert skal Atvinnuleysistryggingasjóður gefa [ráðherra]9) skýrslu um fjárhagslega stöðu sjóðsins þar sem gerð verði grein fyrir fyrirsjáanlegum útgjöldum á næsta fjárhagsári með hliðsjón af [horfum]2) um atvinnuleysi og öðrum atriðum sem áhrif hafa á fjárhagslega stöðu sjóðsins. Ef niðurstaða skýrslunnar gefur tilefni til að breyta hundraðshluta atvinnutryggingagjalds skal [ráðherra]9) flytja frumvarp þar að lútandi á Alþingi.]1)

(3) [Almennt tryggingagjald skal vera [5,40%]6) 10)11)12)13) *2)  af gjaldstofni skv. III. kafla]3).

[---]4)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 141/1995. 2)Sbr. f-lið 2. gr. laga nr. 51/2002. 3)Sbr. 1. gr. laga nr. 134/2002. 4)Sbr. 1. gr. laga nr. 121/2003. 5)Sbr. 11. gr. laga nr. 90/2004. 6)Sbr. 1. gr. laga nr. 177/2006. 7)Sbr. 1. gr. laga nr. 70/2009. 8)Sbr. 38. gr. laga nr. 128/2009. 9)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011. 10)Sbr. 1. gr. laga nr. 164/2011. 11)Sbr. 4. gr. laga nr. 146/2012. 12)Sbr. 13. gr. laga nr. 139/2013. 13)Sbr. 1. gr. laga nr. 54/2016*1)Atvinnutryggingagjald skal vera 1,45% í staðgreiðslu á árinu 2014 og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2015 vegna tekna ársins 2014, sbr. ákv. til brb. með lögum nr. 139/2013. *2)Almennt tryggingagjald skal vera 6,04% í staðgreiðslu á árunum 2014 og 2015 og við álagningu opinberra gjalda á árunum 2015 og 2016 vegna tekna áranna 2014 og 2015, sbr. ákv. til brg. með lögum nr. 139/2013.

Ráðstöfun tryggingagjalds.
3. gr.

(1) [Tekjur af atvinnutryggingagjaldi skulu renna til Atvinnuleysistryggingasjóðs. [Þó skulu tekjur af atvinnutryggingagjaldi vegna reiknaðs endurgjalds þeirra sem falla undir gildissvið laga um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga renna í hlutaðeigandi deild þess sjóðs.]2)

(2) Tekjum af almennu tryggingagjaldi skal ráðstafað sem hér segir:

  1. [---]12)

  2. [---]8)

  3. [---]6)

  4. [[0,325%]10) *1) af gjaldstofni skv. III. kafla renni til jöfnunar og lækkunar örorkubyrði lífeyrissjóða, sbr. VI. kafla.]5)

  5. [  ]5) Fæðingarorlofssjóður fái í sinn hlut sem nemi allt að [0,65%]4)8)9) af gjaldstofni skv. III. kafla.

  6. [  ]5) Tekjur af almennu tryggingagjaldi umfram það sem ákveðið er í [1.–5. tölul.]11) renni til Tryggingastofnunar ríkisins til að fjármagna lífeyris- og slysatryggingar almannatrygginga eftir reglum sem [ráðherra]7) setur með reglugerð.]3)

(3) Um hlutdeild opinberra byggingarsjóða í almennu tryggingagjaldi fer eftir ákvæðum laga um Húsnæðisstofnun ríkisins*2), svo og ákvæðum lánsfjárlaga og fjárlaga hverju sinni.]1)

