Skattalagasafn ríkisskattstjóra 21.1.2021 01:07:26

nr. 1401/2020 (slóð: www.skattalagasafn.is?ann=1401.2020.0)
Ξ Valmynd

Auglýsing

nr. 1401/2020, um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2021.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum, nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög, nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2021 verður 17% af tekjuskattsstofni að 4.188.211 kr., 23,5% af tekjuskattsstofni frá 4.188.212 kr. að 11.758.159 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 11.758.160 kr. Meðalútsvar á árinu 2021 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,45%. Innheimtu­hlutfall í staðgreiðslu á árinu 2021 verður því 31,45% af tekjuskattsstofni að 4.188.211 kr., 37,95% af tekjuskattsstofni frá 4.188.212 kr. að 11.758.159 kr. og 46,25% af tekjuskattsstofni frá 11.758.160 kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða LXI, laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2021 vera 609.509 krónur, eða 50.792 krónur að meðaltali á mánuði.

Fara efst á síðuna ⇑