1)Sbr. 3. gr. laga nr. 141/1995. 2)Sbr. 1. gr. laga nr. 66/1997. 3)Sbr. 37. gr. laga nr. 95/2000. 4)Sbr. 12. gr. laga nr. 90/2004. 5)Sbr. 2. gr. laga nr. 177/2006. Ákvæðið kemur til framkvæmda 1. janúar 2010, sbr. 5. gr. s.l. Um ráðstöfun hluta tryggingagjalds til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða á árunum 2007-2009, sjá brbákv. III.  6)Sbr. 1. gr. laga nr. 158/2008. 7)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011. 8)Sbr. 2. gr. laga nr. 164/2011. 9)Sbr. 14. gr. laga nr. 139/2013. 10)Sbr. 21. gr. laga nr. 33/201511)Sbr. 7. gr. laga nr. 59/2017. 12)Sbr. 45. gr. laga nr. 47/2018. *1)Með 1. gr. laga nr. 125/2014 lækkaði hlutfallið í 0,260% og ráðgert væri að breytingin kæmi til framkvæmda við staðgreiðslu tryggingagjalds frá 1. júlí 2015 og álagningu ársins 2016. Fallið var frá því með 21. gr. laga nr. 33/2015. *2)Húsnæðisstofnun ríkisins hefur verið lögð niður, sbr. 52. gr. laga nr. 44/1998.

II. KAFLI
Gjaldskyldir aðilar.

Almennt.
4. gr.

(1) Gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum telst hver sá aðili sem innir af hendi eða reiknar greiðslur sem teljast laun skv. III. kafla.

(2) Gjaldskyldan tekur til allra launagreiðenda, svo sem einstaklinga, félaga, sjóða og stofnana, sveitarfélaga og stofnana þeirra, ríkissjóðs, ríkisstofnana, erlendra verktaka og annarra þeirra aðila sem greiða laun eða hvers konar þóknanir fyrir starf. Enn fremur til allra þeirra sem vinna við eigin atvinnurekstur eða stunda sjálfstæða starfsemi.

(3) Ef milligöngumaður annast launagreiðslur skal hann gegna skyldum gjaldskylds aðila varðandi skil og greiðslur samkvæmt lögum þessum. Sama gildir um umboðsmann sem um ræðir í [2. mgr. 2. tölul. 70. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt].2)

(4) [Hafi Tryggingastofnun ríkisins fallist á umsókn um almannatryggingar hér á landi skv. [1. mgr. 5. gr. laga um almannatryggingar]3), með síðari breytingum, skal heimilt að taka við greiðslu tryggingagjalds og fullnægja þannig skilyrðum almannatryggingalaga um greiðslu þess. Ríkisskattstjóra er heimilt að setja reglur um upplýsinga- og skýrslugjöf og eftir atvikum reglur um rafræn skil samkvæmt þessari málsgrein.]1)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 134/2002. 2)Sbr. 84. gr. laga nr. 129/2004. 3)Sbr. 25. gr. laga nr. 88/2015.

Aðilar undanþegnir gjaldskyldu.
5. gr.

(1) Eftirtaldir aðilar eru undanþegnir tryggingagjaldi:

  1. [---]1)

  2. Erlendir þjóðhöfðingjar.

  3. Sendiráð og sendiherrar erlendra ríkja, sendiræðismenn og erlendir starfsmenn við sendiráð.

(2) Þeir sem taldir eru í 2. og 3. tölul. eru þó ekki undanþegnir gjaldskyldu af launum sem þeir kunna að greiða vegna atvika sem mundu skapa þeim skattskyldu hér á landi til tekjuskatts [---]2).

1)Sbr. 6. gr. laga nr. 84/2000. 2)Sbr. 85. gr. laga nr. 129/2004.

III. KAFLI
Gjaldstofn.

Almennt.
6. gr.

(1) Stofn til tryggingagjalds er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. [1. tölul. A liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.]4) Ekki skiptir máli í hvaða gjaldmiðli goldið er, hvort sem það er í reiðufé, fríðu, hlunnindum, vöruúttekt eða vinnuskiptum. [Til stofns telst enn fremur endurgjald sem ber að reikna manni sem vinnur við atvinnurekstur lögaðila þar sem hann er ráðandi aðili vegna eignar- eða stjórnunaraðildar]3).

(2) Gjaldstofn manns [vegna staðgreiðslu tryggingagjalds]1) sem vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skal vera jafn fjárhæð reiknaðs endurgjalds sem hann telur sér til tekna eða bar að telja sér til tekna skv. 6. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Sama á við um reiknað endurgjald maka hans og barna innan 16 ára aldurs á tekjuárinu.

(3) [Gjaldstofn manns vegna vinnu hans við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi skal vera jafnhár fjárhæð skv. [2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 58. gr. þeirra laga.]4) Gjaldstofn þessi skal þó eigi vera lægri en [748.224]2) kr. miðað við heilt ár. [---]2)]1).

1)Sbr. 36. gr. laga nr. 122/1993. 2)Sbr. 4. gr. laga nr. 141/1995. 3)Sbr. 1. gr. laga nr. 65/2002. 4)Sbr. 86. gr. laga nr. 129/2004.

Laun o.þ.h.
7. gr.

Til gjaldstofns skv. 6. gr. teljast meðal annars:

  1. [Hvers konar laun og þóknanir, þar með talið ákvæðislaun, biðlaun, nefndarlaun, stjórnarlaun, launauppbætur, staðaruppbætur, orlofsfé og greiðslur fyrir ónotað orlof og framlag vinnuveitanda í lífeyrissjóð [---]2)]1).

  2. Verkfærapeningar, flutningspeningar, fæðispeningar og þess háttar greiðslur.

  3. Ökutækjastyrkir og dagpeningar. [Þó skal ekki telja til gjaldstofns greiðslur dagpeninga sem heimilt er að halda utan staðgreiðslu samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, og reglugerðum og starfsreglum sem settar eru með stoð í þeim lögum.]1)

  4. Gjafir og risnufé sem teljast kaupuppbót og eftirgjöf lána sem telja má að komi í launa stað.

  5. Laun eða þóknanir fyrir störf unnin erlendis, greidd af íslenskum aðilum til manna sem eru heimilisfastir hér á landi.

1)Sbr. 44. gr. laga nr. 111/1992. 2)Sbr. 3. gr. laga nr. 156/1996.

Hlunnindi.
8. gr.

Til tryggingagjaldsskyldra hlunninda telst meðal annars fæði, húsnæði, fatnaður, bifreiðaafnot o.þ.h. Hlunnindi þessi skal reikna til gjaldstofns á sama verði og þau eru metin til tekna samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra. Önnur hlunnindi skulu metin til peninga eftir gangverði á hverjum stað og tíma.

Undanþágur frá gjaldstofni.
9. gr.

Undanþegnar tryggingagjaldi eru eftirtaldar greiðslur:

  1. Eftirlaun og lífeyrir sem Tryggingastofnun ríkisins eða lífeyrissjóður greiðir, enda starfi lífeyrissjóðurinn eftir reglum sem [ráðherra]3) samþykkir og sjóðurinn sé háður eftirliti [ráðuneytisins]3).

  2. Aðrar bætur greiddar af Tryggingastofnun ríkisins, [---]4) svo og [sjúkradagpeningar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar, [slysabætur samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga]4) og]2) slysa og sjúkradagpeningar úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga.

  3. Bætur tryggingafélaga vegna atvinnutjóns af völdum slysa.

  4. Atvinnuleysisbætur.

  5. Greiðslur úr ríkissjóði vegna ríkisábyrgðar á launum.

  6. [Greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingarorlofs, svo og greiðslur launagreiðanda vegna fæðingarorlofs, þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur þeim hluta slíkra greiðslna sem launagreiðandinn fær endurgreiddan úr Fæðingarorlofssjóði.]1)

1)Sbr. 1. gr. laga nr. 156/2000. 2)Sbr. 70. gr. laga nr. 112/2008. 3)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011. 4)Sbr. 25. gr. laga nr. 88/2015.

IV. KAFLI
Staðgreiðsla tryggingagjalds.

Greiðslutímabil o.fl.
10. gr.

(1) Greiðslutímabil tryggingagjalds er almanaksmánuður nema annað sé tekið fram í lögum þessum. Gjalddagi tryggingagjalds er 1. hvers mánaðar vegna launa næstliðins mánaðar og eindagi 14 dögum síðar. Hafi gjaldandi eigi greitt á eindaga skal hann greiða dráttarvexti frá og með gjalddaga. Álag skv. 1. tölul. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, reiknast ekki.

(2) Gjaldskyldur aðili skal ótilkvaddur greiða tryggingagjald til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra.

(3) Ríkisskattstjóri ákveður hvað skuli koma fram í skilagreinum og greiðsluskjölum og ákveður gerð þeirra. Um skilagreinar, svo og um yfirferð, áætlun og tilkynningar [ríkisskattstjóra]1) á staðgreiðsluári, gilda að öðru leyti ákvæði laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.

1)Sbr. 62. gr. laga nr. 136/2009.

Upplýsingar, eftirlit, viðurlög o.fl.
11. gr.

Ákvæði laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, skulu gilda um upplýsingar og eftirlit, viðurlög og málsmeðferð tryggingagjalds að því er varðar skil þess á staðgreiðsluári. Skulu ákvæði þeirra laga m.a. taka til dráttarvaxta, áætlunar gjaldstofns og innheimtu vanskilafjár, þar með talið lögtaksréttar, stöðvunar atvinnurekstrar, refsinga, [---]1) rannsóknar og fyrningar gjaldkröfu.

1)Sbr. 233. gr. laga nr. 88/2008.
 
V. KAFLI
Álagning tryggingagjalds.

Árleg tryggingagjaldsframtöl, álagning, endurskoðun gjalds,
kærur, innheimta o.fl.

12. gr.

(1) Allir, sem skyldir eru til að greiða tryggingagjald samkvæmt lögum þessum, skulu, að staðgreiðsluári liðnu, senda [ríkisskattstjóra]5) árlega sérstakt launaframtal, í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, innan þess frests sem settur er um skil launaskýrslna þeirra er greinir í 92. gr. [laga nr. 90/2003, um tekjuskatt].3)

(2) Á launaframtal skal launagreiðandi færa launagreiðslur næstliðins árs og aðrar upplýsingar og sundurliðanir sem ríkisskattstjóra þykir við þurfa til ákvörðunar tryggingagjalds og form eyðublaðsins segir til um.

(3) [Vegna tryggingagjalds á reiknað endurgjald manns sem stundar atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, maka hans og barna skal stofn gjaldsins vera sú fjárhæð sem greinir í 3. mgr. 6. gr. Er ekki skylt að gera sérstaka grein fyrir fjárhæðinni á launaframtali. Skipta skal gjaldstofni ársins jafnt á öll greiðslutímabil þess nema önnur skipting komi greinilega fram í skattgögnum gjaldanda.]1)

(4) Við álagningu opinberra gjalda skal [ríkisskattstjóri]5) ákvarða tryggingagjald gjaldskylds aðila samkvæmt launaframtali hans að gerðum þeim breytingum og leiðréttingum sem gera þarf á því.

(5) Tryggingagjald skal birt í álagningarskrá, sbr. 98. gr. [laga nr. 90/2003, um tekjuskatt].3)

(6) Gjalddagi ógreidds tryggingagjalds, sem [ríkisskattstjóri]5) ákvarðar vegna hlunninda, og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu, er [annars vegar [1. júní]7)8) ár hvert hjá mönnum og eindagi mánuði síðar og hins vegar [1. október]8) ár hvert hjá lögaðilum og eindagi mánuði síðar.]6)

(7) [[---]5)]4)

(8) [Launaframtal félaga sem fengið hafa heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli skv. 11. gr. A laga um ársreikninga*1) skal byggjast á upprunalegum fjárhæðum í íslenskum krónum eða umreiknuðum fjárhæðum á daggengi.]2)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 32/1995. 2)Sbr. 2. gr. laga nr. 34/2002. 3)Sbr. 87. gr. laga nr. 129/2004. 4)Sbr. 5. gr. laga nr. 38/2008. 5)Sbr. 63. gr. laga nr. 136/2009. 6)Sbr. 6. gr. laga nr. 145/2012. 7)Sbr. 19. gr. laga nr. 124/2015. 8)Sbr. 12. gr. laga nr. 50/2018  *1)Nú 8. gr. laga nr. 3/2006.

Vangreitt tryggingagjald.
13. gr.

(1) [Ríkisskattstjóri skal]3) kanna skil þeirra sem greiða áttu tryggingagjald, m.a. með samanburði við laun í staðgreiðslu, launaframtöl, launamiða, skattframtöl, ársreikninga og önnur gögn sem fyrir hendi eru. [Hann skal]3) síðan leiðrétta það sem áfátt kann að reynast og ákvarða vangreitt tryggingagjald og senda tilkynningu þar um til gjaldanda og innheimtumanns.

(2) Komi í ljós að aðili, sem greitt hefur laun sem greiða skal tryggingagjald af, hafi vanrækt greiðslu gjaldsins að hluta eða öllu leyti, eða ofgreitt tryggingagjaldið eða ekki skilað launaframtali, skal [ríkisskattstjóri]3) ákvarða tryggingagjald fyrir hvert einstakt greiðslutímabil. Skal ákvarða gjaldanda dráttarvexti af vangreiddu tryggingagjaldi frá og með gjalddaga þess í samræmi við [lög um vexti og verðtryggingu].4) Á ofgreiðslu reiknast vextir í samræmi við ákvæði [2. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt].2)

[(3) Hafi innheimtumaður hafið aðför vegna vangoldinnar staðgreiðslu tryggingagjalds skulu þau aðfararúrræði sem innheimtumaður hefur gripið til halda lögformlegu gildi sínu eftir álagningu tryggingagjalds vegna þess hluta kröfunnar sem rekja má til vangoldinnar staðgreiðslu.

(4) Séu ekki gerð fullnægjandi skil á álögðu eða endurákvörðuðu tryggingagjaldi innan 15 daga frá eindaga er innheimtumanni heimilt með aðstoð lögreglu að stöðva atvinnurekstur launagreiðanda með innsigli á starfsstöðvar, skrifstofur, útibú, tæki og vörur þar til full skil hafa farið fram.]1)

1)Sbr. 3. gr. laga nr. 134/2002. 2)Sbr. 88. gr. laga nr. 129/2004. 3)Sbr. 64. gr. laga nr. 136/2009. 4)Sbr. 8. gr. laga nr. 59/2017.

Endurákvörðun tryggingagjalds, kærur o.fl.
14. gr.

Séu skil gjaldanda í einstökum atriðum eða í heild ófullnægjandi, tortryggileg eða sýnilega gerð til málamynda skal við álagningu, sbr. 3. mgr. 12. gr.*1), og við endurákvörðun beita ákvæðum [laga um tekjuskatt]1) eftir því sem við getur átt um slík tilvik. Ákvæði þeirra laga skulu og gilda, eftir því sem við á, um álagningu, rannsókn, kærur út af skattákvörðun, kærufresti, úrskurði, áfrýjun úrskurða og annað þar að lútandi. Sömu reglur skulu gilda, eftir því sem við á, ef gjaldandi, sem lagt skyldi á, hefur fallið af skrá eða honum ekki gert að greiða tryggingagjald af öllum gjaldstofninum.

1)Sbr. 89. gr. laga nr. 129/2004. *1)Nú 4. mgr. 12. gr., sbr. 2. gr. laga nr. 32/1995.

Tryggingagjald ársmanna o.fl.
15. gr.

(1) Nú reiknar maður sér endurgjald eða greiðir laun til annarra, þannig að reiknaða endurgjaldið og launin nema samtals lægri fjárhæð en [42.000]1) kr. að meðaltali á mánuði, og er honum þá heimilt, í stað þess að skila mánaðarlega í samræmi við 10. gr., að senda skilagrein ásamt greiðslu á gjalddaga þess mánaðar þegar samanlagt reiknað endurgjald og greidd laun til annarra ná [504.000]1) kr. en eftir það á hverjum gjalddaga vegna þess árs.

(2) Ef reiknað endurgjald eða greidd vinnulaun til annarra ná eigi til samans [504.000]1) kr. á árinu er gjaldanda heimilt, í stað þess að skila mánaðarlega í samræmi við 10. gr., að senda skilagrein ásamt greiðslu einu sinni á ári eins og um uppgjör fyrir desember væri að ræða.

(3) [---]1)

1)Sbr. 90. gr. laga nr. 129/2004.

Dráttarvaxtaútreikningur.
16. gr.

Á tryggingagjald vegna launa og hlunninda, sem undanþegin eru staðgreiðslu, reiknast dráttarvextir eftir almennum reglum frá og með gjalddaga [[1. júní]2) hjá mönnum og [1. október]2) hjá lögaðilum]1) ár hvert ef ekki er greitt fyrir eindaga. 

1)Sbr. 7. gr. laga nr. 145/2012. 2)Sbr. 12. gr. laga nr. 50/2018.

[VI. KAFLI
Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Markmið.
17. gr.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í kafla þessum. Til að ná því markmiði skal ríkissjóður veita fjárframlag til lífeyrissjóða samkvæmt ákvæðum þessa kafla.

Fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.
18. gr.

[Árlegt framlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal ákvarðað á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum. Framlagið skal að lágmarki nema 0,325% af fjárhæð gjaldstofns tryggingagjalds skv. III. kafla.]1) Framlagið skal greitt í október ár hvert og byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um fjárhæð gjaldstofns tryggingagjalds næstliðins árs.

1)Sbr. 46. gr. laga nr. 47/2018.

Móttakendur framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.
19. gr.

Lífeyrissjóðir, sem taka við framlagi til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða, skulu hafa starfsleyfi frá [ráðherra]1), sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

1)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011.

Stjórnsýsla.
20. gr.

[Ráðuneytið]1) annast úthlutun og greiðslu framlaga til lífeyrissjóða samkvæmt kafla þessum.

1)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.
21. gr.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.

  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.

  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

Reglugerðarheimild.
22. gr.

[Ráðherra]3) skal setja reglugerða) með nánari ákvæðum um skiptingu og úthlutun fjárframlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða [og meðferð framlagsins í uppgjöri sjóðanna.]2)]1)

1)Sbr. 3. gr. laga nr. 177/2006. 2)Sbr. 40. gr. laga nr. 128/2009. 3)Sbr. 148. gr. laga nr. 126/2011. a)Sbr. reglugerðir nr. 391/1998 og 1120/2016.
 
[VI. KAFLI A
Erlendir launagreiðendur.

Greiðsla tryggingagjalds. 
22. gr. a

(1) Erlendum launagreiðanda er heimilt að greiða tryggingagjald vegna starfsmanna sinna sem eru heimilisfastir hér á landi, enda skrái hann sig á launagreiðendaskrá, sbr. 19. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, vegna tryggingagjaldsins.

(2) Stofn til tryggingagjalds samkvæmt þessari grein er allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, skv. 6. gr.

(3) Greiðsla tryggingagjalds samkvæmt ákvæði þessu skal vera endanleg greiðsla á staðgreiðsluári.

(4) Um greiðslutímabil, upplýsingar, eftirlit og viðurlög fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga þessara.]1)

1)Sbr. 20. gr. laga nr. 124/2015.

VII. KAFLI*1)
*1)Með 3. gr. laga nr. 177/2006 bættust við sex nýjar lagagreinar í nýjum kafla, VI. kafla og því breyttis númer þessa kafla sem og númer lagagreina í honum.

Ýmis ákvæði.

Frádráttarbærni tryggingagjalds.
23. gr.

Tryggingagjald telst rekstrarkostnaður skv. 1. tölul. 31. gr. [laga nr. 90/2003, um tekjuskatt]1), að því leyti sem það er ákvarðað af launum sem teljast rekstrarkostnaður samkvæmt sömu grein.

1)Sbr. 91. gr. laga nr. 129/2004.

[Framlög til starfsendurhæfingarsjóða.
23. gr. a

[Árleg fjárveiting til starfsendurhæfingarsjóða, sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, skal ákvörðuð á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum. Fjárveitingin skal að lágmarki nema 0,13% af fjárhæð gjaldstonfs tryggingagjalds skv. III. kafla miðað við upplýsingar um fjárhæð stofns tryggingagjalds næstliðins árs.]2)]1)

1)Sbr. 29. gr. laga nr. 60/2012.

Setning reglugerðar.
24. gr.

Ráðherra getur með reglugerða) sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.

a)Reglugerð nr. 13/2003.

Brottfall lagaákvæða o.fl.
25. gr.

Ákvæði laga þessara koma í stað þeirra ákvæða laga nr. 67/1971, um almannatryggingar*1), með síðari breytingum, laga nr. 64/1981, um atvinnuleysistryggingasjóð*2), með síðari breytingum, og laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, er fela í sér ákvörðun gjaldstofns og gjaldtöku af launagreiðendum sem miðast við launagreiðslur eða launatímabil.

*1)Sjá nú lög nr. 100/2007. *2)Sjá nú lög nr. 54/2006.

26. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda vegna launagreiðslna frá og með 1. janúar 1991. ...*1)

*1)Upptalning á brottföllnum lögum.

Ákvæði til bráðabirgða.

[---]1)

1)Sbr. 2. gr. laga nr. 66/1997.

Ákvæði til bráðabirgða III, sbr. 4. gr. laga nr. 177/2006.

(1) Þrátt fyrir ákvæði 4. tölul. 2. mgr. 3. gr. og 18. gr. laganna skal ráðstöfun hluta tryggingagjalds til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, sbr. VI. kafla, vera sem hér segir á árunum 2007 og 2009:

  1. Framlag á árinu 2007 skal vera 0,15% af gjaldstofni skv. III. kafla.

  2. Framlag á árinu 2008 skal vera 0,20% af gjaldstofni skv. III. kafla.

  3. Framlag á árinu 2009 skal vera 0,25% af gjaldstofni skv. III. kafla.

(2) Þrátt fyrir ákvæði 17., 18. og 19. gr. laganna skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða á árunum 2007–2009 eingöngu renna til lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands.

Ákvæði til bráðabirgða IV, sbr. 29. gr. laga nr. 60/2012.

[Þrátt fyrir 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. og 23. gr. a skulu starfsendurhæfingarsjóðir, sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, ekki fá tekjur af almennu tryggingagjaldi á árunum 2013, [2014, [2015, 2016, [2017 og 2018.] 1) 2) 4) 5) 3)

1)
Sbr. 30. gr. laga nr. 140/2013. 2)Sbr. 2. gr. laga nr. 125/2014. 3)31. gr. laga nr. 124/2015. 4)Sbr. Sbr. 37. gr. laga nr. 125/2015. 5)Sbr. 45. gr. laga nr. 96/2017.

Ákvæði til bráðabirgða V, sbr. 15. gr. laga nr. 139/2013.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 2. gr. skal atvinnutryggingagjald vera 1,45% í staðgreiðslu á árinu 2014 og við álagningu opinberra gjalda á árinu 2015 vegna tekna ársins 2014.

Ákvæði til bráðabirgða VI, sbr. 15. gr. laga nr. 139/2013

Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 2. gr. skal almennt tryggingagjald vera 6,04% í staðgreiðslu á árunum 2014 og 2015 og við álagningu opinberra gjalda á árunum 2015 og 2016 vegna tekna áranna 2014 og 2015.

Ákvæði til bráðabirgða VII, sbr. 15. gr. laga nr. 139/2013.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 3. gr. skal Atvinnuleysistryggingasjóður fá til ráðstöfunar 240 millj. kr. af tekjum almenns tryggingagjalds vegna ársins 2013. Ráðstöfun skv. 1. málsl. gengur framar framlagi til Tryggingastofnunar ríkisins skv. 6. tölul. 2. mgr. 3. gr. 

Ákvæði til bráðabirgða VII, sbr. 32. gr. laga nr. 124/2015.

Þrátt fyrir 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. skulu starfsendurhæfingarsjóðir, sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, fá í sinn hlut 0,10% af gjaldstofni skv. III. kafla vegna áranna 2015 og 2016.

[Viðauki I.

Í sérstökum gjaldflokki [almenns tryggingagjalds]2) skulu vera eftirtaldar atvinnugreinar samkvæmt atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands:

01.1 Jarðyrkja og garðyrkja.
01.2 Búfjárrækt.
01.3 Blandaður búskapur jarðyrkju og búfjárræktar.
01.5 Dýraveiðar og tengd þjónusta.
2 Skógrækt, skógarhögg og tengd þjónusta.
05.01 Fiskveiðar.
05.02 Rekstur seiða-, fiskeldis- og hafbeitarstöðva.
10 Kolanám og móvinnsla.
11 Vinnsla á hráolíu, jarðgasi o.fl.
12 Nám á úran- og þórínmálmgrýti.
13 Málmnám og málmvinnsla.
14 Námugröftur og vinnsla annarra hráefna úr jörðu.
15 Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður.
16 Tóbaksiðnaður.
17 Textíliðnaður.
18 Fataiðnaður; sútun og litun loðskinna.
19 Leðuriðnaður.
20 Trjáiðnaður.
21 Pappírsiðnaður.
22 Útgáfustarfsemi og prentiðnaður.
23 Framleiðsla á koxi, olíuvörum og kjarnorkueldsneyti.
24 Efnaiðnaður.
25 Gúmmí- og plastvöruframleiðsla.
26 Gler-, leir- og steinefnaiðnaður.
27 Framleiðsla málma.
28 Málmsmíði og viðgerðir.
29 Vélsmíði og vélaviðgerðir.
30 Framleiðsla á skrifstofuvélum og tölvum.
31 Framleiðsla og viðgerðir annarra ótalinna rafmagnsvéla og -tækja.
32 Framleiðsla fjarskiptabúnaðar og -tækja.
33 Framleiðsla á lækningatækjum, mæli- og rannsóknartækjum, úrum o.fl.
34 Framleiðsla vélknúinna ökutækja annarra en vélhjóla.
35 Framleiðsla annarra farartækja.
36 Húsgagnaiðnaður, skartgripasmíði, hljóðfærasmíði, sportvörugerð, leikfangagerð og annar ótalinn iðnaður.
37 Endurvinnsla.
52.7 Viðgerðir á hlutum til einkanota og heimilisnota.
55.1 Hótel.
55.2 Orlofshús, bændagisting, tjaldstæði og önnur aðstaða til stuttrar dvalar.
55.3 Veitingahúsarekstur.
55.52 Sala á tilbúnum mat.
71.1 Bílaleiga.
72.2 Hugbúnaðargerð. Ráðgjöf og sala á hugbúnaði fellur ekki hér undir.
92.11 Framleiðsla kvikmynda og myndbanda.]1)

1)Sbr. 3. gr. laga nr. 32/1995. 2)Sbr. 5. gr. laga nr. 141/1995.

[Þrátt fyrir 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. og 23. gr. a skulu starfsendurhæfingarsjóðir, sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, ekki fá tekjur af almennu tryggingagjaldi á árunum 2013, [2014, [2015, 2016, [2017 og 2018.]1) 2) 4) 5) 3)

Fara efst á síðuna ⇑